Mosfellingur - 23.08.2016, Blaðsíða 48
Mosfellingurinn Guðni Valur Guðnason tók þátt á Ólymp-
íuleikunum í Ríó í kringlukasti. Guðni sem er aðeins tví-
tugur hefur stundað kringlukast í tvö ár.
Guðni æfir með ÍR og tók þátt á sínu fyrsta stórmóti í
Amsterdam fyrr í sumar. Þar náði hann lengsta kasti sem
Íslendingur hefur náð á stórmóti, en hann kastaði 61,20
metra og hafnaði í 22. sæti. Guðni Valur náði ekki lágmarks
árangri inn á leikana en Ísland á rétt á einu sæti fyrir karls-
kynskeppanda án lágmarka og hlaut Guðni það sæti.
Guðni setur markið hátt, hann endaði í 21. sæti í Ríó og
stefnir á verðlaunasæti á Ólympíuleikunum í Tokýó 2020.
Guðni Valur tók einnig þátt á Norðurlandamóti í Finn-
landi um síðustu helgi. Hann gerði sér lítið fyrir og varð
Norðurlandameistari í kringlukasti í flokki 23 ára og yngri.
Guðni kastaði 61,01 metra.
Í júlí tók P-1 elsti keppnishópur fim-
leikadeildar Aftureldingar þátt í fim-
leikahátíðinni EuroGym sem haldin var
í Ceské Budejovice í Tékklandi.
Eurogym er evrópsk fimleikahátíð
sem haldin er annað hvert ár en í sum-
ar tóku 3.900 ungmenni á aldrinum 12-
18 ára þátt, þar af 120 íslenskir fimleika-
iðkendur.
Þátttakendur sýna atriði sem þeir hafa
æft víðsvegar um borgina, auk þess sem
þeir taka þátt í fjölbreyttum íþróttavinnu-
búðum sem þeir fá úthlutað. Hátíðin
stendur yfir í fimm daga og hefst með
opnunarhátíð og endar síðan með gala-
sýningu og lokahófi fyrir ungmennin.
Þakkir til bæjarbúa
Stelpurnar okkar sýndu glæsilegt atrið
á útisviði við stærsta leikvang borgar-
innar fyrir fjölmenni í dásemdarveðri.
Ferðin var í alla staði vel heppnuð og
stóðu stelpurnar sig með prýði og voru
Aftureldingu til sóma.
Stelpurnar í P-1 hafa undanfarið ár
safnað sér fyrir ferðinni með fjáröflun-
um og vilja þær þakka bæjarbúum kær-
lega fyrir stuðninginn.
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu hefur
verið í toppbaráttu í allt sumar og á góðri
siglingu, í öðru sæti með 35 stig eftir 17
umferðir þar sem 5 leikir af síðustu 6 hafa
unnist.
Nú þegar 5 umferðir eru eftir, er liðið í
dauðafæri að komast upp um deild og það
stefnir í hörkuleik á móti Gróttu á Seltjarn-
arnesinu á fimmtudaginn kl. 19:15. Liðin
eru jöfn að stigum og um svokallaðan 6
stiga leik að ræða. Það verður gríðarmikil
lyftistöng fyrir knattspyrnustarfið í Mos-
fellsbæ ef liðið kemst upp um deild. Mos-
fellingar eru því hvattir til að mæta á Sel-
tjarnarnesið og hvetja strákana til sigurs.
Nokkrir af ungu leikmönnum okkar
hafa verið að blómstra í sumar, m.a. Arnór
Breki Ásþórsson sem var valinn maður 16.
umferðarinnar og á laugardaginn skoraði
hann 2 mörk og lagði upp eitt í 4-0 sigri á
móti KF.
- Íþróttir48
Guðni Valur á Ólympíuleikunum í ríÓ
Guðni Valur kastar
krinGlunni í ríó
Fimleikastelpur í Tékklandi
mosfellinGar
á fimleikahátíð
Knattspyrnudeild
fær átta milljónir
KSÍ hefur úthlutað styrkjum til
knattspyrnufélaga úr EM sjóðn-
um en það er sjóður sem skilaði
sambandinu verulegum fjármunum
í tengslum við gott gengi íslenska
karlalandsliðsins á EM í knatt-
spyrnu í sumar. Afturelding hlaut
kr. 8.048.000. og er það krafa KSÍ að
fjármununum skuli eingöngu varið
til knattspyrnutengdra verkefna.
Þessar greiðslur eru því fengur til
að efla starf knattspynudeildar
Aftureldinga og munu allir iðkendur
njóta góðs af.
Gríðarlega mikilvægur leikur gegn Gróttu á fimmtudaginn • Liðin berjast um sæti í 1. deild
afturelding í dauðafæri
arnór breki hefur Verið
á skotskónum í sumar