Mosfellingur - 23.08.2016, Blaðsíða 20

Mosfellingur - 23.08.2016, Blaðsíða 20
Hafðu samband í síma 800 7000 eða í netspjalli á siminn.is Þegar þú velur Endalausa Snjallpakkann með Fjölskyldukorti þá nær það ekki aðeins yfir öll símtöl og SMS fyrir þig og makann, heldur geturðu bætt við allt að 11 börnum, 18 ára eða yngri, fyrir 0 kr. stykkið. Já, þú getur svo sannarlega meira með Símanum! Fjölskyldan greiðir 8.100 kr. fyrir alla Endalaus Snjallpakki – 30 GB* 6.100 kr. Fjölskyldukort – Samnýtt gagnamagn 2.000 kr. Allt að 11 Krakkakort! – 1 GB 0 kr. *Stækkaðu í 100, 200 eða 300 GB Norræn vinabæjaráðstefna fór fram í Thi- sted í Danmörku dagana 14.-17. ágúst. Þar komu saman fulltrúar vinabæjanna til þess að sækja metnaðarfulla ráðstefnu um samvinnu og þróun bæjarfélaga. Sam- tímis var haldin lista- og menningarhátíð og unglingaverkefni með jaðaríþróttir og myndbandagerð sem þemu. Þátttakendur Mosfellsbæjar á ráðstefn- unni voru Hreiðar Örn Zoega Stefánsson formaður menningarmálanefndar, Marta Hildur Richter forstöðumaður Bókasafns Mosfellsbæjar, Hugrún Ósk Ólafsdóttir verkefnisstjóri á samskipta- og þjónustu- sviði, Helga Jónsdóttir tengiliður og ritari vinabæjasamstarfsins, Hanna Bjartmars Arnardóttir formaður Norræna félagsins í Mosfellsbæ og Atli Guðlaugsson skólastjóri Listaskólans, en hann tók einnig þátt í lista- hátíðinni. Styrkleikar í eigin héraði Thisted hefur undanfarin ár lagt mikla áherslu á styrkleika í eigin héraði og stuðn- ing við ýmis verkefni þar að lútandi. Á ráð- stefnunni var sagt frá nokkrum verkefnum, m.a. undirbúningi að „menningarrými“ (Kulturrummet) sem felur í sér tengingu tónlistarskóla, bókasafns, frístundamið- stöðvar fyrir unglinga og lystigarðs með leiksviði og áhorfendapöllum. Margt fróðlegt var á dagskrá í tengslum við umfjöllunarefni ráðstefnunnar, m.a. skoðuðu þátttakendur stærstu vindmyllu í heimi, 220 m háa. Nýr samstarfssamningur til fimm ára Bæjarstjórar og staðgenglar þeirra skrif- uðu undir nýjan samstarfssamning vina- bæjanna sem gildir næstu fimm ár. Áfram er lögð mikil áhersla á mikilvægi norrænnar samvinnu og samvinnu vinabæjanna, sem geta miðlað þekkingu og reynslu. Thisted reið að þessu sinni á vaðið með því að halda Lista- og menningarhátíð samhliða ráðstefnunni. Frá öllum bæjun- um komu listamenn sem sýndu listir sína á hátíðinni og fengu ráðstefnugestir tækifæri til að fylgjast með. Fyrir hönd Mosfellsbæj- ar tóku þátt Atli Guðlaugsson, Agnes Wild og Sigrún Harðardóttir. Vinabæjarráðstefna í Mosfellsbæ 2018 Unglingar frá bæjunum tóku þátt í verkefni þar sem þeir fengu að upplifa ýmsar hliðar á jaðaríþróttum. Þeir gerðu myndbönd sem sýnd voru á hátíðarkvöldi ráðstefnunnar og var ljóst að þar fór sam- stilltur, jákvæður og skemmtilegur hópur. Fulltrúar Mosfellsbæjar voru þau Birta Rakel Óskarsdóttir, Eyrún Embla Andra- dóttir, Gabríel Tumi Finnbogason og Hlyn- ur Sævarsson. Hópstjóri þeirra var Hanna Lilja Egilsdóttir. Unglingarnir eignuðust nýja kunningja og munu hafa samband við marga þeirra áfram, m.a. á heimasíðu sem stofnuð var fyrir verkefnið. Þau segja frá ævintýrum sínum í næsta Mosfellingi. Það kemur í hlut Mosfellsbæjar að halda vinabæjaráðstefnu árið 2018. - Fréttir úr Mosfellsbæ20 notuð föt til sölu Aðalmerki | Samsetning | Mosfellsbæ Rauði krossinn í Mosfellsbæ verður með til sölu notuð föt fyrir alla aldurshópa á skottmarkaðnum á planinu við Bónus á bæjarhátíðinni Í túninu heima laugardaginn 27. ágúst kl. 13-16. Komdu við og g rðu góð kaup! Einnig verður hægt að fá bæklinga og upplýsingar um starf vetrarins en Rauði krossinn þarf alltaf fleiri sjálfboðaliða til að sinna hinum ýmsu verkefnum. Fimm af fulltrúum Mosfellsbæjar. Frá vinstri: Marta Hildur Richter, Helga Jónsdóttir, Hanna Bjartmars, Hreiðar Örn Stefánsson og Hugrún Ósk Ólafsdóttir. Á myndina vantar Atla Guðlaugsson. Metnaðarfull ráðstefna í Thisted • Góð norræn samvinna Mosfellingar á vinabæjarráðstefnu Fulltúar vinabæjanna við undirritun nýrra samninga. Hreiðar Örn er fulltrúi Mosfellsbæjar. Töfrasýning fyrir börnin barnadagskrá á túninu við Hlégarð á laugardaginn kl. 13:00 fríTT á svæðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.