Mosfellingur - 22.10.2015, Blaðsíða 22
- Íþróttir22
Meistaraflokkur karla í blaki
spilar sinn fyrsta heimaleik
á leiktíðinni á morgun,
föstudag.
Liðið er mjög breytt frá
fyrra ári. Í haust komu inn
nokkrir nýir liðsmenn.
Eduardo Herrero, sem er
aðstoðarþjálfari allra flokka
hjá blakdeildinni, spil-
ar með liðinu og er mikill
styrkur í honum en hann
kom frá Spáni í byrjun sept-
ember.
Liðið ætlar sér í úrslita-
keppnina en þangað fara
fjögur efstu liðin í deildinni
og einnig er stefnan sett á úrslitakeppnina í
bikarkeppni BLI.
Fyrsti heimaleikur á föstudag
Einn leikur er búinn og var hann við ríkj-
andi Íslands- og deildarmeistara síðustu
tveggja ára, HK, og sást á þeim leik að mik-
ið býr í liðinu en þeir töpuðu leiknum 1-3.
Á föstudaginn taka þeir á móti Stjörn-
unni úr Garðabæ sem er margfaldur Ís-
landsmeistari og verður leikurinn sýndur í
beinni útsendingu á sporttv.is. Bæjarbúar
eru hvattir til að mæta að Varmá og styðja
við bakið á liðinu. Aðgangseyrir á leikinn
er 500 kr.
Meistaraflokkur karla í blaki • Fyrsti heimaleikur á morgun
Ætla sér að komast
í úrslitakeppnina
Völundur GuðmundssonViktor E. C. GauvritSigþór Helgason
Sebastian S. MeyerReynir ÁrnasonKrzysiek Majewicz
Kolbeinn JónssonJakob BaldurssonJón Ó. Bergþórsson
Ismar HadziredzepovicGunnar P. HannessonAndris Apinis
Eduardo Herrero
Aðstoðarþjálfari
Rogerio Ponticelli
ÞjálfariNokkrir unglingar úr
Aftureldingu keppu á
með U19 landsliðinu á
N-Evrópumótinu sem
fram fór í Danmörku á
dögunum.
Það eru þau: Rósborg
Halldórsdóttir, Gunnar
Pálmi Hannesson, Sigdís
Sigurðardóttir, Sigþór
Helgason og Thelma
Dögg Grétarsdóttir.
Blakkrakkar í 4. flokki á Ísafirði
Blakkrakkar í 4. flokki lögðu land undir fót á dögunum og skelltu sér á mót á Ísafjörð.
Það voru kátir krakkar sem stóðu sig mjög vel og komu heim með tvenn bronsverðlaun
úr ferðinni. Hér er hópmynd af krökkunum, þjálfurum og bílstjóra áður en lagt er í hann.
Kepptu með
landsliðinu
www.mosfellingur.is
Flottir Mosfellingar í U-19 ára landsliði Íslands spiluðu tvo vináttuleiki við Norður-Íra á
dögunum. Arnór Gauti Ragnarsson sem spilar nú með Breiðbliki, Birkir Þór Guðmunds-
son sem spilar með Aftureldingu og Axel Óskar Andrésson sem spilar með Reading á
Englandi. Þessir efnilegu knattspyrnumenn eru allir uppaldir Aftureldingarmenn.
Arnór GAuti, Axel
óskAr oG Birkir Þór
Þrír mosfellingar í u-19
Þrír 13 til 14 ára strákar úr Aftureldingu voru valdir á Hæfileikamót KSÍ í fótbolta fyrstu
helgina í október. Mótið fór fram í Kórnum í Kópavogi og stóðu Mosfellingarnir sig vel.
Efnilegir strákar á Hæfileikamóti KSÍ
eyÞór Aron Wöhler ÍsAk snær ÞorvAldsson róBert orri Þorkelsson