Mosfellingur - 07.09.2017, Síða 10
- Fréttir úr Mosfellsbæ10
Sunnudagaskólinn er alla sunnudaga kl. 13:00 í Lágafellskirkju
Ljúf fjölskyldustund í kirkjunni okkar
Umsjón: Hreiðar Örn og Þórður organisti
Nýsköpunarfyritækið Anitar
er komið langt með þróun á
örmerkjalesara til að auðvelda
skráningu og utanumhald hús-
dýra. Lesarinn ber heitið The
Bullet og er notaður samhliða
snjallsímaforriti.
Með þessari samsetningu á
lesaranum og snjallsímaforritum
verður hægt að skanna og vinna
með upplýsingar um fjölda dýra,
svo sem hesta, hunda og svín.
Byggt á eigin reynslu
Mosfellingurinn Karl Már Lárusson er
stofnandi Anitar: „Ég var úti í haga að sækja
hest og sá þá menn sem voru í erfiðleikum
með að finna réttan hest.
Mér þótti fyndið að fylgjast með
þessu en karmað bítur mann yfir-
leitt í bakið og ég rölti í burtu með
rangan hest þennan sama dag. Í
ljósi reynslunnar ákvað ég að setja
saman hóp fólks og reyna að finna
einfalda lausn á vandamálinu.“
Hópfjármögnun komin langt
Nú stendur yfir hópfjármögnun
á vefsíðunni Kickstarter.com og
vonast Karl til að safna 40.000 dollurum
svo hægt sé að hefja framleiðslu. Hægt er
að styðja við verkefnið og forpanta eintak af
örmerkjalesaranum til 8. september.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á
www.anitar.is en Anitar stendur fyrir Ani-
mal Intelligent Tag Reader.
Anitar stendur fyrir hópfjármögnun á örmerkjalesara
Nýjung í lestri
örmerkja í dýrum
Karl Már Lárusson
Með því að tengja örmerkjalesarann við snjallsíma er hægt að vinna með upplýsingar um búfénað.
hugbúnaður
sem léttir lífið
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir hefur gefið út
dagbók sem hún nefnir Heilsudagbókin
mín. Í vor hlaut Anna Ólöf þróunar- og
nýsköpunarviðurkenningu Mosfellbæjar
fyrir það verkefni.
„Ég var búin að ganga með þessa hug-
mynd í maganum í langan tíma og var búin
að gera margar útfærslur af bókinni áður en
endanleg útkoma varð til. Heilsudagbókin
er heildræn nálgun á bættar lífsvenjur, þar
sem lögð er áhersla á hreyfingu, mataræði
og ekki síst huglæga eða andlega vinnu,“
segir Anna Ólöf en heilsudagbókin er 6
vikna ódagsett dagbók.
Hlaut þróunar- og nýsköpunar-
viðurkenningu Mosfellsbæjar
„Það skipti mig miklu máli að hljóta
þessa viðurkenningu, þá aðallega að fá
jákvæð viðbrögð á bókina. Ég hannaði bók-
ina í rauninni sem verkfæri fyrir mig til að
öðlast betri heilsu og þannig aukin lífsgæði.
Það er því ánægjuleg viðbót ef bókin getur
hjálpa öðrum.
Bókin er einföld í notkun og hentar í
raun öllum sem langar að bæta líf sitt. Lögð
er áhersla á að fólk fari aðeins inn á við og
finni hvað það er sem það vill fá út úr lífinu
og hvað það er sem raunverulega veitir
meiri hamingju.“
Frábærar viðtökur
„Ég ákvað til að byrja með að selja bókina
í gegnum Facebook-síðuna Heilsudagbókin
mín, en svo stefni ég á koma henni í sölu
á einhverjum útsölustöðum. Bókin kostar
kr. 2.900 en verður á kynningartilboði til 15.
september á aðeins 2.500 kr.
Ég er eiginlega orðlaus yfir viðtökunum
sem bókin hefur fengið. Ef einhverjir hafa
áhuga á að vita meira eða jafnvel verða
sér út um Heilsudagbók þá endilega haf-
ið samband við mig,“ segir Anna Ólöf að
lokum.
Sex vikna ódagsett dagbók • Áhersla á bættar lífsvenjur
Anna Ólöf gefur
út heilsudagbók
Störf við liðveislu
VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja
Fjölskyldusvið Mosfellsbæjar óskar eftir starfsmönnum til að
annast liðveislu fyrir fötluð börn og ungmenni. Markmið liðveislu
er að efla einstaklinga til sjálfshjálpar, veita þeim persónulegan
stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega
einangrun, t.d. aðstoð til að njóta menningar og félagslífs.
Vinnutíminn er eftir samkomulagi.
Um fjölbreytt hlutastarf er að ræða og verkefnin áhugaverð og
lærdómsrík. Mikilvægt er að liðveitandi búi yfir lipurð í mannlegum
samskiptum, sveigjanleika, stundvísi og áreiðanleika.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags
Mosfellsbæjar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Áhugasamir hafi samband við Kristbjörgu Hjalta-
dóttur hjá fjölskyldusviði Mosfellsbæjar
í síma 525-6700, netfang khjalta@mos.is
heilsudagbókin mín
lítur dagsins lJós