Mosfellingur - 15.01.2010, Blaðsíða 20

Mosfellingur - 15.01.2010, Blaðsíða 20
 - Aðsendar greinar20 Í ágúst í sumar gaf Mosfells- bær út bækling sem inniheld- ur stefnumótun bæjarins um sjálfbæra þróun. Framtíðar- sýn og leiðarljós sem bæjaryf- irvöld hafa ákveðið að stefnt skuli að hljóðar svo: „Mosfells- bær vill vera í fremstu röð sveit- arfélaga hvað varðar sjálfbæra þróun og mun því leitast við að vera framsækið, umhverfisvænt og nú- tímalegt bæjarfélag sem býður upp á fjölbreytileika.“ Áherslur Mosfellsbæjar í stefnu um sjálfbært samfélag eru: • að vera í fararbroddi meðal ís- lenskra sveitarfélaga í sjálfbærri þróun • að auka aðgengi almennings að ákvarðanatöku í bæjarfélaginu til að efla lýðræði • að auka gegnsæi stjórnsýslunnar og upplýsingastreymi til bæjarbúa • að stuðla að fjölbreyttu mannlífi í sátt við náttúruna • að stuðla að aukinni umhverfisvit- und bæjarbúa og styðja við hana Í anda þessa mun Mosfellsbær halda fund 9. febrúar þar sem kall- að verður eftir hugmyndum og til- lögum íbúa um lýðræði, lífsgæði og sjálfbæra þró- un í bænum. Þessi hugtök eru víðtæk en kristallast í ofannefndum punktum. Hvaða fyrirkomulag sjá bæjarbúar á tilhögun upp- lýsingastreymis? Hvernig verður aðgengi almenn- ings að ákvarðanatöku bæjarfélags- ins elft? Hvernig verður umhverfis- vitund bæjarbúa aukin? Þessum og mörgum öðrum spurningum þarf að svara þegar bæjarfélagið ætlar sér að ná markmiðum um sjálfbæra þróun. Áhugasömum bæjarbúum gefst á fundinum tækifæri til að koma á framfæri uppbyggilegum hugmynd- um sínum um hvernig bæjarfélagið ætti að þróast á komandi árum. Öll- um tillögum verður haldið til haga og unnið með þær áfram. Ég vonast til að sjá marga liðs- menn á fundinum þann 9. febrúar til þess að leggja þessari mikilvægu vinnu bæjarfélagsins okkar lið. Jóhanna B. Magnúsdóttir, formaður verkefnisstjórnar Sd 21 Lýðræði – lífsgæði – sjálfbær þróun Íbúafundur um sjálfbært samfélag í Mosfellsbæ Undanfarin misseri hafa verið tímar sviptinga og áfalla á Íslandi. Sveitarfé- lög hafa þurft að hefja nið- urskurðarhnífa á loft til að mæta lækkandi tekjum og auknum útgjöldum og hag- ræða í rekstri þeirra. Það mun móta stöðu sveitarfé- laga í nánustu framtíð hversu vel tekst til með hagræðingu þeirra nú. Mosfellsbær stendur betur að vígi en flest sveitarfélög á landinu og get- ur það skilað sér í samkeppnisfor- skoti sveitarfélagins á næstu árum og jafnvel áratugum, ef vel tekst til við uppbyggingu þess á komandi ár- um. Mikilvægt er að byggja upp sam- félag, sem byggist á frelsi, jafnrétti og bræðralagi, kjörorðum jafnaðar- manna. Byggja þarf upp gegnsæja stjórnsýslu, sem hefur heiðarleika að leiðarljósi og hlúir að hagsmun- um bæjarbúa. Byggja þarf upp til framtíðar, en láta stundarhagsmuni ekki ráða för. Mikil tækifæri munu skapast í því uppbygg- ingarferli, sem nú mun hefj- ast í kjölfar efnahagshruns- ins og þess stöðugleika sem verið er að skapa í þjóðarbú- inu. Ég tel mig vera þess um- kominn að geta lagt lóð á vogarskálar fyrirstandandi uppbygg- ingar sveitarfélagsins, sem byggir á framangreindum gildum jafnaðar- manna og hef því ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri Samfylkingar- innar, sem fram fer í lok janúar. Undirritaður er fæddur árið 1964 og hefur undanfarið starfað sem verkefnastjóri hjá Mosfellsbæ, stundar meistaranám í stjórnun og stefnumótun við Háskóla Íslands og er kvæntur og með þrjá syni á grunnskólaaldri. Jónas Rafnar Ingason, viðskiptafræð- ingur býður sig fram í 3.-6. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ 30. jan. Heiðarleiki og gegnsæi Í Mosfellsbæ er gott að búa enda eitt fárra sveitarfélaga sem ekki hefur eytt um efni fram og sem vinnur að því að stuðla að atvinnusköpun í bæjarfélaginu. Slíkt bæjar- félag er í góðri stöðu til þess að skapa sterka framtíðarsýn og leggja grunninn að fram- tíðinni. Við megum ekki láta deigan síga, við þurfum að búa til störf og hlúa að börnum og unglingum með góðri menntun. Einnig þurfum við að skapa umhverfi þar sem börn og unglingar geta stundað íþróttir við hæfi. Mosfellsbær er eftirsótt bæjar- félag til búsetu og fyrst bæjarfélaga þegar minnst er á fjölskylduvænt umhverfi þar sem hægt er að lifa í nálægð við náttúruna. Ég vil taka þátt í að byggja upp enn öflugra samfélag og sækist því eftir 2.- 4. sæti í prófkjöri sjálfstæð- ismanna í febrúar. Ég hef um nokk- urra ára skeið, ásamt frábæru fólki, leitt uppbyggingu á fimleikadeild Aftureldingar í Mosfellsbæ. Deildin hefur, þrátt fyrir ungan aldur, byggt upp frábært fimleikafólk sem unnið hefur nokkra Íslandsmeistaratitla og fjölda verðlauna á mótum. Með öflugu íþróttafélagi leggjum við grunninn að fjölskylduvænu samfélagi og stuðlum að vellíðan barna og unglinga ásamt því að ala upp sterka kynslóð Mosfellinga sem hefur heilsuna að leiðarljósi. Íþróttir auka sjálfsaga og þróa keppnisskap sem nýtast mun vel þegar út í lífið er komið. Ég vil áfram leggja mitt af mörkum og stuðla að kraftmikilli uppbyggingu á íþrótta- og lýðheilsu- starfi. Það kemur dagur eftir þennan dag og við þurfum að nota kreppu- tímann til þess að móta stefnu okkar í íþróttaaðstöðu og auka gæði innra starfs okkar. Í Mosfellsbæ búa um 8.500 manns í ört vaxandi bæjarfélagi. Mosfellsbær er orðið sjöunda fjölmenn- asta sveitarfélag landsins. Við hjónin kusum fyrir tæpum 12 árum að setjast hér að, ala upp dætur okk- ar tvær og taka þátt í að byggja hér upp betra samfélag. Ég hef kynnst ýmsum hliðum Mosfells- bæjar og tel að metnaður sé rétta orðið yfir stjórnskipan hér. Félagar mínir í pólitík eiga heiður skilið fyr- ir gott uppbyggingarstarf sitt. Mikill metnaður einkennir leikskóla- og skólastarf hér í bæ. Því hef ég kynnst þann stutta tíma sem ég hef setið í fræðslunefnd fyrir hönd sjálfstæðis- manna. Það sem einkennir starfið er fjölbreytni og val, þó sumir hlutir séu samræmdir í leikskólum og skól- um þá blómstrar einstaklingsfrels- ið í mismunandi áherslum. Ég hef áhuga á því að kynnast þessum vett- vangi enn betur og láta til mín taka í því þróunar- og uppbyggingarstarfi sem framundan er í fræðslumálum í Mosfellsbæ. Tímarnir eru óvenjulegir en þrátt fyrir allt spennandi og þeir fela í sér ótal áskoranir sem við höfum ekki tekist á við áður. Með gildi Mosfells- bæjar að leiðarljósi, virðingu, já- kvæðni, framsækni og umhyggju munum við stuðla að því að það verði ekki eingöngu gott að búa í Mosfellsbæ eins og í öðru vel þekktu bæjarfélagi heldur verði best að búa í Mosó. Ég vil taka þátt í að móta þá framtíðarsýn. Eva Magnúsdóttir, er forstöðumaður sölu- og markaðsmála hjá Mílu ehf. varaþingmaður í Kraganum og formaður fimleikadeildar UMFA. Hún sækist eftir 2.- 4. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna. Best er að búa í Mosfellsbæ

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.