Mosfellingur - 23.08.2016, Blaðsíða 44

Mosfellingur - 23.08.2016, Blaðsíða 44
 - Íþróttir og aðsent efni44 Þú? Félaginn kemur á verkstæðið til bifvélavirkjans vinar síns og sest inn á kaffistofuna. Bifvélavirkinn hellir uppá og þeir fara að spjalla. „Áttu eitthvert bakkelsi?“ spyr félaginn. „Nei, því miður,“ svarar bifvélavirkinn. „Ég er að reyna að passa línurnar. Og talandi um það, rosalega hefur þú lagt af.“ „Já, takk fyrir það,“ svarar félaginn, hálf vandræðalegur yfir hrósinu. „Ertu búinn að vera í rækt- inni eða eitthvað?“ „Nei, alls ekki,“ svarar hinn í flýti. „Ég hef engu breytt í matnum og hreyfi mig ekki neitt. Ég hef bara enga orku í hreyfingu. Kem bara heim úr vinnunni, leggst í sófann og ligg þar fram eftir kvöldi. Satt best að segja er þetta orkuleysi óþolandi.“ „Hmm, ertu nokkuð líka alltaf þyrstur og alltaf á klósettinu?“ sagði bifvélavirkinn. Félaginn varð svo hissa að augun ætluðu út úr höfðinu á honum. Á endanum spurði hann vin sinn hálf máttlaus: ,,Hvernig vissir þú þetta?“ Bifvélavirkinn svararði engu heldur stóð upp, náði í blað úr prentaranum og byrjaði að skrifa • Þyngdartap • Þreyta • Slen • Oft að míga • Sífellt þyrstur „Kannastu við þessi einkenni?“ spurði bif- vélavirkinn. Félaginn las punktana hvern á fætur öðrum og sagði svo: „Talaðu, maður!“ „Sko, ég vil ekki hræða þig,“ sagði bifvéla- virkinn, „en ég er búinn að vera með sykursýki í nokkur ár og því þekki ég helstu einkennin. Auð- vitað gæti eitthvað annað hrjáð þig en ég myndi í þínum sporum panta mér tíma hjá lækni hið snarasta.“ Án þess að hugsa sig tvisvar um þreif félaginn upp símann og sló inn númerið á heilsugæsl- unni og rauk út. Bifvélavirkinn leit á símann sinn og sá að hann er að verða of seinn í fótaaðgerð. Sykur- sjúkir þurfa að hugsa betur um fæturna sína því fætur þeirra eru viðkvæmari en annarra. Lítið sár getur valdið því að fjarlægja þurfi útlim á endanum. Bifvélavirkinn er staðráð- inn í að halda öllum sín- um útlimum sem lengst og mætir því reglulega í fótaaðgerð.  JónaBjörgÓlafsdóttir Löggilturfótaaðgerða- fræðingur  Líkamiogsál K y n n i n g Mikill stígandi hefur verið í kvennaliði Hvíta Riddarans í síðustu leikjum og kom að því að fyrsti sigur liðsins kom í höfn í leik gegn Skínanda sem fram fór á Varmárvelli 6. ágúst. Vannst sá leikur 2-0 með mörkum frá Hildi Ýr Þórðardóttur og Auði Lindu, en sú síðarnefnda hefur skorað fjögur mörk í sumar og verið hluti af mikilvægum kjarna liðsins frá upphafi. Mikill meðbyr hefur verið með starfinu það sem af er sumri og vilja stelpurnar og aðstandendur liðsins koma sérstökum þökkum á framfæri til styrktaraðila. Síðasti leikur tímabilsins hjá stelpunum fer fram á Víkingsvelli á miðvikudaginn kl. 18:00 Flottasta lið 4. deildarinnar Karlalið Hvíta Riddarans hefur gert það að venju sinni að komast í úrslitakeppnina síðustu ár sem býður upp á sæti í 3. deild- inni. Í ár er engin breyting þar á, enda liðið taplaust eftir tíu leiki þegar þetta er skrifað. Hafa þeir unnið níu þeirra og gert eitt jafn- tefli sem staðsetur þá í efsta sæti riðilsins með sex stiga forskot á það næsta. Breiður hópur hefur haldist til lengri tíma sem stuðlar að samkeppni í liðið, flott stemning myndast og góð störf hafa verið unnin innan félagsins sem skilar flottasta liði 4. deildarinnar. Haukur Eyþórsson hef- ur farið hamförum í markaskorun og skor- að sextán mörk í tíu leikjum. Markatala liðsins er ótrúleg eða 53-11. Leika gegn Ísbirninum á fimmtudaginn Næsti leikur liðsins fer fram fimmtudag- inn 25. ágúst kl. 18:30 á Varmárvelli þegar Ísbjörninn kemur í heimsókn. Eftir hann tekur við úrslitakeppnin sem gefur laust sæti í 3. deild á næsta ári. Hefst hún laug- ardaginn 3. september en ekki er komið í ljós hver mótherjinn verður. Hvíti Riddarinn vill minna bæjarbúa á Facebook síðu sína og hvetur alla til þess að koma og styðja við bakið á báðum liðum í komandi leikjum og skapa brjálaða stemn- ingu í kringum komandi úrslitakeppni. Stuðningur Mosfellinga skiptir máli. Hvíti Riddarinn hefur átt góðu gengi að fagna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.