Mosfellingur - 15.01.2010, Blaðsíða 23

Mosfellingur - 15.01.2010, Blaðsíða 23
www.mosfellingur.is - 23 Eru rennurnar og niðurföllin hjá þér farin að leka? Fyrirtækið Rennur og niðurföll tekur að sér að endurnýja og laga rennur og niðurföll, einnig aðra þakvinnu. Uppl. í síma: 694-8448, Ólafur Þverholti 11, 270 Mosfellsbær - Sími 561 0244 Gsm 6924000, 6973500 - fax 5610240 - rbs@centrum.is Gunnar Haraldsson, hagfræðingur löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali löggiltur leigumiðlari ráðgjöf - í rekstri, fjármálum og fasteigna- viðskiptum, búskipti o.fl. bókhald - einstaklinga, einkarekstrar og lögaðila skattskil - einstaklinga og lögaðila Þverholti 11, 270 Mosfellsbær - Sími 561 0244 Gsm 6924000, 6973500 - fax 5610240 - rbs@centrum.is Gunnar Haraldsson, hagfræðingur löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali löggiltur leigumiðlari Háholt 14, s. 566-8989 20% afsláttur af Catwalk vörum gildir til 5. febrúar 20% AFSLÁTTUR - gegn framvísun miðans Fyrirtæki sem auglýsa í Mosfellingi stuðla að því að þú fáir blaðið frítt inn um lúguna á þriggja vikna frestiBjört framtíð í Mosfellsbæ Í prófkjöri Sam- fylkingarinnar, sem fram fer 30. janúar, eru 11 úrvals þátt- takendur. Kynja- hlutfallið er eins jafn og hugsast get- ur, eins og á að vera í jafnaðarmanna- flokki. Þetta er fólk með mikla reyns- lu á ýmsum sviðum. Það getur orðið mörgum erfitt að taka ákvörðun - og velja á milli þessara ágætu frambjóð- enda í efstu sætin. Við sem skrifum þessa grein áttum ekki í erfiðleikum með að velja, að ákveða hver ætti að leiða lista Samfylkingarinnar fyr- ir bæjarstjórnarkosningarnar vorið 2010. Í vali okkar felst ekki vantraust á þann sem leiddi listann síðastu kjörtímabil, né á aðra sem sækjast eftir að leiða listann. Að okkar mati er Valdimar Leó Friðriksson best fallinn til að leiða listann. Þess vegna lýsum við yfir stuðningi við Valdimar í fyrsta sætið. Valdimar starfar sem fram- kvæmdastjóri Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna. Hann er menntaður fisk- eldisfræðingur og hefur auk þess lagt stund á stjórn- málafræði hjá HÍ og Rekstrar- og við- skiptafræði hjá EHÍ. Stuðningur okkar við Valdimar bygg- ist á persónulegum kynnum okkar af störfum hans í félagsmálum, að mál- efnum fólks með fatlanir, af störfum hans innan íþróttahreyfingarinn- ar þar sem Valdimar var lengi vel framkvæmdarstjóri Aftureldingar og við höfum einnig haft kynni af störf- um hans innan hagsmunasamtaka launafólks. Valdimar hefur brenn- andi áhuga á öllu því sem snýr að mennta- og velferðarmálum. Hann er maður sem þorir, hann er maður sem hlustar. Hann er í okkar huga boðberi nýrra vinnubragða. Við leitum eftir stuðningi við Valdimar í 1. sæti í prófkjöri Samfylk- ingarinnar 30. janúar. Með baráttu kveðju. Lárus H. Jónsson ljóshraði og Jan Agnar Ingimundarson fv. formaður Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ. Stuðningsyfirlýsing við Valdimar Leó Friðriksson Þegar við fjölskyldan fluttum í Mosfellsbæ í feb- rúar 2006 þá höfðum við lengi horft til bæjarins með þann draum í hjarta að einn daginn skyldum við festa hér rætur. Þetta byrjaði allt saman árið 1997 þegar ég hóf að leika með Handknatt- leiksfélagi Mosfellsbæjar (HM). Árið 2000 gengum við hjónin í það heilaga og það kom ekkert annað til greina en að gifta sig í fallegustu kirkju landsins, Lágafellskirkju. Ári síðar var dóttir okkar skírð í sömu kirkju. Eftir það var ekki aftur snúið. Komum Mosfellsbæ á kortið Það hefur mikið áunnist í bæjar- félaginu okkar á undanförnum ár- um og þegar allt lék í lyndi á Íslandi þá fórum við ekki varhluta af því. Mikill uppgangur var og heilu hverf- in risu í túnfætinum. Frá því að síð- ast var kosið í bænum hefur íbúa- fjöldi aukist um rúm 15%. Næstu fjögur ár verða að öllum líkindum erfið og þurfum við á öllum okkar kröftum að halda til að bæta ekki fleiri álögum á þegna þessa bæjarfé- lags. Það hafa hinsvegar mörg önn- ur bæjarfélög þurft að gera og munu þurfa að gera á næstu árum. En hvað getum við gert til þess að fá tekjur í bæjarfélagið án þess að það komi allt frá íbúunum sjálfum? Jú, við þurfum að gera bæinn okkar áhugaverðan fyrir fyrirtæki, félaga- samtök og stofnanir. Það þarf að fá fólk til að heimsækja okkur og nýta sér þá þjónustu og verslun sem hér er í boði. Góðar fréttir bárust í miðri kreppu þegar gengið var frá samningi um bygg- ingu einkasjúkrahúss og hótels á Tungumelum. Með þessum tímamóta- samningi fylgja ótrúlega mörg tækifæri fyrir okkur Mosfellinga. Við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að halda rétt á spilunum og tryggja okkur í sessi sem áhuga- verður og eftirsóknarverður áningar- staður. Brettum upp ermar Ég er tilbúinn til að leggja mitt af mörkum til að gera bæinn okkar að enn betri bæ og vinna ötullega fyrir Mosfellinga. Hvort sem það er í íþrótta- og æskulýðsmálum, at- vinnu-, umhverfis- eða skólamálum að ég tali nú ekki um skipulagsmál- in. Þrátt fyrir að vera eitt best rekna sveitarfélagið á landinu þá er alltaf tækifæri til að gera betur. Brettum upp ermar og byrjum að vinna til framtíðar fyrir okkur öll. Ég óska eftir stuðningi þínum í 4. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna sem fram fer þann 6. febrúar. Í tilefni framboðsins hef ég opnað bloggsíðu, www.runarbragi.blog.is og þar verður hægt að fylgjast með skrifum mínum og áherslumálum. Rúnar Bragi Guðlaugsson Þarftu að breyta eða bæta, utandyra sem innan? Tökum að okkur nýsmíði, sérsmíði, viðhaldsvinnu og endurbætur. Álafossvegur 27 - s. 586-8356 (verkstæði) - fax 586-8357 s. 894-0006 (Gunnar) - ishamar@ishamar.is

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.