Mosfellingur - 22.08.2017, Blaðsíða 4
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
Í þá gömlu góðu...
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 7. september
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn: (blaðamenn og ljósmyndarar)
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 4.000 eintök. Dreifing: Pósturinn.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Mosfellsbær fagnar 30 ára kaup-staðarafmæli sínu um þessar
mundir. Það hefur eflaust ekki farið
framhjá Mosfellingum. Forsetahjónin
komu í opinbera heimsókn
á sjálfan afmælisdaginn
9. ágúst. Ég fékk að
fylgja þeim eftir þennan
skemmtilega dag þegar
þau heimsóttu stofnanir
og fyrirtæki í bæjarfé-
laginu og kynntu sér
það sem bærinn
hefur upp á að
bjóða. Það
var gaman
að sjá
hversu vel var tekið á móti Guðna og
Elizu hvar sem þau komu. Allir búnir
að gera fínt hjá sér og tóku þessum
heiðurshjónum fagnandi. Andrúms-
loftið var afslappað og Guðni og Eliza
eyddu hér heilum degi.
Guðni er orðinn svo góður vinur Mosfellsbæjar að hann hefur
ákveðið að þekkjast boð um að taka
þátt í Tindahlaupinu sem fram fer um
næstu helgi.
Nú er einmitt bæjarhátíðin okkar, Í túninu heima, um næstu helgi.
Mosfellingum óskum við gleðilegrar
hátíðar með von um góða skemmtun.
Heill sé forseta vorum
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • fax 586 8081 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali - Frítt, frjálst og óháð bæjarblað4
Morgunblaðið
birti, þriðju-
daginn 11.
ágúst, heila
opnu með texta
og ljósmyndum
frá þessum
viðburði. Hér
eru nokkrar
myndir í tilefni
30 ára afmælis
Mosfellsbæjar.
Gleðilega bæjarhátíð!
MOSFELLSSVEIT verður MOSFELLSBÆR 9. ágúst 1987
Lionsmenn að grilla ofan í Mosfellinga. Mikill meirihluti bæjarbúa mætti á útigrillið við Hlégarð.
Páll Guðjónsson bæjarstjóri gæðir sér
á krásunum í grillveislunni.
Kristján Þorgeirsson póstur og póstlest hans. Anna Guðný Guðmundsdóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Ólafur frá Mosfelli.
Pylsan virðist helst til stór fyrir þennan munn.
Hinir nýju bæjarfulltrúar og bæjarstjóri við merki Mosfellsbæjar: (Frá vinstri) Þengill Oddson, Aðalheiður Magnúsdóttir, Magnús Sigsteins-
son forseti bæjarstjórnar, Páll Guðjónsson bæjarstjóri, Þórdís Sigurðardóttir, Óskar Kjartansson, Helga Richter og Oddur Gústafsson.