Mosfellingur - 09.11.2017, Blaðsíða 2

Mosfellingur - 09.11.2017, Blaðsíða 2
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is) Í þá gömlu góðu... héðan og þaðan Íþróttahúsið að Varmá Í ljósmyndasafni Áhaldahúss Mosfellsbæjar kennir margra grasa og þegar hafa allnokkrar myndir verið birtar á þessum vettvangi. Íþróttahúsið (gamla) var byggt á árunum 1975-1977. Húsið var vígt við hátíðlega athöfn 4. desember 1977. Myndirnar sýna menn sem komu þar að verki: 1) Ólafur Friðriksson smiður, Hreinn Þorvaldsson bygging- arstjóri og aðalverkstjóri og Sigurður Einarsson (Siggi píp) sá um pípulagnir. 2) Svo þarf alltaf að hreinsa timbur, handlanga fyrir iðn- aðarmenn, sópa og halda öllu á sínum stað. Það og margt fleira sáu þessir heiðursmenn um. Gísli Magnússon frá Vatni (Leirvogsvatni) og Guðmundur Jónsson frá Laxárnesi. Áfram Afturelding MOSFELLINGUR www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is Næsti Mosfellingur kemur út 30. nóvember Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is Ritstjórn: Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is Prentun: Landsprent. Upplag: 4.000 eintök. Dreifing: Pósturinn. Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf. Próförk: Ingibjörg Valsdóttir Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag. Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti. Nú er bæjarfulltrúum tíðrætt um einelti og að samskiptum sé ábótavant. Auðvitað á fullorðið fólk sem kosið er til þessara verka að geta unnið saman. Ekki ætla ég að dæma um það hvort einelti eigi sér stað enda sem betur fer ekki á staðnum. En ef á annað borð er verið að ræða einelti kjörinna fulltrúa mætti kannski rifja upp þegar ágætur maður hér í bæ ákvað að taka þátt í meirihlutasamstarfi með sínum flokki ásamt Sjálfstæðisflokknum í bæjarstjórn. Þá gekk nú ekkert lítið á. Jafnvel hjá sama fólkinu og situr við borðið í dag? #stayclassy Svona leiðindi eru meðal þess sem gerir þetta starf óeftiróknarvert og fráhrindandi. Farið í menn frekar en málefni. Berum virðingu fyrir skoðunum annarra. Í dag eru 200 dagar til sveitarstjórnar- kosninga og miðað við umræðurnar í heita pottinum þá styttist í lýðræðis- veisluna. Verum jákvæð! Girðum okkur í brók Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings www.isfugl.is Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • fax 586 8081 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali - Frítt, frjálst og óháð bæjarblað2 21

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.