Mosfellingur - 15.01.2010, Blaðsíða 8

Mosfellingur - 15.01.2010, Blaðsíða 8
 - Framboð og eftirspurn8 HEIMILISMATUR Í HÁDEGINU 1290,- Fimmtán sjálfstæðismenn skiluðu inn framboðum þegar skilafresti lauk á gamlársdag. Efri röð: Hafsteinn Pálsson, Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson, Rúnar Bragi Guðlaugsson, Hjörtur Methúsalemsson, Haraldur Sverrisson, Haraldur Haraldsson, Örn Jónasson, Elías Pétursson og Theodór Kristjánsson. Fremri röð: Júlía M. Jónsdóttir, Kolbrún G. Þorsteinsdóttir, Herdís Sigurjónsdóttir, Bryndís Haralds og Eva Magnúsdóttir. Á myndina vantar Þórhall Kristvinsson. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins fer fram 6. febrúar Prófkjör Samfylkingarinnar fer fram 30. janúar Ellefu manns skiluðu inn framboðum sínum til Samfylkingarinnar þann 9. janúar. Efri röð: Jónas Rafnar Ingason, Anna Sigríður Guðnadóttir, Valdimar Leó Friðriksson, Sigrún Pálsdóttir, Gerður Pálsdóttir og Þóra Bjarney Guðmundsdóttir. Fremri röð: Baldur Ingi Ólafsson, Hanna Bjartmars Arnardóttir, Gunnlaugur B. Ólafsson og Lísa Sigríður Greipsson. Á myndina vantar Jónas Sigurðsson. Frambjóðendur undirbúa sig fyrir prófkjör Sjálfstæðisfl okkur og Samfylking efna til prófkjörs á næstu vikum til að stilla upp á lista fyrir sveitarstjórnakosningarnar sem fram fara í maí. Fimmtán frambjóð endur gefa kost á sér hjá Sjálfstæðisfl okknum í prófkjörinu 6. feb. Hjá Samfylkingu eru 11 sem bjóða sig fram í prófkjöri 30. jan. Allir sitjandi bæjar- fulltrúar fl okkanna bjóða sig fram til áframhaldandi setu. Uppstillingarnefnd sér að öllum líkindum um uppröðun á lista Framsóknar og Vinstri Grænna. Opnar veitingastað í Háholti um miðjan febrúar Kiddi Rót undirbýr opnun VIRÐING JÁKVÆÐNI FRAMSÆKNI UMHYGGJA ����������� ����������� Í tilefni að kjöri íþróttakonu og íþróttakarls Mosfellsbæjar fyrir árið 2009 er bæjarbúum boðið að vera viðstaddir og heiðra íþróttafólkið. Kjörið fer fram í Íþróttamiðstöðinni að Varmá sunnudaginn 17. janúar kl. 14. Einnig verða veittar viðurkenningar til þeirra einstak- linga sem hafa orðið Íslandsmeistarar, bikarmeistarar, landsmótsmeistarar og fyrir að æfa og/eða keppa með landsliði. Veittar verða viðurkenningar til efnilegasta stráks og stelpu 16 ára og yngri í hverri grein. Íþrótta- og tómstundanefnd Kjör íþróttamanns og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2009 Unnið er nú hörðum höndum að því að innrétta nýjan veitingastað í Háholti við hlið Krónunnar. Stefnt er að því að opna þar Cafe Kidda Rót um miðjan næsta mánuð. Kiddi Rót rak áður stað í Hveragerði og hefur gert síðastliðin fi mm ár. Um er að ræða veitingastað sem býður upp á fjölbreyttan matseðil á góðu verði að sögn Kidda. „Við erum frægastir fyrir okkar rómantísku hamborgara sem eru þeir bestu á landinu. Við notum eingöngu topp hráefni og metnaður lagður í hvern rétt.” segir Kiddi. Staðurinn kemur til með að taka rúmlega 100 manns í sæti og er 340 fm2 að stærð. Á boðstólnum verða pítsur, steikur, hamborgarar, austurlenskir réttir auk heimilis- matar í hádeginu. Opið verður til kl. 22 á kvöldin nema við sérstök tilefni. „Við erum hvorki að fara reka kaffi hús né pöbb, heldur klassa veitingastað fyrir alla fjölskylduna. Við verðum þó að sjálfsögðu með vínveitingaleyfi og sýnum helstu kappleiki á risaskjá. Hér eiga allir að fíla sig velkomna” segir Kiddi. Strákarnir í Mottó vinna nú að því að innrétta staðinn. Kiddi Rót við nýja staðinn í Háholtinu.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.