Litli Bergþór - 01.12.2016, Side 20
20 Litli-Bergþór
Ég var kennari við Reykholtsskóla frá hausti 1979 til vors 1986. Í lok fyrsta ársins var farið af stað
með mikið „project“ um árnar í sveitinni. Yngri nemendurnir fjölluðu um Brúará og sennilega
Tungufljót, en þeir eldri tóku Hvítá fyrir. Rússajepparnir sem þá voru skólabílar fluttu hópana á
ákveðna staði þar sem krakkarnir fengu leiðsögn fræðaþula. Þannig hittu þau Einar í Holtakotum,
Sigga á Heiði, Guðmund Ingimarsson, Einar í Auðsholti og Ingólf á Iðu. Þetta var allt saman
myndað í bak og fyrir, bæði vettvangsferðirnar og síðan úrvinnslan.
Grímur Bjarndal, skólastjóri, Jósefína Friðriksdóttir og ég mynduðum verkefnavinnuna að mig
minnir. Þessar myndir eru úr því safni.
Ég var búinn að steingleyma þessu, en þar sem ég var að skoða filmumöppu sem ég notaði
fyrir tíma rafrænnar ljósmyndunar, rakst ég á þessar myndir og smám saman fór að birta. Enn
uppgötvaði ég mikilvægi þess að halda nútímanum til haga fyrir framtíðina. Ég held að á þeim tíma
sem verkið var unnið hafi mér ekki þótt það neitt sérstakt, en 36 árum seinna horfir þetta öðruvísi
við.
Myndir úr Reykholtsskóla 1980
Páll M. Skúlason:
Hallur Sighvatsson Miðhúsum, Bryndís Malmo Bjarnadóttir
Helgastöðum, Sigurjón Njarðarson Brattholti, Stella Björk Guðjónsdóttir
Reykjavöllum.
Jenný Gísladóttir Kjarnholtum, Jóna Dísa Sævarsdóttir Heiðmörk, Sig-
urður Ólafur Ingvarsson Birkilundi, Þórarinn Þorfinnsson Spóastöðum.
Róbert Sveinn Róbertsson Brún, Jóhannes Helgason Rauðaskógi,
Helga Salbjörg Guðmundsdóttir Launrétt 3, Arnbjörg Traustadóttir
Einiholti.
Ingvar Ólafsson, Arnarholti, Ágústa Traustadóttir Einiholti,
Ragnhildur Petra Helgadóttir Rauðaskógi, Þorsteinn Páll
Sverrisson Ösp.