Litli Bergþór - 01.12.2016, Qupperneq 9
Litli-Bergþór 9
til. Hinrik frá Útverkum á Skeiðum kom og var í
þrjá daga að hjálpa Ragnheiði að koma þessu í
gang. Ákveðið var að koma saman í Kistuholti
á fimmtudögum og yrði fyrsti fimmtudagur í
hverjum mánuði heldur veglegri samkoma með
einhverri dagskrá. Aðra fimmtudaga í mánuðinum
yrði einnig komið saman og föndrað, prjónað eða
spilað, o.fl. eftir áhuga fólks. Öllum samkomum
lyki svo með sameiginlegri kaffidrykkju.
Hefur þetta haldist í stórum dráttum síðan. Í mörg
ár sagði Ragnhildur Magnúsdóttir til við að tálga
í tré allskonar gripi, men, skepnur og allskonar
fugla, meðan henni entist heilsa til. Ingólfur
Jóhannsson á Iðu sagði mönnum til í útskurði á
undan henni.
Snemma á stjórnarárum Sigurðar fór hann að
standa fyrir ferðalögum um landið, oftast í
öndverðum júní, áður en ferðamenn fylltu alla
gististaði. Var ýmist gist eina nótt, tvær eða þrjár
nætur og er búið að skanna sviðið frá Grímsey í
norðri að Papey í austri, til Trékyllisvíkur í vestri.
Mjög hefur þrengst um þessa ferðamöguleika hvað
varðar gistingu og rútumöguleika vegna fjölgunar
ferðamanna. Síðastliðið sumar var farið í dagsferð
um Rangárþing. Leiðsögumaðurinn var Einar
Magnússon kennari. Kvenfélag Biskupstungna og
sveitarfélagið hafa undanfarin haust boðið eldri
borgurum í dagsferð á áhugaverða staði. Að vetri
er reynt að fara í leikhúsferð ef eitthvað áhugavert
er að sjá í leikhúsunum.
Undanfarna vetur hefur félagið staðið fyrir
leikfimi við hæfi eldri borgara í íþróttahúsinu og
nú hefur „Boccia“ bæst við, en Lionsklúbburinn
færði félaginu Boccia sett í haust. Félagið hefur
frá upphafi haft aðstöðu í Bergholti, kjallaranum
í Kistuholti 3.
Vetrarstarfið hefst oftast í byrjun október og lýkur
í byrjun maí.
Ég vil að lokum hvetja þá sveitunga sem eru
orðnir 60 ára og eldri til að ganga i félagið því
léleg nýliðun hefur hrjáð félagið undanfarið.
Þetta er skemmtilegur félagsskapur sem gaman er
að starfa með.
„Það er oft gott sem gamlir kveða“
Guðni Lýðsson formaður.
Frá ferð eldriborgara og kvenfélagsins 1. okt. 2016, til Hveragerðis. Myndin er tekin í gömlu Skyrgerðinni, þar sem ferðafélagarnir þáðu
kaffiveitingar. Á fremsta borði sitja Oddný á Brautarhóli, Elín í Rima og Geirþrúður á Miðhúsum. Á næsta borði fyrir aftan eru Gýgja og
Örn í Lindatungu (fjær), Konráð í Rima og Haraldur í Einholti (nær). Á langborði aftast má þekkja f.v: Laufeyju frá Drumboddsstöðum,
Sigurbjörgu á Galtalæk, Guðrúnu í Hlíðartúni, Guðna Lýðsson í Kistuholti, Njörð á Galtalæk, Áslaugu og Þorfinn á Spóastöðum, Guðjón í
Tjarnarkoti og Sigurjón í Kistuholti. Við borð t.h. sitja Ólafur og Guðrún í Kistuholti og Kristinn og María (standandi) í Fellskoti.