Mosfellingur - 22.10.2015, Blaðsíða 20
Alexander eða Lexi eins og hann er ávallt kallaður tók á móti mér á fallegu heimili sínu í Mosfellsdaln-
um. Á hlaðinu mátti sjá bíla, fjórhjól, vél-
sleða og mótorhjól svo eitthvað sé nefnt
svo það fer ekki framhjá neinum hver
áhugamálin eru á þessum bænum.
Það þarf ekki að vera lengi í návist Lexa
til að sjá að þar er mikill ofurhugi á ferð,
hann er hjálpsamur með eindæmum,
hugsar stórt og er maður framkvæmda.
Alexander er fæddur í Reykjavík 25. júní
1975. Foreldrar hans eru þau Rósa Vestfjörð
Guðmundsdóttir forstjóri og Kári Þórðar-
son prentari. Alexander á tvo bræður, þá
Þórð og Ólaf.
„Foreldrar mínir fluttu með okkur bræð-
ur á Akureyri árið 1977. Þegar ég lít til baka
til æskuáranna þá kemur snjórinn sterkur
inn, útiveran í Hlíðarfjalli og svo voru líka
góðar stundir þegar maður gat hoppað
fram af húsþakinu heima beint út í skafl.“
Var sá eini sem fékk aukablað
„Ég gekk í Glerárskóla, umhverfið þar í
kring var spennandi, gil og klettar og tilval-
ið að gleyma sér þarna milli tíma. Ég fann
mig nefnilega ekki í félagsskap í frímínút-
um, ég æfði ekki fótbolta og fékk því ekki að
vera með nema vera valinn seinastur í liðið.
Mér leið oft eins og ég væri eitthvað öðru-
vísi en aðrir og sótti í athygli á neikvæðan
máta, var samt aldrei vondur við neinn en
uppátækjasamur.
Það var eins með námið, mig skorti ein-
beitingu. Ég man að í 2. bekk þá fékk mað-
ur blað sem var stimplað með stjörnu ef
maður var óþekkur. Ég var sá eini sem fékk
aukablað því hitt dugði ekki til en ég drusl-
aðist einhvern veginn í gegnum þetta.“
Sökkti mér í flórinn
„Frá sjö ára aldri fór ég í sveit á sumrin,
var aldrei sendur á sama staðinn tvisvar og
fyrir því eru góðar ástæður, ég
þótti erfiður og uppátækjasam-
ur. Ég smurði kettlinga með júg-
ursmyrsli, sofnaði í glerull, slóst
við selsunga, sökkti mér í flór-
inn, hnuplaði skotum og teikaði beljur svo
fátt eitt sé nefnt,“ segir Lexi og hlær.
„Í seinni tíð fór ég sjálfviljugur í sveit og
stóð ég mig vel á traktorum og hinum ýmsu
græjum.“
Fór á snjósleða í skólann
„15 ára gamall tók ég skellinöðrupróf,
eingöngu til að mega keyra snjósleða. Ég
keypti mér Polaris sleða fyrir fermingar-
peningana og eftir það fékk ég sleðadellu.
Ég fór stundum á sleðanum í skólann ef vel
viðraði og svo fór ég að prófa að taka þátt
í keppnum.
Eftir grunnskóla fór ég í
Verkmenntaskólann. Áhuginn
á náminu dvínaði fljótlega
og þegar ég var búin að falla
þrisvar sinnum í bókfærslu þá hætti ég.“
Fór til Lundúna í nám
„Ég hóf störf í fyrirtæki foreldra minna,
Ásprent, en þá prentsmiðju keyptu foreldr-
ar mínir árið 1978. Seinna stofnuðu þau
Ásútgáfuna sem gefur út Rauðu Seríuna.
Bræður mínir unnu líka í fyrirtækinu og við
nutum þess að starfa öll saman.
Nítján ára fór ég í nám til Lundúna í
prentstjórnun. Það var virkilega gaman í
því námi, þar kynntist ég sálfræði og stjórn-
un sem hefur hjálpað mér vel.“
Engin eftirsjá
Eftir heimkomu fór Lexi á fullt í snjó-
sleðakeppnir. Hann varð fjórum sinnum Ís-
landsmeistari í snjókrossi og keppti á EM í
Svíþjóð og Finnlandi, HM í Bandaríkjunum
og í X-Games.
Ég spyr hann hvort hann hafi aldrei slas-
ast? „Jú, það var allt sett í þetta, slitin lið-
bönd í ökkla, brotinn leggur, rifbein og bak,
marin þind og ég fór líka úr mjaðmarlið en
þetta var allt þess virði og engin eftirsjá.“
Rosaleg upplifun
Stærsta ævintýri Lexa
til þessa var þegar hann
lék áhættuatriði í James
Bond myndinni Tomorrow Never Dies. „Ég
fékk fregnir af því að það ætti að taka þessa
mynd upp hér á landi og í henni ættu að
vera vélsleðaatriði. Ég lét útbúa myndbrot
úr þeim keppnum sem ég hafði tekið þátt
í og gerði svo framleiðsluteyminu vart
við mig. Daginn eftir var mér boðið
að koma og starfa við gerð myndar-
innar og ég var með þeim í 10 daga.
Þetta var rosaleg upplifun.”
Ég varð hugfanginn af henni
„Ég kynntist konunni minni,
Árnýju Elvu, á Akureyri. Ég
varð hugfanginn af henni,
hún bauð mér í mat eitt
kvöldið og ég þáði
boðið. Ég
var þá ný-
búinn að
vinna keppni
á Ólafsfirði og átti að vera
að fagna þar þetta kvöld
en þangað fór ég aldrei. Við
höfum verið saman síðan.
Við eigum þrjú börn, Ásgrím Örn fæddan
2005, Bergvin Snæ fæddan 2006 og Berg-
rúnu Fönn fædda 2008.“
Framtíðin í lausu lofti
„Árið 2004 var eftirminnilegt ár fyrir okk-
ur stórfjölskylduna. Við seldum hluta af Ás-
prenti til manna á Akureyri sem ætluðu að
byggja upp með okkur smiðjuna. Það fór
ekki betur en svo að þeir reyndust tvöfaldir
í roðinu og boluðu okkur út úr fyrirtækinu
eftir nær 30 ára sögu þess. Við tók ömur-
legur tími þar sem við höfðum ekkert fyrir
stafni og framtíðin var í lausu lofti.
Fjölskyldan vildi halda áfram að starfa
saman. Við fréttum af fyrirtæki í Reykjavík
til sölu, Papco, slógum til og keyptum rekst-
urinn. Til að byrja með flugum við suður á
mánudögum og heim aftur á föstudögum
en síðan fluttum við öll suður.“
Búið að vera mikið ævintýri
„Við Árný Elva keyptum okkur
10.000 m2 lóð í Mosfellsdalnum
og fluttum inn forsteypt ein-
ingahús frá Kína. Það er búið að
vera mikið ævintýri að byggja
hérna undanfarin ár með að-
stoð ættingja og vina. Við flutt-
um svo inn í febrúar 2013, héld-
um innflutningsveislu og giftum
okkur í leiðinni. Ég er búinn að
útbúa reiðhjólastökkpallsbraut
hér á lóðinni fyrir börnin og svo
er einnig lítil motorcrossbraut í smíðum.“
Lágmarkskrafa að það sé til aðstaða
Undanfarin ár hefur Lexi haldið alls-
konar viðburði eins og Lex Games sem er
einskonar jaðaríþróttaveisla. Hann hefur
einnig haldið BMX og hjólabrettakeppnir.
Hann stofnaði jaðaríþróttfélag í Reykja-
vík, Hasar íþróttafélag á Akureyri og
hefur tekið þátt í uppbyggingu á
Brettafélagi Hafnarfjarðar.
„Mér finnst lágmarks-
krafa að það sé til
aðstaða fyrir
allar íþrótt-
ir sem eru
stundaðar.
Það er gríðarlega stór
hópur af börnum sem
ekki falla inn í hóp-
íþróttir en finna sig í jað-
aríþróttum. Ég hef tekið að mér að
láta hanna og smíða palla bæði við Lága-
fellsskóla, Varmárskóla, við áhaldahúsið og
á Ingólfstorgi í Reykjavík.
Ég er núna að vinna í því að byggja upp
stóra jaðarmiðstöð í Elliðaárdal og þar
verður ýmis konar aðstaða í boði, veggja-
klifur, svampgryfjur, BMX, hjólabretti, snjó-
bretti, skíði, línuskautar o.fl.
Ég get lofað því að þetta á eftir að verða
eitt vinsælasta og skemmtilegasta hús
landsins,“ segir Lexi er við kveðjumst.Fjölskyldan í Dalnum á brúðkaupsdaginn.
Ég smurði kettlinga með
júgursmyrsli, sofnaði í
glerull, slóst við selsunga, sökkti
mér í flórinn, hnuplaði skotum og
teikaði beljur svo fátt eitt sé nefnt.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Alexander Vestfjörð Kárason sölustjóri Papco er oft nefndur guðfaðir jaðaríþróttanna enda einn sá öflugasti í þeim greinum
HIN HLIÐIN
Hvað heillar þig í fari fólks?
Jákvæðni og heiðarleiki.
Besti rakspírinn?
Fierce Confidence, gott nafn, góð lykt.
Fallegasti staður í Mosfellsbæ?
Mosfellsdalurinn eins og hann leggur sig.
Hvað myndi ævisagan þín heita?
„Beint á ská” (saga óheppna
gæfumannsins)
Uppáhaldsverslun? Húsasmiðjan
Grafarholti (undanfarið alla vega)
Hvert er þitt helsta takmark í lífinu?
Eiga og ala góða fjölskyldu, búa til eitt-
hvað gott sem maður getur skilið eftir sig.
Hvað kaupir þú alltaf þó að þú eigir
nóg af því? Málband.
Lék áhættuatriði
fyrir James Bond
- Mosfellingurinn Alexander V. Kárason20
Myndir: Ruth Örnólfs, Þórhallur Jónsson og úr einkasafni.
á bond frumsýningu
ungur að árum