Mosfellingur - 15.01.2010, Blaðsíða 22

Mosfellingur - 15.01.2010, Blaðsíða 22
 - Aðsendar greinar22 Í maí í vor verður gengið til sveitarstjórnakosninga og eru framboð nú í óða önn að raða saman fólki á lista sem áhuga hafa á að bjóða sig fram til áhrifa. Við sjálf- stæðismenn í Mosfellsbæ höfum ákveðið að efna til prófkjörs til að velja á fram- boðslista okkar og verður það hald- ið 6. febrúar. Sterkur hópur Á gamlársdag kom í ljós að það verða 15 öflugir einstaklingar í próf- kjöri okkar sjálfstæðismanna. Þetta er sterkur og breiður hópur, blanda af reynsluboltum í sveitarstjórn- amálum og nýju fólki með aðra reynslu, sá yngsti 18 ára og sá el- sti 65 ára. Þarna er saman kominn hópur einstaklinga með fjölbreytt- an bakgrunn en allir eiga þeir það sammerkt að hafa brennandi áhuga á sveitarstjórnamálum og bíða með uppbrettar ermar að fá að vinna okk- ar góða samfélagi hér í Mos- fellsbæ gagn. Það eru mikil verðmæti fyrir hvert sveitar- félag að svo stór hópur bjóði fram krafta sína fyrir samfé- lagið. Aukin lýðræðisvitund Árið 2010 stefnir í að verða mikið kosningaár. Fyrst verða prófkjör og forval látin ráða för víða um land og síðan verða sveitarstjórn- arkosningar, og jafnframt er útlit fyr- ir fyrstu þjóðaratkvæðagreiðsluna sem haldin hefur verið frá árinu 1944. Hvet ég alla til að nýta lýðræð- islegan rétt sinn og mæta á kjörstað þrátt fyrir að þau skipti verði nú öllu fleiri en venjan er. Á þeim tímamót- um sem íslenskt samfélag stendur á, ríður á að við séum öll þátttakendur í þeirri þjóðfélagsmótun sem fram- undan er. Í umræðunni undanfarna daga og vikur hefur komið fram að Íslend- ingar leggja nú aukna áherslu á lýð- ræði. Í því samhengi er gaman að nefna að við sjálfstæðismenn í Mos- fellsbæ höfum á undanförnum átta árum staðið fyrir framförum í íbúa- lýðræði hér í sveit. Á síðasta kjör- tímabili var m.a. haldið stórt íbúa- þing þar sem fjallað var um helstu málefni sveitarfélagsins. Á þessu kjörtímabili er skemmst að minn- ast heildarstefnumótunar sveitar- félagsins sem unnin var 2007-8 þar sem yfir 200 manns tóku þátt. Í því ferli voru m.a. mótuð gildi sveitarfé- lagsins með sama fyrirkomulagi og á þjóðfundinum um daginn og urðu virðing, jákvæðni, framsækni og um- hyggja fyrir valinu. Í framhaldinu hefur síðan verið unnið að stefnumótun einstakra málaflokka með virkri aðkomu bæj- arbúa, á skólaþingi, skipulagsþingi, menningarþingi og nú stendur fyrir dyrum að halda íbúaþing um sjálf- bæra þróun. Þetta er þróun sem ber að fagna og sem við sjálfstæðis- menn munum standa vörð um og efla enn frekar. Býð mig fram til forystu Á undanförnum árum hef ég ver- ið virkur þátttakandi í samfélags- verkefnum í bænum okkar. Ég hef m.a. verið formaður bæjarráðs og skipulags- og byggingarnefndar og svo bæjarstjóri síðan haustið 2007. Af þessum störfum hef ég haft af- skaplega mikla ánægju, þetta hef- ur gefið mér mikið og ég lít stoltur til baka. Það eru mikilvæg verkefni framundan hjá Mosfellsbæ sem ég er reiðubúinn og tilbúinn að takast á við. Ég hvet Mosfellinga til að taka þátt í prófkjörinu þar sem ég býð mig fram í 1. sæti á lista sjálfstæð- ismanna í Mosfellsbæ fyrir sveitar- stjórnakosningarnar í vor. Gleðilegt ár kæru sveitungar. Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Sterkur hópur öflugra einstaklinga Ég hef að íhuguðu máli ákveðið að gefa kost á mér í þriðja sæti á lista sjálfstæðis- manna fyrir sveitarstjórna- kosningarnar í vor. Ástæður að baki þeirri ákvörðun eru margvíslegar, svo sem áhugi á stjórnmálum og umhverfi okkar Mosfellinga. Megin ástæðan er sú trú mín og von að ég geti orðið til gagns á víðsjárverðum tímum. Ég hef starfað við eigin atvinnu- rekstur í rúm tuttugu ár ásamt því að taka þátt í félagsstörfum bæði tengd- um atvinnu og áhugamálum. Frá bankahruni hef ég tekið virkan þátt í opinberri umræðu og uppbygging- arstarfi með ýmsum þverpólitískum hópum sem láta sig framtíð landsins varða. Sem dæmi er ég í hópi þeirra sem áttu í bréfaskriftum við forsvars- menn Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og funduðu með fulltrúum sjóðsins. Ég tók virkan þátt í starfi Endurreisn- arnefndar Sjálfstæðisflokksins og stýrði þar hópastarfi. Það er trú mín að nú sem aldr- ei fyrr sé þörf á fólki með praktíska reynslu úr atvinnulífi, fólki sem hef- ur ætíð þurft að standa fyrir sínum ákvörðunum, réttum sem röngum og gjalda fyrir þær á eigin skinni. Ég er þess fullviss að löng reynsla mín af atvinnurekstri og félagsmálum geti nýst í bæjarstjórn Mosfellsbæj- ar. Um leið og ég er handviss um að í núverandi ástandi búi ýmis tæki- færi þá verður ekki horft framhjá því að á næstu árum munum við Mos- fellingar, líkt og aðrir, þurfa að gæta að hverju fótmáli í rekstri bæjarins. Engu að síður þurfum við að gæta vel að þörfum bæjarbúa. Því hefur aldrei verið mikilvægara að taka yfir- vegaðar og skynsamlegar ákvarðanir um forgangsröðun verkefna og útgjalda. Sem dæmi tel ég mikilvægt að gæta vel að þeim sem verða undir í því efnahagslega hamfaraveðri sem geisað hefur. Ekkert er skelfilegra en að einstakling- ar týnist í erfiðleikum líð- andi stundar og finni ekki leið út í lífið þegar land rís á ný. Íbú- ar og bæjaryfirvöld verða að vera samstíga og gæta þess að fólk á öll- um aldri festist ekki í viðjum kreppu og vonleysis. Börn og ungmenni þurfa dægra- dvöl og verkefni við hæfi. Því þarf augljóslega að viðhalda öflugu íþrótta- og tómstundastarfi af ýmsu tagi, svo daglegt líf ungra Mosfell- inga raskist sem minnst. Undirstaða þessa alls er atvinn- an; framleiðsla, verðmætasköpun – atvinnuþátttaka. Bæjarfélagið get- ur lagt sig fram um að viðhalda at- vinnustigi. Skapað hér umhverfi til fjölgunar atvinnutækifæra. Frábært dæmi um það eru áætlanir um sér- hæfða heilbrigðisstofnun á Tungu- melum. Ýmis önnur tækifæri eru að mínu mati til atvinnusköpunar í bæj- arfélaginu en í því sambandi skipt- ir öllu að bæjaryfirvöld gangi í takt með fólki sem vill láta til sín taka. Annað áherslumál mitt er að auka enn gegnsæi stjórnsýslunnar, svo sem með frekari aðgangi að upp- lýsingum um verkefni og rekstur. Auðvelda má aðkomu bæjarbúa að ákvarðanatöku, þó án þess að firra kjörna fulltrúa ábyrgð á verkum sín- um. Í lokin vil ég hvetja alla til þess að taka þátt í prófkjörinu þann 6. febrú- ar og óska ég eftir stuðningi í þriðja sæti. Elías Pétursson Ágætu Mosfellingar Það er stór stund þegar börn byrja í grunnskóla og var mikill spenningur á heim- ili mínu þegar yngsta dóttir mín hóf grunnskólagöngu sína síðasta haust. Undirbún- ingur fyrir skólagönguna byrj- aði markvisst í leikskólanum m.a. með verkefninu „Brú- um bilið“ og höfðum við rætt skóla- byrjunina heima, en engu að síður var sú stutta samt búin að ímynda sér þetta eitthvað öðruvísi því eftir fyrsta skóladaginn sagði hún með undrunarsvip: „Mamma þetta var bara alveg eins og í leikskólanum“. Þegar við fórum að ræða málin þá kom í ljós að hún hélt að strax fyrsta daginn myndi rigna bókstöfum og tölustöfum. Leikur myndi heyra sög- unni til og þau fengju vart að anda. Því var þungu fargi af henni létt og bætti hún því við að kennarinn væri líka skemmtilegur. Skólar barnanna okkar skipta mjög miklu máli og velja margir sér búsetu eftir því hvernig þeim líst á skólamálin. Sem foreldri þriggja barna sem hafa verið og eru í leik- og grunnskólum bæjarins er ég sannfærð um að hér í Mosfellsbæ er rekið metnaðarfullt skólastarf. Í skól- unum starfa samstilltir hópar fólks sem leggja mikið upp úr því að það nám sem fram fer taki mið af þroska og þörfum hvers barns þar. Skólafólkið er líka hugmyndaríkt og þróunarverkefnin bæði fjölbreytt og spennandi. Má nefna fimm ára deildir við grunnskólana, tónlist- arnám fyrir alla og einstakan Lista- skóla. Hér er útikennsla, spennandi raungreinakennsla og tungumála- nám. Líkamsrækt fyrir unglinga sem ekki njóta sín í almennri íþrótta- kennslu. Krikaskóli, nýjasti skóli Mosfellsbæjar, hefur þegar komist á spjöld skólasögu Íslands. Pollagallaskólinn sem er samþættur leik- og grunnskóli fyrir börn frá 1- 9 ára, þar sem mikil áhers- la er lögð á tengingu skól- ans við nærsamfélagið. Í Mosfellsbæ er áhersla lögð á þjónusta við foreldra vegna yngstu barnanna, enda slíkt nauðsynlegt í nútímasamfélagi. Frístundasel grunnskólanna mynda heildstæða umgjörð um skóladag barnanna og er dóttir mín ánægð með starfið. Hún stundar m.a. Kirkjukrakka og ýmislegt val og er alsæl með Íþrótta- fjör Aftureldingar sem hún fer í tvisvar í viku. Þar kynnast þau hin- um ýmsu íþróttagreinum s.s. Tae- kwondo, handbolta, fótbolta, blaki og fimleikum og sér maður hvernig hugmyndir hennar um íþróttagrein- arnar breytast við að prófa. Það er til fyrirmyndar hvað vel hefur tekist til með samþættingu starfsins milli skóla og Aftureldingar. Nýlega lukum við gerð fjárhags- áætlunar fyrir árið 2010 þar sem áhersla er lögð á að verja grunn- og velferðarþjónustu sveitarfélagsins. Við óhjákvæmilega hagræðingu er forgangsraðað í þágu barna og vel- ferðar og ekki er gert ráð fyrir hækk- unum á þjónustugreiðslum barna- fjölskyldna í leik- og grunnskólum. Bæjarstjórn stóð sem einn maður og er það von mín að áfram takist okkur að ná samstöðu um skólastarf- ið og velferð barnanna okkar. Herdís Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi gefur kost á sér í 2. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna Skólarnir okkar

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.