Litli Bergþór - 01.12.2016, Síða 14
14 Litli-Bergþór
Þau munu hafa verið upplitsdjörf, ungu hjónin
sem komu upp að Hlíðum fyrir margt löngu.
Þorgerður Ketilbjarnardóttir og Ásgrímur Úlfsson
voru fyrstu ábúendur í Úthlíð. Þau völdu sér
bæjarstæði á sléttum bala í hallandi landinu og
svo vel var það valið, að þar stóð bærinn um aldir
og þar stendur Úthlíðarkirkja nú.
Fyrstu ábúendur í Úthlíð
Mér finnst sem ég sjái þessi ungu hjón standa
þarna á balanum, þétt saman og virða fyrir
sér hin undrafögru Hlíðalönd, sem þau höfðu
fengið til búsetu. Alsholtið, þakið blómjurtum og
berjalyngi. Mýrar og vötn með síkvikt fuglalíf,
fisk og endalaus beitar- og slægjulönd. Og svo
áfram holt og heiðar. Í austur og vestur teygir
Hlíðin sig, eins langt og séð verður, vafin grasi og
skógi. Þar er eldiviður. Þar er beitarland og skjól.
Þar er torfrista og mótak. Þar er lax og silungur
í Andalæk. Í norðri rísa heimafjöllin, há og
tignarleg með sínar bláu hlíðar, svörtu hamrabelti
og aflíðandi skriður. Og hvítur Langjökull að
baki. Já, mér finnst ég sjá þau fyrir mér, þessi
hjón, geislandi af þrótti, bein í baki og hnarreist.
Gleði og trú, bjartsýni æsku og von voru þeirra
veganesti. Mér finnst ég þekkja þetta fólk, svo oft
hefur Björn í Úthlíð sagt mér frá þeim, þessum
vinum sínum og forverum í Úthlíð.
Afi og amma
Ég sé fyrir mér önnur hjón, sem komu upp á
þennan sama bæjarbala löngu, löngu seinna, árið
1916. Fyrir nákvæmlega 100 árum, tíu öldum
á eftir Ásgrími og Þorgerði. Þetta voru afi og
amma okkar Björns og systkina okkar í Úthlíð og
Dalsmynni, þau Gísli Guðmundsson og Sigríður
Ingvarsdóttir.
Jörðin hafði þá verið í eyði í tvö ár, svo allt var
þar í niðurníðslu. Þau komu sunnan úr Laugarási
með börnin sín tvö,
kýr og hross og reiddu
einhverja pinkla sem
voru búsmunir þeirra.
Kindurnar voru komnar
á fjall. Þetta voru allar
þeirra veraldlegu eigur.
En þau áttu annað sem
var mikils virði: Þau
áttu gleði og von og trú
sem entist þeim alla ævi.
Þau áttu alltaf allt sem
þau þurftu en aldrei neitt
meira.
Afi og amma lifðu mikla
breytingatíma, þótt bú-
sýslið þeirra breyttist í
raun og veru ekki mikið.
Öll búverk voru unnin
á svipaðan hátt og gert
hafði verið frá öndverðu.
Þau ólu önn fyrir börnum
sínum og búi og viku
svo til hliðar fyrir nýrri
kynslóð ábúenda. Þau
Úthlíðarkirkja 10 ára
Örn Erlendsson:
Úthlíðarkirkja.