Mosfellingur - 23.08.2016, Blaðsíða 50

Mosfellingur - 23.08.2016, Blaðsíða 50
Finndu okkur á Faxafeni 11 Sími 534 0534 Fánalengjur úr plasti á aðeins 990 kr og fleira skraut í bleiku, gulu, rauðu og bláu - Aðsendar greinar50 Heilbrigðismálin verða í forgangi hjá Sjálfstæðisflokknum á næsta kjörtímabili eins og formaður flokksins hefur boðað. Ég fagna þeirri sýn og er þeirrar skoðunar að enda þótt vægi heil- brigðismála hafi aukist verulega undir forystu núverandi ríkis- stjórnar þurfi að gera enn betur á næstu árum. Þar er að mörgu að hyggja. Við þurfum að efla enn frekar heilsu- gæsluna og styrkja okkar aðal sjúkrahús Landspítalann við Hringbraut. Fyrir liggur áætlun um meiriháttar endurbætur og end- urbyggingu spítalans, auk kaupa á nýjum tækjum. Hafin er bygging sjúkrahótels á lóð spítalans við Hringbraut og miklu skiptir að hefjast sem fyrst handa við byggingu nýrrar bráðadeildar. Mín skoðun er sú að einnig sé tímabært að skoða og ræða byggingu annars full- komins hátæknispítala, sem við Íslending- ar þurfum að geta tekið í notkun eftir 20-30 ár. En það er verkefni númer tvö, á eftir því að klára margsamþykkta uppbyggingu við Hringbraut. Eldri borgurum þessa lands fer hratt fjölgandi á næstu árum og við þurfum að geta hlúð að þeim, hvort heldur er með heimahjúkrun eða á hjúkrunarheimilum. Börn og unglingar eiga því miður í vaxandi mæli við ýmis kvíðavandamál að stríða og þeim vanda verðum við að mæta og tryggja að þeim líði vel og þau blómstri. Þau eru jú framtíðin. Langveikum börnum fjölgar hér á landi. Þau eru oft að kljást við sjaldgæfa og mjög erfiða sjúkdóma og eiga að fá bestu þjónustu sem völ er á. Þetta eru dæmi úr fjölbreyttri flóru við- fangsefna heilbrigðisþjónustu sem þarf að taka myndarlega á. Sjálfstæðisflokkurinn lofar aukinni áherslu á bætta samfélags- þjónustu, minni greiðsluþátttöku sjúklinga, eflingu Landspítalans og bætta heilbrigðis- þjónustu með stórauknum fjárframlögum á næsta kjörtímabili. Þetta getum við ekki síst vegna þess að ríkissjóður stendur vel eftir okkar ríkisstjórn. Staðfesta í ríkisfjármálum er og verður kjölfestan í okkar stefnu. Ríkissjóður hefur verið rekinn með afgangi og áhersla lögð á að greiða niður skuldir og lækka vaxtabyrð- ina. Lækkun vaxtagreiðslna er fundið fé og við munum einmitt uppskera af þessum verkum á næstu árum. Mitt aðalkeppikefli er að Íslandi geti í ná- inni framtíð státað af heilbrigðisþjónustu í fremstu röð. Annað er ekki í boði. Kær kveðja, Elín Hirst alþingismaður. Ég býð mig fram í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Suðvesturkjördæmi 10. september nk. Heilbrigðisþjónusta í fremstu röð Vonandi hafa allir notið sum-arsins í faðmi fjölskyldu og/eða vina og náð að hlaða sig orku og jákvæðni fyrir veturinn. Við í Heilsueflandi samfélagi ætl- um að halda áfram uppteknum hætti og munu haustið og vetur- inn bera ýmislegt spennandi og skemmtilegt í skauti sér. „Hugsaðu jákvætt, það er léttara“ Sýnt hefur verið fram á það að hafa já- kvæðni í orði fyrir augunum hjálpar okkur við að beina huganum á jákvæðar brautir og þá verður lífið einhvern veginn auðveld- ara. Margir hafa orðið sér úti um myndir og skilti með alls kyns jákvæðni og hafa þeir hinir sömu alveg klárlega upplifað þessi áhrif á eigin skinni. Eitt síðasta verk Vinnuskóla Mosfellsbæjar nú í sumar að einmitt að mála jákvæð skilaboð til bæjar- búa á gangstéttir bæjarins. Frábært framtak til að hjálpa okkur að hugsa jákvætt því það er í raun og sann léttara! Í túninu heima Bæjarhátíð okkar Mosfellinga, Í tún- inu heima, verður haldin með pompi og prakt núna um helgina. Þetta er sannköll- uð fjölskylduhátíð með heilsueflandi ívafi þar sem aðal markmiðið er að ungir sem aldnir komi saman, auðgi andann og njóti samverunnar með fjöldskyldu og vinum. Dagskráin er að venju glæsileg en hana má finna á heimasíðu bæjarins og að sjálfsögðu hér í Mosfellingi. Tindahlaupið Eitt skemmtilegasta hlaup sum- arsins, Tindahlaupið í Mosfells- bæ, er framundan og verður einn af hápunktum bæjarhátíðarinnar Í túninu heima. Í þessu náttúru- og/ eða utanvegahlaupi verða fjórar út- færslur í boði, þ.e. 7 tindar (37 km), 5 tindar (35 km), 3 tindar (19 km) og 1 tindur (12 km). Hlaupið verður laug- ardaginn 27. ágúst og því tilvalið að reima á sig skóna og velja sér áskorun við hæfi. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðum Mosfellsbæjar mos.is og hlaup.is Fellaverkefni og ratleikur Við munum í samvinnu við Ferðafélag Íslands blása á ný til Fellaverkefnis nú í haust með aðeins breyttu sniði þar sem göngunum verður dreift yfir lengri tíma en í fyrra. Við munum einnig ýta úr vör ratleik sem við höfum verið að útbúa í samvinnu við nemendur í Framhaldsskólanum í Mos- fellsbæ og Ferðafélagið. Nánari upplýsing- ar um þetta hvort tveggja verður að finna í næsta Mosfellingi þannig að þið getið strax farið að láta ykkur hlakka til. Það verður sem sagt af nógu að taka og hvetjum við ykkur sem fyrr til að taka þátt í þessu frábæra verkefni sem Heilsueflandi samfélag er. Hlúum að því sem okkur þykir vænt um og verum til fyrirmyndar! Ólöf Kristín Sívertsen, lýðheilsufræðingur og verkefnisstjóri Heilsueflandi samfélags í Mosfellsbæ Upp, upp mitt geð HÁHOLTI 14 I 270 MOSFELLSBÆ I SÍMI 586 1210 I NETFANG: bymo@internet.is Kr. 400 - BLÖÐRUR 10 stk. BORÐAR 20 mtr. Kr. 800 - FÁNAR Á BANDI 30 stk. / 11 mtr. Kr. 2.800 - FÁNAR 140 x 90 cm. m/kósum - 2600 kr. FÁNAR Á PRIKI - 46 x 32 cm. - 490 kr. FÁNAR Á BÍLA - 640 kr. LITASKREYTINGAR FYRIR BÆJARHÁTÍÐINA ÚRVALIÐ HEFUR ALDREI VERIÐ MEIRA GLÖS 8 stk. í pakka Kr. 380 - DISKAR 8 stk. í pakka Kr. 380 - ÍDRAGANLEGAR SLAUFUR 3 stk. Kr. 800 - Kr. 650 -BUFFNÝTT HÁHOLTI 14 I 270 MOSFELLSBÆ I SÍMI 586 1210 I NETFANG: bymo@internet.is Kr. 400 - BLÖÐRUR 10 stk. BORÐAR 20 mtr. Kr. 800 - FÁNAR Á BANDI 30 stk. / 11 mtr. Kr. 2.800 - FÁNAR 140 x 90 cm. m/kósum - 260 . FÁNAR Á PRIKI - 46 x 32 cm. 49 . FÁNAR Á BÍLA - 640 kr. LITASKREYTINGAR FYRIR BÆJARHÁTÍÐINA ÚRVALIÐ HEFUR ALDREI VERIÐ MEIRA GLÖS 8 stk. í pakka Kr. 380 - DISKAR 8 stk. í pakka Kr. 380 - ÍDRAGANLEGAR SLAUFUR 3 stk. Kr. 800 - Kr. 650 -BUFFNÝTT HÁHOLTI 14 I 270 MOSFELLSBÆ I SÍMI 586 1210 I NETFANG: bymo@internet.is Kr. - 10 stk. BORÐAR 20 mtr. Kr. 800 - F 30 stk. / . . . - FÁNAR 140 x 9 c . FÁNAR Á P I I - LITASKREYTINGAR FYRIR BÆJARHÁTÍÐINA ÚRVALIÐ HEFUR ALDREI VERIÐ MEIRA GLÖS 8 stk. í pak a Kr. 380 - DISKAR 8 stk. í pak a Kr. 380 - ÍDRAGANLEGAR SLAUFUR 3 stk. Kr. 800 - Kr. 650 -BUFFNÝT HáHolti 13-15 - Sími: 416 0100 Fæst nú í Apótek MOS Gleðilega bæjarhátíð!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.