Mosfellingur - 07.01.2016, Qupperneq 28
Benjamín Gunnar fæddist 23. október
2015 og var 2938 gr. og 49 cm.
Foreldrar hans eru Hera Brá Gunnars-
dóttir og Njáll Reynisson. Benjamín
á einn eldri bróður, Viktor.
Fjölskyldan býr í Grundartanga.
Einföld fiskisúpa
Í eldhúsinu
Berglind S. Harðardóttir leik-
skólakennari á leikskólanum
Huldubergi er í eldhúsinu að
þessu sinni. „Ég þakka Björgu
og Jónasi fyrir áskorunina. Þar
sem flestir eru væntanlega
búnir að fá nóg af kjöti eftir
jólahátíðina er ég með einfalda
og fljótlega uppskrift að fiski-
súpu. Þessi er alveg sjúklega
góð og hægt að bæta í hana
t.d. meira grænmeti, bara eftir
smekk hvers og eins.“
Fiskisúpa fyrir fjóra
• 1 laukur
• 3 frekar stórar gulrætur
• 1 rauð paprika
• 1 tsk karrý
Grænmetið skorið smátt og steikt í smjöri.
• 1 fiskteningur
• 1 grænmetisteningur
• Rúmlega 1 lítri af vatni
• Salt og annað krydd eftir smekk
• 1 haus brokkolí
settur út í og látinn
malla í 5 mínútur
• 1 rjómaostur með
kryddjurtum
• 1 piparostur
Ostarnir látnir bráðna
í súpunni (það þarf
að gefa piparostinum
dálítið góðan tíma)
Ýsa eða þorskur
skorin í strimla og
sett í pottinn (ég nota
2-4 flök).
Ég set stundum rækjur og/eða humar í
súpuna en þá bara rétt í lokin.
Súpan tekin af hellunni og látin standa í 3-5
mínútur.
Súpan verður dálítið sterk og hægt að skafa
ofan af piparostinum ef þið eruð ekki mikið
fyrir kryddaðan mat.
Borið fram með góðu brauði.
Verði ykkur að góðu.
Berglind Harðardóttir skorar á Maríu Ómarsdóttur að deila uppskrift í næsta blað.
Hver er fókus -
punkturinn?
Kæra mannvera, fallega sál, gleðilegt
nýtt ár! Megi það verða að þínu besta
hingað til.
Mig langar til þess að minna þig á það
sem þú veist dýpst í þínum hjartarótum
.
Mig langar til þess að minna þig á eilíf
an
sannleik: ÞÚ ert algjörlega einstök, st
ór-
kostleg vitsmunavera en þó hluti af gr
íð-
arstórri heild - öllu sem er! Þú ert 100
%
verðug manneskja og átt allt gott skilið
.
Þú getur verið, gert og fengið ALLT sem
þú vilt.
Grundvöllur lífs þíns er frelsi og sæla
er tilgangur þess. Náttúrulegt ástand þ
itt
er vellíðan og heilbrigði, en á endanum
tekur vanlíðan og neikvæðar hugsanir
á
sig form líkamlegra kvilla eða andlegr
a
sjúkdóma. Það er þó að sjálfsögðu ald
rei
of seint að taka fókuspunktinn sinn af
því sem kallar fram neikvæðar tilfinn-
ingar og færa hann yfir á það sem veit
ir
manni gleði og þá mun líkami þinn og
hugarfar endurheimta sitt heilbrigða o
g
náttúrulega ástand.
Til þess að hjálpa okkur öllum við
að halda okkur í jafnvægi og í jákvæðr
i
orku erum við með algjörlega skothel
t
svokallað „guidance system“. Það er
tilfinningarnar innra með okkur sem
mynda einskonar leiðsögukerfi sem v
ið
höfum val um að hlusta á eða ekki. Ef
það
sem við erum að veita athygli einmitt
núna framkallar jákvæða tilfinningu,
erum við á réttri leið. Ef það hinsvegar
framkallar neikvæða tilfinningu, erum
við þó í rauninni ekkert á rangri leið,
en við værum allavega á mjög góðri le
ið
með að draga til okkar fleiri neikvæða
r
birtingarmyndir af lífinu.
Eitt af aðal lögmálum alheimsins er
lögmál aðdráttaraflsins. Orka af sömu
tíðni dregst hver að annarri og ALLT e
r
orka. Ég er orka, þú ert orka, hugsanir
n-
ar okkar, náttúran, vindurinn, allt efn
i og
allar lífverur - allt sem er! Ef orkutíðn
in
sem þú, hugsanir þínar og tilfinning-
ar, titra í er há og jákvæð, dregur þú
(orkan þín), til þín fólk í sömu orku au
k
upplifana og hluta sem styðja við og
auka þá háu, jákvæðu orkutíðni sem þ
ú
æfir mest. Það gerirðu með því að hafa
fókuspunktinn oftar á því sem framka
llar
upplifun á vellíðan, gleði og þakklæti.
Heimurinn skilur ekki hvað þú segir,
heldur hvað þú meinar. Tilfinningarna
r
ljúga ekki.
Láttu það hvernig þér líður, þig mestu
máli skipta.
Svanhildur
- Heyrst hefur...28
Hjá Berglindi Harð
ar
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Heyrst Hefur...
...Ingibjörg Pálma fyrrum ráðherra hafi
þjónað til borðs á skötuhlaðborðinu
í Hlégarði á Þorlák en hún er móðir
Ísólfs verts á staðnum.
...að Bubbi hafi ekki mætt á aðventu-
kvöld samfylkingarinnar vegna
veikinda.
...að Þorrablót Aftureldingar verði
haldið í íþróttahúsinu laugardaginn
23. janúar og er miðasala hafin á
Hvíta riddaranum.
...að gríðarsterkur miðjumaður frá
eistlandi sé væntanlegur til liðs við
handknattleikslið Aftureldingar um
helgina.
...að Mosfellingurinn Björgólfur thor
hafi mætt með börnin í jólabaðið í
Lágafellslaug á aðfangadag.
...að farin sé af stað undirskriftasöfn-
un meðal sóknarbarna til að fá fram
prestskosninu um lausa stöðu við
hlið ragnheiðar sóknarprests.
...að nokkur hundruð manns séu búin
að læka hvatningarsíðu á facebook
undir nafninu svanþór á Bessastaði.
...að stormsveitin verði með sína
árlegu þrettándatónleika í Hlégarði
á laugardaginn.
...að siggi Borgar hafi verið valinn
toppmaður uMfus í annað sinn.
...að ungir kylfingar úr golfklúbbnum
séu að selja glæsilegt Mosó-dagatal.
...að Lalli ljóshraði hafi orðið sextugur
á gamlársdag.
...að egill og Gyða eigi von á nýrri
stelpu í fjölskylduna á árinu.
...að aldrei hafi nokkur maður hlotið
eins skjóta frama innan Gufufé-
lags Mosfellsbæjar og Guðbjörn
sigvaldason. Hann var skipaður heil-
brigðisfulltrúi og hlaut riddarakross
félagsins á aðalfundi á gamlársdag.
...að biskup hafi búið til nýja stöðu fyr-
ir sr. skírni sem hætti í Lágafellssókn
á dögunum. staðan var ekki auglýst.
...að Mosfellingurinn steindi jr. hafi
farið mikinn í áramótaskaupinu.
...að bandarískur ferðamaður sé búinn
að fjárfesta í mosfellska sprotafyrir-
tækinu IceWind fyrir tugi milljóna.
...að sigga Indriða sé að hætta störfum
á bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar.
...að Bingi og Lotta hafi eignast stúlku
í byrjun vikunnar.
...að Gústi Linn sé búinn að raka sig.
...að hægt sé að kjós íþróttamenn
Mosfellsbæjar á www.mos.is
...að Völva Mosfellings spái því að
hótel muni rísa í sunnukrika á árinu.
...að það hafi verið stappað og mikil
stemning á Hvíta á áramótunum.
...að þorrablót Dalbúa verði haldið
laugardaginn 30. janúar.
...að þrettándagleði Mosfellinga fari
fram kl. 18 á laugardaginn.
mosfellingur@mosfellingur.is