Mosfellingur - 07.09.2017, Qupperneq 8
Lýðheilsugöngur
alla miðvikudaga
Lýðheilsugöngur Ferðafélags
Íslands verða á öllu landinu nú í
september og eru einn af hápunkt-
unum í glæsilegri afmælisdagskrá
FÍ en félagið fagnar 90 ára afmæli á
árinu. Göngurnar munu fara fram
alla miðvikudaga í septembermán-
uði kl. 18:00. Þetta eru fjölskyldu-
vænar göngur sem taka u.þ.b. 60-90
mínútur og er tilgangur þeirra að
hvetja fólk til útivistar og hreyfingar
í góðum félagsskap og efla þar með
heilsu sína og lífsgæði. Í Mosfells-
bæ verður farið í óvissuferðir úr
Álafosskvos auk þess sem gengið
verður á Úlfarsfell frá bílastæðinu
við Hamrahlíðarskóg. Göngurnar
hefjast kl. 18:00 næstu miðvikudaga.
Nánar á www.fi.is/lydheilsa.
Vel gengur að leggja
hitaveitu um Kjósina
Búið er að hleypa á annan áfanga
dreifikerfis Kjósarveitna, af fjórum.
Legginn frá Hvassnesi að Baulu-
brekku niður að Hvammsvík, um
Ásgarð að Káraneskoti og fram hjá
Félagsgarði að Laxárnesi. Þar með
geta 270 frístundahús og 65 íbúð-
arhús tengst hitaveitu eða 77,5% af
þeim sem hafa sótt um hitaveitu.
Gröfutækni og þeirra verktakar eru
þegar byrjaðir með stofnlögnina
um þriðja áfanga dreifikerfisins
sem liggur frá Eilífsdal, um Miðdal,
Morastaði og niður að Kiðafelli.
Jón Ingileifs og hans hópur er að
leggja lokahönd á hitaveitulagnir
í Hömrum og Efri-Hlíð, á sumar-
húsasvæðinu Valshamri. Gert er
ráð fyrir að þann 30. nóvember
verði búið að leggja dreifikerfi fyrir
hitaveitu og ljósleiðara um allan
þann hluta sveitarinnar sem farið
verður um að sinni.
Kjölur tekur í notkun
nýjan bíl á Kjalarnesi
Björgunarsveitin Kjölur tók á
dögunum nýjan bíl í notkun, Toyota
Landcruiser 150, árgerð 2017.
Bíllinn er á 33“ dekkjum, búinn loft-
læsingum, forgangsljósum, tetra- og
vhf fjarskiptum. Búnaður bílsins
hentar vel í vettvangshjálpar- og
almenn björgunarsveitarverkefni.
Bíllinn mun leysa af hólmi 11 ára
gamlan Hundai H1 og bera sama
kallmerki, Kjölur 2. Þá hefur sveitin
fengið að gjöf tvö fjallareiðhjól frá
GÁP. Góð reynsla er af notkun reið-
hjóla við leitar- og gæsluverkefni.
- Fréttir úr bæjarfélaginu8
Blásið var til ljósmyndasamkeppni í tilefni 30 ára afmælis Mosfells-
bæjar. Þema keppninnar var „Bærinn minn“ og voru fjölmargir
sem sendu inn skemmtilegar myndir.
Tilkynnt var um sigurvegara á bæjarhátíðinni Í túninu heima
en það var Áslaug Elín sem átti bestu myndina að þessu sinni.
Dómnefnd var sammála um að myndin væri falleg, björt og litrík.
Hún væri lýsandi fyrir náttúru, umhyggju, fjölskyldu, útivist, gleði,
kærleik og sveit í bæ. Hún félli því vel að þeim gildum sem Mos-
fellsbær stendur fyrir.
Áslaug fékk prentara að gjöf frá Nýherja
Hin árlega heilsumessa í Mosfellsbæ fer fram helgina 15.-17.
september. Heimsljós fer fram í Lágafellsskóla og er opið laugar-
dag kl. 11-17 og sunnudag kl. 11-18:30.
Það er Mannræktarfélag Íslands sem heldur utan um fram-
kvæmd Heimsljós messunnar sem haldin hefur verið frá árinu
2010. Stjórnendur messunnar eru Vigdís Steinþórsdóttir og
Guðmundur Konráðsson.
„Við komum saman og nærum líka og sál. Fjölmargir flottir
fyrirlestrar verða í boði og óvenju margir aðilar munu gefa
prufutíma í alls kyns meðferðir,“ segir Vigdís.
„Þá koma fjölmargir til að kynna og selja varning, spennandi
hlutir í hugleiðsluherberginu og ekki má gleyma heilsumatnum
hennar Dóru á Culina.“
Dagskrá helgarinnar má sjá á vefsíðunni www.heimsljos.is.
Heimsljós 2017 fer fram 15.-17. september
Árleg heilsu-
messa haldin í
Lágafellsskóla
Mæðgur taka
við verðlaunuM
sigurMyndin í ár
tekin við leirvoginn
Ljósmyndasamkeppni á 30 ára afmæli Mosfellsbæjar • Þemað „bærinn minn“
Áslaug Elín átti bestu myndina
Heilsueflandi samfélag í Mosfellsbæ í
samvinnu við TM afhenti öllum börnum í
1. og 2. bekk í grunnskólum Mosfellsbæj-
ar endurskinsvesti til eignar síðastliðinn
þriðjudag.
Göngum í skólann
Endurskinsvestin eru afhent í tengslum
við verkefnið Göngum í skólann og eru
mikilvægur liður í öryggismálum yngstu
grunnskólanemendanna sem eru að byrja
að ganga, hjóla eða ferðast á annan virkan
hátt í skólann.
Mosfellsbær biðlar til foreldra að hvetja
börnin til að nota virkan ferðamáta til og frá
skóla, finna með þeim öruggustu leiðina og
hjálpa þeim að muna eftir endurskinsvest-
inu til að auka á öryggi þeirra í umferðinni
í vetur.
Vel upplýst í skammdeginu
Öryggismál eru stór hluti af því að byggja
upp Heilsueflandi samfélag hér í bæ og
vonast Heilsuvin og Mosfellsbær, sem
standa að verkefninu, eftir því að vestin
stuðli að því að yngstu nemendurnir verði
vel upplýstir þegar skyggja tekur.
Átakið Göngum í skólann farið af stað • Mosfellsbær gefur yngstu nemendunum vesti
Fengu endurskinsvesti að gjöf
Börn í varMárskóla
í nýju vestunuM
Ólöf Sívertsen verkefnastjóri Heilsueflandi samfélags og Haraldur bæjarstjóri með kátum krökkum.