Litli Bergþór - 01.12.2016, Síða 25
Litli-Bergþór 25
varð til þess að við ákváðum að hjálpast að við
að hreyfa við eignarhaldi og skipulagsmálum. Ég
hvatti landeigendur til að mynda félagsskap sín
á milli svo þeir hefðu vettvang til að samræma
sjónarmið og tala einu máli.
Jafnframt þessu hóf ég samræður við ríkisvaldið
um Geysissvæðið enda mikilvægt að koma því á
hreint hver bæri ábyrgð á því af hálfu ríkisins, en
ríkið á um 34% af Geysissvæðinu. Ég fundaði
með mörgum ráðherrum, fyrst ráðherra ferðamála
(hún var líka iðnaðarráðherra) í ágúst 2010. Í
kjölfarið ritaði ég bréf til hennar og birti úrdrátt
úr því hér:
Sæl Katrín. Ég leyfi mér að hafa samband
við þig í framhaldi af fundi sem við áttum þann
24. ágúst 2010 varðandi málefni Geysis og
eignarhald á svæðinu. Ég þakka kærlega fyrir
fundinn. Síðan við funduðum hefur verið lagt fram
fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og ég sá að
þar lá inni heimild til að kaupa Geysissvæðið.
Nú langar mig að fara að skoða hvort hægt er
að ýta við eignarhaldi svæðisins og gera aðkomu
ríkisins auðveldari á þessu lang frægasta og mest
heimsótta ferðamannasvæði á Íslandi. Mér þætti
vænt um að fá fregnir af stöðu mála og skoðun á
því hvort við getum farið að vinna að því að koma
málum í höfn.
Ég hef verið í stöðugu sambandi við heima-
menn, Umhverfisstofu og Ferðamálastofu
varðandi lagfæringar á svæðinu. Samvinna
hefur verið mjög góð og ég vænti þess að
svo geti orðið áfram varðandi frekari lag-
færingar, fegrun og verndun svæðisins.
Kær kveðja Drífa Kristjánsdóttir, oddviti Blá-
skógabyggðar
Ég hélt áfram að hitta fólk í stjórnsýslunni.
Í janúar 2011 náði ég fundi með aðila í
fjármálaráðuneytinu sem sagðist hafa mjög
lengið borið ábyrgð á Geysissvæðinu (hann
nefndi 25 ár) og að ekkert hefði þokast varðandi
eignarhald og samninga við eigendur. Hann var
hissa frumkvæði mínu og tregur til að koma með
mér í þá vegferð að reyna að hreyfa við málum.
Ekkert gerðist í framhaldinu af hans hálfu. Þá var
bara að halda áfram. Skoða ný mið.
Ég hafði hitt umhverfisráðherra í september
2011 þegar fræðslustígur við Gullfoss var
opnaður. Við ræddum málin. Rúmum mánuði
síðar sendi ég henni eftirfarandi bréf:
Aratungu 7. nóvember 2011.
Svandís Svavarsdóttir
ráðherra umhverfismála
Efni bréfs: Ósk um aðstoð við að koma á
eigendafélagi Geysissvæðisins í Haukadal.
Undirrituð þakkar fyrir mjög skemmtilegan dag
á Gullfosssvæðinu þann 21. september sl. þegar
Sigríðarstígur, fræðslustígur við Gullfoss var
formlega opnaður. Eftir þá athöfn og ánægjulegt
kaffisamsæti, stoppuðum við á Geysi og skoðuðum
svæðið. Við það tækifæri leyfði ég mér að segja
frá því að fyrir lægi vilji eigenda og rekstraraðila
svæðisins um að mynda félagsskap eigenda um
Geysissvæðið og að mikilvægt væri að ríkisvaldið
tilnefndi fulltrúa sinn í eigendafélaginu.
Að mínu mati er það mjög ánægjulegt að þessi
vilji eigenda liggi fyrir. Lengi hefur eignarhaldið
vafist fyrir aðilum, einkum stofnunum ríkisins, en
ef félagsskapur eigenda er fyrir hendi þá er sá
„Þrándur í Götu“ ekki lengur fyrir hendi.
Því þyrfti að tilnefna aðila sem hefur umboð
ríkisins til að mynda slíkan félagsskap, setja
félaginu reglur og koma eignarhaldinu í farveg.
Í framhaldinu væri hægt að taka á stjórnun
svæðisins, viðhaldi, uppbyggingu, umsjón og
fleiru.
Hugmyndir eigenda eru ýmsar t.d. að hægt
væri að gera rekstrarfélag um Geysissvæðið
og hlutverk þess yrði t.d. að fara með umsjón
svæðisins, auka virðingu þess, lagfæra umgjörð
gera tillögur um uppbyggingu og hafa daglega
umsjón. Tekjur af svæðinu færu í uppbyggingu
þess og umsjón.
Ég veit að nú er lag og vona að ríkisvaldið
leggi sitt af mörkum svo að virðing okkar fyrir
Geysi fái aftur þann sess sem Geysi ber.
Með von um að ríkisvaldið taki jákvætt í málið
og tilnefndi sinn fulltrúa sem fyrst.
Drífa Kristánsdóttir, oddviti Bláskógabyggðar.
samrit sent:
Kristínu Lindu Árnadóttur, Umhverfisstofnun
Þetta bréf mitt breytti engu, Umhverfisráðherra
tók málið ekki uppá sína arma. Enn héldu
samræður við landeigendur áfram og fljótlega
ákváðu þeir að stofna Landeigendafélag Geysis
ehf.