Mosfellingur - 01.12.2006, Blaðsíða 17

Mosfellingur - 01.12.2006, Blaðsíða 17
Hljóðfæraleikarar eru Sigurður Ingvi Snorrason og Kjartan Óskarsson, sem leika á klarinettur, Emil Friðfi nnsson og Þorkell Jóelsson sem leika á horn og á fagott leika Brjánn Ingason og Björn Árnason. Miðasala er hafi n í bæjarskrifstofum í Mosfellsbæ í þjón ustuveri á fyrstu hæð. Alltaf hefur verið uppselt á þessa tónleika undanfarin ár og því er aðeins hægt að fá miða í forsölu, en einnig er hægt að greiða miðana símleiðis. Hafi ð samband við þjónustuver Mosfellsbæjar í síma 525-6700 þar sem miðasala fer fram og allar aðrar upplýsingar um miðasöluna eru veittar. Sigrún Hjálmtýsdóttir ásamt blásarasext ett, í da- glegu tali Diddú og drengirnir, halda sína árlegu aðventutónleika í Mosfellskirkju miðvikudaginn 6. desember 2006, kl. 20:30. Efnisskráin að þessu sinni er helguð Mozart, en á þessu ári eru liðin 200 ár frá fæðingu hans. Þó verða fastir liðir aðventutónleikanna á sínum stað. Aðventutónleikar Diddúar og dreng- janna eru sérstakur tónlistarviðburður í menningarlífi Mosfellsbæjar, en tónleikarnir eru nú haldnir tíunda árið í röð. Á tónleikunum hafa frá upphafi verið frumfl uttar umskriftir á klassískum verkum fyrir blásarasextett og sópran, en þetta er ekki algeng samsetning hljóðfæra og raddar. Margir Mosfellingar auk annarra hafa árvisst sótt litlu sveitakirkjuna í Mos- fellsdal heim að þessu tilefni, enda eru tónleikarnir í Mosfellskirkju á jólaföstu orðnir ómissandi hluti af undirbúningi fyrir helgihald jóla. Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.