Mosfellingur - 23.08.2016, Blaðsíða 12

Mosfellingur - 23.08.2016, Blaðsíða 12
 - www.mosfellingur.is12 VÖFFLUKAFFI Í FMOS Laugardaginn 27. ágúst kl. 14-17 ÓperUKÓr MOSFeLLSbæjAr SyngUr KL. 15:30. Nemendafélag Framhaldsskóla Mos- fellsbæjar verður með vöfflukaffi í skólanum og rennur ágóðinn til Reykjadals þar sem Styrktar- félag lamaðra og fatlaðra rekur sumar- og helgardvöl fyrir fötluð börn og ungmenni. Fimmtudaginn 25. ágúst opnar í Listasal Mosfellsbæjar, í tengslum við bæjarhátíð- ina Í túninu heima, sýningin Smiður eða ekki. Sýningin hverfist um ævi og störf Birtu Fróðadóttur (f. 1919 d. 1975) innan- hússarkitekts og húsgagnasmiðs. Birta var fædd Birte Brow Sørensen í Danmörku árið 1919 og fluttist síðar til Íslands árið 1945. Birta settist að í Mos- fellsdal ásamt eiginmanni sínum Jóhanni Kr. Jónssyni garðyrkjubónda í Dalsgarði. Hún var fyrsta konan hér á landi menntuð í innanhússarkitektúr og var þar að auki með sveinspróf í húsgagnasmíði. Dreymdi um að opna húsgagnaverslun Segja má að á sínum tíma hafi Birta búið yfir fátíðri og framandi sérþekkingu á viðum bæði handverks og hönnunar hér á landi. Hana dreymdi um að opna húsgagnaversl- un og vera þar með lítið verkstæði þar sem hún gæti dyttað að og gert upp mublur. En í tímans rás þá varð starf hönnuðarins að lúta í lægra haldi fyrir stóru búi og barna- skara. Birta sinnti hlutverki sínu sem hús- móðir af miklum eldmóð, tók virkan þátt í kvenfélagsstörfum og var ávallt boðin og búin að hjálpa sveitungum sínum. Opnun sýningar á fimmtudaginn Á sýningunni í Listasalnum er frekara ljósi varpað á ævi og störf Birtu í gegnum teikningar, texta og ljósmyndir. Opnun sýn- ingarinnar verður fimmtudaginn 25. ágúst kl. 17-19 og eru allir hjartanlega velkomnir. Á laugardaginn verður Birta á svæðinu með leiðsögn um sýninguna kl. 13. Sýningin mun standa yfir til 17. september og er opin á opnunartíma Bókasafnsins. Að sýningunni stendur sonardóttir Birtu og alnafna, Birta Fróðadóttir arkitekt. Birta Fróða setur upp sýningu um ömmu sína og alnöfnu Smiður eða ekki Ljón norðursins á Gallerí Hvirfli Á bæjarhátíðinni um komandi helgi mun Bjarki Bjarnason lesa upp úr væntanlegri bók sinni sem ber heitið Ljón norðursins og fjallar um ævi Leós Árnasonar (1912-1995). Leó var á sínum tíma umsvifamikill athafnamaður sem sneri sér að myndlist og skáldskap á efri árum og tók upp listamannsnafnið Ljón norðursins. Upplesturinn fer fram á Gallerí Hvirfli í Mosfellsdal á laugardaginn og hefst kl. 13. Nokkur myndverk eftir Ljón norðursins verða til sýnis á staðnum og að upplestri loknum mun Kammerkór Mosfellsbæjar syngja nokkur lög. Birta fróðadóttir innanhúsarkitekt og húsgagnasmiður Birta og jói með fjölskylduna sína í dalsgarði Sveinn Óskar Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri og talsmaður FGMOS, fulltrúaráðs grunnskóla- foreldra í Mosfellsbæ, býður sig fram í 3.-4. sæti í prófkjöri Sjálf- stæðisflokkins í Suðvesturkjör- dæmi. Auk þess að hafa starfað að fé- lagsmálum um árabil hefur Sveinn Óskar starfað innan Sjálfstæðisflokkins frá unga aldri, formaður Fjölnis FUS í Rangár- vallasýslu, sat í stjórn SUS um árabil fyrir Suðurkjördæmi, í stjórn og sem formaður Sjálfstæðisfélags Mosfellinga í Mosfellsbæ. Sveinn hefur átt sæti í umhverfisnefnd Mosfellsbæjar fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Sveinn er fastur penni á Eyjunni og hefur ávallt látið til sín taka um margvísleg mál- efni. Sveinn ætlar sér að slá nýjan tón innan vébanda Sjálfstæðis- flokksins og á Alþingi Íslendinga fái hann til þess brautargengi hjá flokksfélögum sínum og kjósend- um í Suðvesturkjördæmi. Sveinn Óskar er 48 ára, hefur BA gráðu í heimspeki og hagfræði, MBA gráðu og MSc meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja. Helstu áherslur Sveins eru fjölskyldumál, skólamál, málefni aldraða og öryrkja. Sveinn leggur áherslu á að efla gömul fyrirheit Sjálfstæðisflokksins „stétt með stétt“. Sveinn Óskar er búsettur í Mosfellsbæ ásamt eiginkonu sinni Danith Chan og tveimur dætrum þeirra hjóna, Sylvíu Gló Chan 15 ára og Ingrid Lín Chan 13 ára. Sveinn Óskar gefur kost á sér í 3.-4. sæti Í tengslum við bæjarhátíðina verður sett upp hernámssýning í gamla húsnæði Ís- landsbanka, Þverholti 2. Það er Tryggvi Blumenstein sem stendur fyrir sýningunni en hann hefur frá unga aldri safnað ýmsum munum sem tengjast hernámsárunum á Íslandi. Til sýnis eru ljósmyndir, fatnaður, dagblöð, bækur og annað sem tengist stríðsárunum í kringum 1939-1945 og þá sérstaklega Mosfellsbæ. Áhuginn kviknaði snemma „Afi minn var þýskur en bjó á Íslandi fyrir stríð. Vegna þjóðernis síns var hann tekinn til fanga af Bretum og settur í fangabúðir á eyjunni Mön. Þetta hafði mikil áhrif á pabba minn sem var ekki nema 10 ára þegar faðir hans var tekinn frá fjölskyld- unni og vissulega hefur þetta markað spor fyrir fjölskylduna alla. Eftir stríð var afi síðan sendur til Þýskalands og kom svo þaðan aftur til Íslands,“ segir Tryggvi en áhugi hans á hernáminu og stríðsminjum kviknaði snemma. Safnið stækkar hratt „Ég hef fengið marga af þessum munum gefins en annað hef ég keypt. Ég þigg með þökkum allar ábendingar frá fólki, það er nú oft þannig að það sem fólki þykir kannski ómerkilegt gæti mér þótt vera gersemi. Safnið stækkar hratt en draumurinn er að safnið verði að almenningssafni í fram- tíðinni, þar sem þessum mestu umbrota- tímum á Íslandi verði gerð góð skil. Ég held úti heimasíðunni www.fbi.is þar sem má finna ýmsar upplýsingar frá þessum tím- um og hægt er að hafa samband við mig í gegnum síðuna.“ Sýningin er opin frá fimmtudegi til sunnudags og má finna nánari tímasetn- ingar á dagskrá hátíðarinnar í miðopnu blaðsins. Áhugaverð sýning Í túninu heima • Munir frá stríðsárunum Hernámssýning Tryggva Blumenstein tryggvi hefur safnað stríðsmunum frá unga aldri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.