Mosfellingur - 15.01.2010, Blaðsíða 2
www.isfugl.is
Bæjarblaðið Mosfellingur hefur nú sinn 9. árgang.
Embla Ágústsdótt ir er Mosfell-ingur ársins 2009. Kraftmikil
ung kona sem lítur á
hreyfi hömlun sína sem
áskorun. Hún vinnur
hörðum höndum að
því að breyta viðhorfi
samfélagsins til
fatlaðra. Embla er
vel að nafnbót-
inni komin
og óskum
við henni
til ham-
ingju.
Þeir sem komu að þrettánda-brennunni hér í Mosfellsbæ
eiga hrós skilið fyrir frábæra
skemmt un. Öll umgjörð var til
mikillar fyrirmyndar og hefur þessi
viðburður gríðarlegt aðdráttarafl á
fólk frá öllu höfuðborgarsvæðinu
og þó víðar væri leitað. Flugelda-
sýningin hjá Kyndli toppaði kvöldið
svo gjörsamlega.
Blaðið að þessu sinni litast af umræðu frambjóðenda sem
bjóða sig fram í prófkjörum á
næstunni. Ánægjulegt er til þess að
vita að fólk vilji láta gott af sér leiða
fyrir bæjarfélagið.
Einstök EmblaMOSFELLINGUR
mosfellingur@mosfellingur.is
www.mosfellingur.is
Mosfellingur kemur út að
jafnaði á þriggja vikna fresti.
Útgefandi: Mosfellingur ehf.
Skeljatanga 39, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson
Blaðamaður: Ruth Örnólfsdóttir
ruth@mosfellingur.is
Prentun: Oddi Upplag: 4000 eintök
Umbrot og hönnun: Mosfellingur
Próförk: Hjördís Kvaran Einarsdóttir
Tekið er við aðsendum greinum á netfangið
mosfellingur@mosfellingur.is og skulu þær
ekki vera lengri en 500 orð.
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri
Í ÞÁ GÖMLU GÓÐU...
Næsta blað kemur út 6. febrúar
Þrátt fyrir vaxandi skólastarf í Brúarlandi
á fjórða áratug síðustu aldar voru enn
dæmi um heimakennslu. Samgöngur
hafa efl aust átt þátt í að viðhalda því
fyrirkomulagi. Árið 1933 eru í Prófabók
Brúarlandsskóla skráðir nemendur
sem fengu heimakennslu í Reykjahlíð,
Suður-Reykjum og í Gufunesi. Öll börnin
tóku þó próf hjá Lárusi en séra Hálfdán
Helgason var prófdómari.
Myndin sýnir skólapilta sem fengu heima-
kennslu á Suður-Reykjum: Frá vinstri:
Friðrik Pétursson kennari, Jón M.
Guðmunds son, Jóel Jóelsson, Andrés H.
Guðmundsson,Sveinn Guðmundsson,
Þórður Guðmundsson.
Texti: Birgir D. Sveinsson.
Mynd í eigu Salome Þorkelsdóttur.
2 - Frítt, frjálst og óháð bæjarblað
HÉÐAN OG ÞAÐAN