Mosfellingur - 15.01.2010, Blaðsíða 15

Mosfellingur - 15.01.2010, Blaðsíða 15
Gleðileg jól - 15 Unglingarnir sem sitja í stjórn nemendafélagsins í félagmiðstöðinni Flógyn á Kjalarnesi héldu ásamt starfsmönnum markað en hugmyndin var að fólk gæti komið með dót að heiman til að selja. Kostaði 1.000 kr að fá borð til að hafa dótið á og rann ágóði af leigunni til fjölskylduhjálpar. Það var ágæt þátttaka og komu flottar konur með ýmislegt á markaðinn s.s. prjónavörur, skartgripi, heimatilbúna sultu og föndur. Einnig var haldið bingó þar sem rúmlega 100 manns tóku þátt í. Vinningarnir voru m.a. frá Vallá, Brautarholti, Esjugrund, Húsasmiðjunni, Evu nuddara, Ragn- heiði matráð, Aristo, Brúsk, Snælandsvideo og Skógræktarfélaginu. Góðgerðarvikan endaði með góðu Góðgerðarballi sem haldið var í Nagyn í Borgarskóla og þar spiluðu Á móti sól. Líf og fjör í Félagsmiðstöðinni Flógyn á Kjalarnesi Góðgerðarvika til styrktar fjölskylduhjálpar Í nóvember hafa unglingar Klébergs- skóla staðið í ströngu og tóku þeir þátt í mörgum viðburðum á vegum ÍTR og Samfés. Fyrst má nefna Skrekk undir stjórn Kolbrúnar Birnu. Rímnaflæði sem haldið var í Miðbergi en þeir Benedikt og Anton kepptu fyrir hönd Flógynjar og síðast en ekki síst var það Stíll sem haldinn var í Smáralindinni í Kópavogi. Þar voru rúmlega 60 lið sem kepptu frá öllum landshlutum um hönnun, hár og förðun. Þemað í ár var „endurvinnsla”. Þær Margrét, Rósa, Íris og Jóna kepptu fyrir hönd Flógynjar og unnu þær flottasta hárið. Frábær frammistaða hjá krökkunum og eiga þau mikið hrós skilið fyrir jákvæðni. OPNUNARTÍMI: Þriðjudag, miðvikudag og föstudag 11-18 Fimmtudag 11-22 Laugardag 11-17 Fyrsta sunnudag í mánuði 13-17 Lokað á mánudögum Gleðilegt ár kæru Mosfellingar! Þökkum góðar stundir og frábærar móttökur á liðnu ári. Heilsutengdir fyrirlestrar hefjast aftur í febrúar. Ebba Guðný Guðmundsdóttir verður hjá okkur 2. febrúar kl. 17-18.30 og ræðir um heilbrigt mataræði og bætta líðan fyrir börn á öllum aldri. Skráning sendist til kolla@hraunhus.is, verð 2.000 kr. Nánari upplýsingar eru á hraunhus.is www.hraunhus.is * Völuteigur 6 * 270 Mosfellsbær Endurskinsvesti afhent á Hlaðhömrum Á dögunum fengu krakkarnir á leikskólanum Hlaðhömrum góða gjöf frá Vátryggingafélaginu VÍS, í Mosfellsbæ. Um er að ræða endurskins- vesti sem krakkarnir geta notað í svartasta skammdeginu. Það var Þórdís Sigurðardóttir þjónustustjóri VÍS sem kom færandi hendi á leikskólann en allir leikskólar bæjarins fá slíka gjöf frá VÍS.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.