Mosfellingur - 15.01.2010, Blaðsíða 27
www.mosfellingur.is - 27
Fyrirtæki sem auglýsa í Mosfellingi
stuðla að því að þú fáir blaðið frítt inn um lúguna á þriggja vikna fresti
WWW.ALAFOSS.IS
ÁLAFOSS
Verslun, Álafossvegi 23
www.gudni.is - gudni@gudni.is
Háholti 14 - 270 Mosfellsbæ - GSM - 897-7738
VefsíðuR - RÁÐGJÖF - ÖLL STAFRÆN Útlitshönnun
AUGLÝSINGAR - NAFNSPJÖLD - ljósmyndun - UMBROT
stafræn útlitshönnun
GÓÐIR MENN EHF
Rafverktakar
GSM: 820-5900
• nýlagnir • viðgerðir
• endurnýjun á raflögnum
• hönnun og uppsetning á öryggiskerfum
• síma og tölvulagnir
Löggiltur rafverktaki
Er næringarskortur á Íslandi?
Færðu réttu næringuna?
ALLT HEFUR ÁHRIF - EINKUM VIÐ SJÁLF
Þessum spurningum er svarað í bókinni Meltingarvegurinn og geð-
heilsan eftir breska lækninn Dr. Natasha Campbell-McBride. Hún er
sérfræðingur í taugasjúkdóma- og næringarfræði.
Þessi bók heillar mig mjög mikið þar sem ég hef haft mikinn áhuga
á næringu um langt skeið og ákveðnar skoðanir, sumar frá brjóstvit-
inu sem oft er ansi gott ef gagnrýnin hugsun fylgir. Var það mér því
fjársjóður að fá þetta lesefni Dr. Campbell-McBride, kenningar og
rannsóknir á meltingarveginum og fæðunni. Það dýpkaði skilning
minn á allskyns líðan og hvernig líkaminn bregst við þegar maður
borðar eitthvað sem ekki hentar honum. Einnig útskýrir hún afar vel
starfsemi þarmanna og virkni
góðu og meinvirku bakteríanna.
Hún vitnar í ótal rannsóknir og
vísindamenn sem hafa skoðað
þessi mál að undanförnu. Líðan barna og fullorðinna hefur breyst til
batnaðar þegar fólk hefur tekið út ýmsar fæðutegundir sem henta því
ekki. Dr. Campbell-McBride vinnur mikið með börn með ofvirkni, at-
hyglisbrest, einhverfu og margt fleira, með góðum árangri.
Ég er afar sammála því sem hún setur fram t.d. um það að fita er
ekki skaðvaldurinn í ofþyngd og er okkur mjög nauðsynleg. Fleiri
hafa komið með rannsóknir um fituna upp á síðkastið er lúta að
sömu skoðun. Egg hafa líka verið talin óæskileg nema í litlu magni,
en þau eru sú fæðutegund sem líkaminn nýtir alveg til fulls, koma
næst brjóstamjólk að hennar mati. Ég man í gamla daga þá var eggj-
rauðu bætt í mat ungra barna.
Það er góð venja þegar maður skoðar hug sinn, að hugleiða hverju
maður á að trúa en það skyldi maður alltaf gera þegar nýir hlutir
koma fram. Eins að huga að því hvernig þessu er háttað í náttúrunni
og hjá dýrunum. Þau fara nefnilega eftir eðlisávísun sinni en ekki eft-
ir auglýsingum, markaðssetningu eða hagsmunum annara. Nema
þegar við mennirnir höfum tekið völdin yfir þeim.
Þessum mikilvægu upplýsingum langar mig að koma á framfæri til
fólks sem hefur áhuga á þessu málefni með fyrirlestri á opnu húsi 27.
janúar kl 20 í listasalnum í Kjarna.
Vigdís Steinþórsdóttir skólahjúkrunarfræðingur
LÝÐHEILSUHORNIÐ