Litli Bergþór - 01.12.2016, Síða 18
18 Litli-Bergþór
Íslenska sveitin bregst aldrei. Þar er ferskleiki á hverjum hól og þar fær SS besta hráefni
sem völ er á. Handbragð sterkra fagmanna SS gerir góða vöru enn betri og góð vara er
lykillinn að góðum stundum. Veldu SS steikina með handbragði fagmannsins.
Íslenska sveitin og SS – fyrir þig.
MEÐ HANDBRAGÐI FAGMANNSINS
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Fréttst hefur að til standi að virkja Tungufljót í
landi Brúar í Biskupstungum. Sló Litli-Bergþór
því á þráðinn til Margeirs Ingólfssonar bónda og
ferðamálafrömuðar á Brú og spurði hann frétta af
virkjunarframkvæmdum og hvar þær væru á vegi
staddar.
Samkvæmt Margeiri er það HS-orka sem
hyggst byggja þarna rennslisvirkjun, og verður
framkvæmdin alfarið í höndum þeirra. Öll
helstu mannvirki verða í landi Brúar en það er
Skógrækt Ríkisins sem á landið handan fljótsins
og því vatnsréttinn á móti Brúarbændum. Ekki
verður neitt uppistöðulón heldur verður byggð
stífla í fljótið efst í landi Brúar og áin þar tekin
í niðurgrafna pípu um 1.700 metra. Fallhæðin
á þeirri leið er um 60 m. Árfarvegurinn verður
þó ekki vatnslaus, því strax fyrir neðan stífluna
kemur aftur vatn í farveginn og eftir að vatnið
kemur úr stöðvarhúsinu verður rennsli fljótsins
eins og það er í dag. Ásýnd Tungufljótsins frá
brúnni við Brúarhvamm verður því óbreytt.
Gert er ráð fyrir að Brúarvirkjun eins og hún er
kölluð, skili 9,9 megavöttum. Virkjun af þessari
stærðargráðu þarf ekki að fara í umhverfismat,
en þrátt fyrir það var ákveðið að fara með
framkvæmdina í slíkt mat til þess að kanna öll
möguleg áhrif sem hún gæti haft. Í tengslum við
matið og eins vegna fyrirhugaðra framkvæmda,
hafa því farið fram miklar rannsóknir í landi
Brúar síðustu 2 árin. Umhverfismatsskýrslan
var síðan lögð fyrir Skipulagsstofnun í júní sl.,
en stofnunin skilaði áliti sínu 20. september.
Niðurstaða umhverfismatsins var mjög jákvæð og
setti Skipulagsstofnun einungis tvö skilyrði fyrir
framkvæmdinni, en það er að gerð verði áætlun
um endurheimt votlendis og að kanna verði hvort
straumönd hafi verpt í væntanlegu stíflustæði
og ef svo er, að kanna hvert hún færi sig. Þessa
dagana er síðan verið að vinna að breytingu á
aðal- og deiliskipulagi svæðisins, en breyta þarf
framkvæmdasvæðinu úr landbúnaðarsvæði í iðn-
aðarsvæði.
Vegur hefur verið lagður að væntanlegu virkj-
unarstæði og hefur hann nú þegar komið
Brúarbændum að góðum notum við að nýta sitt
land. Að framkvæmdum loknum verður kominn
vegur langleiðina inn
að afréttargirðingu og
mun það opna ýmsa
möguleika hvað varðar
nýtingu á Brúarjörðinni.
Nú er reiknað með að
framkvæmdir hefjist
næsta vor og að um 25
mánuðum síðar hefjist
rafmagnsframleiðsla í
virkjuninni. Rafmagnið
verður lagt í jarðstreng
í spennistöðina í Reyk-
holti. Rarik hefur sýnt
verkefninu mikinn
áhuga segir Margeir,
enda kemur þessi
viðbót til með að styrkja
raforkudreifingu hér í
uppsveitunum, öllum til
hagsbóta.
Virkjun Tungufljóts
í landi Brúar
Geirþrúður Sighvatsdóttir:
Yfirlitskort af svæðinu.