Mosfellingur - 22.10.2015, Blaðsíða 26

Mosfellingur - 22.10.2015, Blaðsíða 26
Þjónusta við mosfellinga - Aðsendar greinar26 Snyrti-, nudd- & fótaaðgerðastofan Líkami og sál Þverholti 11 - s. 566 6307 www.likamiogsal.is Verið hjartanlega velkomin! Íslenska fótboltaævintýrið er í algleym- ingi og nær hámarki þegar flautað verður til leiks á EM í Frakklandi næsta sumar. Á sama tíma geta Mosfellingar glaðst yfir farsælu barna- og unglingastarfi Knatt- spyrnudeildar þar sem iðkendum hefur fjölgað um þriðjung og hlutfall stúlkna aukist. Mikið hefur verið fjallað um árangur íslenska landsliðsins og á hverju hann byggi. Nefnt hefur verið að undirstað- an liggi í góðu barna- og unglingastarfi. Bætt aðstaða með tilkomu gervigrasvalla og knattspyrnuhalla er einnig talin hafa skipt sköpum. Framlag þjálfara, foreldra og velunnara sem hafa lagt á sig mikið og óeigingjarnt starf er ómetanlegt. Þjálfarar hafa lagt metnað sinn í að sækja mennt- un og eru meðvitaðir um mikilvægi sitt sem leið- beinendur og fyrirmyndir. Þátttaka foreldra hef- ur aukist jafnt og þétt og sjálfboðaliðar sjá um að móta umgjörð sem allt starfið byggir á. Allt eru þetta mikilvægir þættir og án þeirra rúllaði bolt- inn tæplega. Við höfum átt því láni að fagna að búa yfir góðum þjálfarahópi. Lögð hefur verið áhersla á að gefa ungum þjálfurum tækifæri og hafa þeir þroskast og eflst með hverju viðfangsefni. For- eldrar hafa stutt vel við starfið eins og Liverpool- skólinn og Intersportmótið sanna. Hvorutveggja eru stórir viðburðir sem vekja athygli og laða að æ fleiri gesti. Því ber að fagna en nú er svo komið að umfang þeirra er orðið slíkt að nauðsynlegt er að staldra við og huga að framtíð þeirra. Það er staðreynd að vinnan við þessa stóru viðburði sem og öll umsjón með barna- og ungl- ingastarfinu hefur hvílt á of fáum herðum. Sömu aðilarnir draga vagninn of lengi og þreytast. Slíkt endar með að þeir stíga til hliðar og nýir aðilar taka við stjórninni. Þannig er hætt við að reynsla og þekking tapist og mikil vinna felst í því að geta ekki fylgt í fótspor forvera sinna. Við undirrituð höfum setið saman í stjórn barna- og unglingaráðs frá því í mars 2013 og erum stolt af framlagi okkar til starfsins en með- vituð um að margt er ógert og annað má betur fara. Mikilvægt er í starfi sem þessu að fá sem flesta að verki til að dreifa álagi og byggja upp þekkingu og reynslu. Það er einlæg ósk okkar að fleiri taki virkan þátt í starfinu til að þekking og reynsla glatist síður og vinna við frekari uppbygg- ingu dreifist á fleiri hendur. Aðstaða til knattspyrnuiðkunar í Mosfellsbæ gæti verið betri. Aðeins allra yngstu ið- kendur fá innitíma á veturna en aðrir verða að æfa úti óháð veðri. Úthlutun á innitímum er mikil vonbrigði þar sem stærsta deild félagsins fær ekki úthlut- að tímum í samræmi við umfang og eðli starfsins. Það hefur komið niður á starf- inu hjá yngri flokkunum og miðstigi hjá stúlkum. Núverandi aðstaða er of lítil og við- hald er í lágmarki. Iðkendur eru orðnir rúmlega 400 og gera má ráð fyrir að þeim fjölgi um a.m.k. 100 á næstu tveimur árum. Núverandi aðstaða á Varmá rúm- ar ekki þann fjölda og stækkun er óhjá- kvæmileg. Gervigrasvellirnir eru börn síns tíma og brýnt að fá þá endurnýjaða. Nýtanlegur hluti Tungubakka minnkar á hverju ári vegna viðhaldsleysis og þeim fækkar sem vilja nota grasið í núverandi ásigkomulagi. Þannig er mikilvægt að huga að uppbyggingu og endurnýjun æfingasvæða deildarinnar ásamt endurbótum í vallarhúsum. Knattspyrnudeildin er stærsta deild Aftureld- ingar með um þriðjung af barna- og unglinga- starfi félagsins. Okkur þykir framlag félagsins til starfsins ekki nægilegt. Yfirumsjón, samhæfing og stuðningur mætti vera meiri. Öll vinna við skrán- ingar og innheimtu æfingagjalda hvílir á deild- um og sjálfboðaliðum þeirra en ekki á skrifstofu félagsins. Engin íþróttafulltrúi er starfandi hjá fé- laginu sem hefur í för með sér að verkefni sem þeir sinna alla jafna lenda hjá deildunum Við höfum hér rakið helstu atriði er lúta að barna- og unglingastarfi Knattspyrnudeildar. Margt hefur áunnist og er það vel en viðfangs- efnin eru mörg og aðkallandi. Það er okkar sann- færing að við getum leyst þau í sameiningu enda þarf heilan bæ til að búa til fótboltabörn. Takist okkur það er framtíð knattspyrnunnar í Mosfells- bæ björt. Guðbjörg Fanndal Torfadóttir er móðir tveggja barna sem stunda íþróttir hjá Aftureldingu. Hún hefur setið í stjórn barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar frá 2012 og verið formaður ráðsins frá 2013. Sigurður Rúnar Magnússon er faðir tveggja barna sem stunda íþróttir hjá Aftureldingu. Hann hefur setið í stjórn barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar sem gjaldkeri frá 2013. Hann er einnig gjaldkeri karatedeildar frá 2014. Af barna- og unglingastarfi knattspyrnudeildar Aftureldingar Það þarf heilan bæ til að búa til fótboltabörn F ÍT O N / S ÍA Fífa salernispappírinn er einstaklega mjúkur þriggja laga pappír, náttúrulega hvíttur, án klórbleikiefna og viðbættra ilmefna. Þú færð Fífu í pakkningu sem hentar þér í næstu verslun. WWW.PAPCO.IS FIÐURMJÚK FÍFA 3 3ja lagaVirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja Kynning á Betri Reykjavík Kynning á verkefninu Betri Reykjavík verður haldin þriðjudaginn 3. nóvember klukkan 16.30 í Listasal Mosfellsbæjar. Í lýðræðisstefnu Mosfellsbæjar segir að kjörnir fulltrúar og starfsfólk Mosfellsbæjar skuli fá viðeigandi þjálfun og fræðslu í lýðræðismálum. Betri Reykjavík er samráðsvettvangur á netinu þar sem íbúum borgarinnar gefst tækifæri til að setja fram hugmyndir sínar um málefni er varða þjónustu og rekstur Reykjavíkurborgar. Efstu hugmyndir eru sendar nefndum borgarinnar til meðferðar. Starfsmenn Reykjavíkurborgar koma og kynna verkefnið út frá sjónarhóli stjórnsýslunnar. Fundurinn er opinn öllum.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.