Mosfellingur - 22.10.2015, Blaðsíða 6
Eldri borgarar
Þjónustumiðstöðin
Eirhömrum
Fram undan í vEtur
JÓLaHLaÐBOrÐ
Í hádeginu föstudaginn 27. nóv kl 12:00 á
Grand Hótel Reykjavík.
Jólahlaðborð 4.410 kr. Innifalið í því verði
er maturinn og kaffi en ekki aðrir drykkir.
Rútufargjald sem greiðist í rútu kostar
1.000 kr fram og til baka.
Mæting í rútu er 11:30 frá Eirhömrum.
Skráning í síma 586-8014/ 698-0090 eða
á þátttökublaði í handverksstofu.
Betra er heilt en vel gróið
Fræðsluerindi frá Beinvernd um
beinþynningu, áhættuþætti og forvarnir
miðvikudaginn 4. nóv kl. 13:45 í borðsal
Eirhamra.
Allir velkomnir.
Frá íþróttanefnd
Vatnsleikfimi í Lágafellslaug
mánud. og miðvikud. kl.12:00
Boccia Varmá þriðjud. kl.10:30
Ringó Varmá fimmtud. kl. 9:00
Dansleikfimi Varmá miðvikud. kl.14:30
Félagsvist
Verður næst 23. okt
og 6. nóv.
Allir velkomnir.
Aðgangseyrir kr.
600 - innifalið er
kaffi og meðlæti.
Glæsilegir vinningar
í boði.
Kíkt fyrir horn
5. nóv. kl. 13:00 kíkjum við í heimsókn
til Palla hnífasmiðs í Álfosskvos og fáum
okkur kaffi á Álafosskaffi. Farið verður á
einkabílum, skráning á þátttökublaði í
handverksstofu eða í síma 586-8014
Jólahlaðborð á Hótel Örk
2. desember
Hlaðborð m/ gistingu í tveggja
manna herbergjum m/morgunverði
kr. 12.000.
Aukagjald í einbýli kr. 3000.
Hlaðborð án gistingar kr. 6.500.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrir
10. nóvember 2015 til Söru Elíasdóttur
sara.eliasdottir@gmail.com hs. 566 6391
gsm. 694 1926
Gaman Saman
Verður næst 29. okt og síðan 12. nóv. í
borðsal Eirhamra kl 13:30. Kaffi og með-
læti selt í matsal eftir skemmtun á 400 kr.
Komum og skemmtum okkur saman með
Páli Helgasyni og glaða genginu.
Leshringur
Verður næst 2. nóv kl. 10:30
á Eirhömrum. Þeir sem
hafa áhuga á að vera með
geta haft samband við
Einar Halldórsson í síma
8993227/5667227.
BaSar 2015
Hinn árlegi basar á vegum félagsstarfs
eldri borgara í Mosfellsbæ verður haldinn
laugardaginn 14. nóv kl 13:30
á Eirhömrum. Fallegar
handunnar vörur á afar
góðu verði og úrvalið
fjölbreytt. Hlökkum til
að sjá sem flesta á bas-
arnum. Allur ágóði fer til
þeirra sem minna mega
sín í bænum okkar. Kór
eldri borgara Vorboðarnir
syngja fyrir gesti. Kaffisala
á vegum kirkjukórsins verður í matsal.
STYRKJUM GOTT MÁLEFNI
Minnum á að félagsstarfið á Hlaðhömrum
er fyrir alla eldri borgara, öryrkja og
atvinnulausa í Mosfellsbæ, endilega nýtum
okkur frábæra aðstöðu og léttum lundina
með félagslegri samveru.
Alltaf opið frá kl. 13:00-16:00
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Myrra Rós gefur út
aðra sólóplötu
Söngkonan og lagahöfundurinn
Myrra Rós Þrastardóttir hefur gefið
frá sér sína aðra sólóplötu. Platan
nefnist One amongst others og
kom út nú í byrjun október. Myrra
stóð fyrir hópfjármögnun á netinu
sem gekk það vel að platan lítur nú
dagsins ljós. Þá stundar Myrra nám
í grafískri hönnun við Listaháskóla
Íslands og hefur hannað plötu-
umslagið sitt frá grunni. Fyrri plata
Myrru Rósar heitir Kveldúlfur og var
gefin út um alla Evrópu árið 2012.
Myrra Rós býr í Álafosskvos ásamt
eiginmanni sínum Júlíusi Óttari
Björgvinssyni.
Nýr organisti í
Lágafellssókn
Keith Reed hefur verið ráðinn
sem tónlistarstjóri og organisti
Lágafellssóknar og tekur til starfa í
byrjun desember.
Keith sem hefur
áralanga reynslu
af kórstarfi starfar
nú sem organisti
í All Saints Parish
í Corning í New
York. En þar býr
hann ásamt konu
sinni Ástu Bryndísi Schram. Keith
er vel þekktur innan kirkjunnar og
starfaði áður sem tónlistarstjóri
og organisti hjá Lindakirkju og
Breiðholtskirkju. Keith er menntað-
ur í kórstjórn og söng og hefur verið
nátengdur kirkjustarfi í fjöldamörg
ár ýmist sem sjálfboðaliði eða
tónlistarstjóri. Keith tekur við af
Arnhildi Valgarðsdóttur sem sinnt
hefur starfinu síðustu ár.
Steinunn Marteinsdóttir á Hulduhólum gefur út sjálfsævisögu sína um ævi og verk
Ákvað að gefa sjálfri sér
bók í áttræðisafmælisgjöf
Steinunn Marteinsdóttir myndlistarkona á
Hulduhólum hefur gefið út veglega bók um
ævi hennar og verk.
Bókin nefnist Undir regnboganum og
rekur Steinunn sögu sína í máli og mynd-
um. Hún fjallar um uppvöxt sinn í Reykja-
vík, nám sitt og störf. Bregður upp minnis-
stæðum svipmyndum af fjölskyldu, vinum
og öðru samferðafólki og lýsir farsælum
myndlistarferli.
Bókin er litprentuð og í stóru broti,
prýdd fjölmörgum ljósmyndum og mynd-
um af listaverkum Steinunnar, sem lýsa vel
þróuninni í myndlist hennar. Samantekt
á ensku er birt í bókarlok, auk þess sem
allir myndatextar eru bæði á ensku og ís-
lensku.
Bók í áttræðisafmælisgjöf
„Ég var búin að ákveða að gefa sjálfri mér
það í afmælisgjöf að gefa út bók um verk
mín,“ segir Steinunn sem verður áttræð
í byrjun næsta árs. „Fyrst ætlaði ég að fá
Árna Bergmann til að skrifa við mig viðtal
en sjálfur var hann svo upptekinn við eig-
in bók. Ég fór þá að punkta niður sjálf og
fannst það mjög skemmtilegt. Það endaði
því þannig að ég skrifaði allan textann
sjálf.
„Þetta hefur verið mikil vinna undan-
farið eitt og hálft ár en ég hef verið heppin
með samstarfsfólk og er virkilega sátt við
útkomuna.“
Ekki sest í helgan stein
Steinunn byrjaði sem krakki að teikna
mikið og mála. Síðustu áratugi hefur hún
verið afkastamikil í listmálun og leirlist.
Vinnustofa Steinunnar er á heimili hennar
á Hulduhólum og segist hún sækja inn-
blástur úr ýmsum áttum, þó aðallega úr
náttúrunni.
Steinunn er hvergi nærri sest í helgan
stein eftir útgáfu bókarinnar og undirbýr
nú næstu sýningu sína sem sett verður
upp á nýju ári. „Nú fer maður að hafa meiri
tíma fyrir keramikið og myndlistina,“ segir
Steinunn að lokum.
Bókina Undir regnbogann má nálgast
í öllum helstu bókaverslunum sem og á
vinnustofu Steinunnar að Hulduhólum.
Steinunn með
SjálfSæviSögu Sína
Svipmyndir úr útgáfuhófi á Hulduhólum
föstudaginn 9. október. Myndirnar eru fengnar
úr heimildastuttmynd sem verið er að vinna
að í tengslum við einkasýningu Steinunnar
Marteinsdóttur í Hönnunarsafni Íslands.
Kvikmyndatökumaður er Edda Björnsdóttir.