Litli Bergþór - 01.12.2016, Page 33
Litli-Bergþór 33
Það er margt sérkennilegt sem slæðist með ferða-
mannastraumnum, sem nú um stundir flæðir um
Uppsveitir Árnessýslu. Eitt af því er gistiþjónusta
í kúluhúsum, glærum plastkúlum, sem hafa vaxið
upp eins og gorkúlur á milli trjánna í skógræktinni
í Hrosshaga hér í Biskupstungum á þessu ári.
Kúlurnar eru nýlega
orðnar fimm, auk þess sem
þjónustuhús með klósett- og
eldunaraðstöðu hefur verið
byggt á svæðinu.
Sá sem stendur fyrir þess-
um búskap í Hrosshaga
er frumkvöðullinn og
Tungnamaðurinn Róbert
Sveinn Róbertsson frá
Brún á Syðri-Reykjum.
Til að heyra hvernig þessi hugmynd kom til og
hvað á daga hans hefur drifið síðan hann flutti
úr Tungunum, hittir blaðamaður Litla-Bergþórs
hann á Kaffihúsi Vesturbæjar einn mildan
nóvemberdag yfir góðum kaffibolla. Fyrsta
spurning er um ætt og uppruna að vanda og við
gefum Róbert orðið:
Móðir mín, Ásdís Sveinsdóttir var ættuð frá
Bjarnargili í Fljótum, fædd 1935. Hún lést í
apríl í ár, 81 árs að aldri. Faðir minn fæddist á
Urðarstíg 4 í Reykjavík árið 1925. Foreldrar hans
bjuggu ekki saman, svo hann ólst upp að Gelti í
Grímsnesi, í raun hjá ljósmóður sinni. Þau voru
þrjú systkini sem bjuggu þar saman, Kristinn,
Sigga og Bogga og þau tóku hann að sér. Róbert
faðir hans var bakari og afi hans, langafi minn, var
netagerðarmaður. Ég segi stundum að ég hljóti
að hafa þaðan áhuga minn á netheimum! Móðir
föður míns hét Guðrún Bryndís Skúladóttir og
giftist síðar Emil Thoroddsen tónskáldi.
Frumkvöðull
og kúlubændur í Hrosshaga
Geirþrúður Sighvatsdóttir:
Viðtal við Róbert S. Róbertsson frumkvöðul
og Sigríði J. Sigurfinnsdóttur húsfreyju í Hrosshaga
Róbert.
Peter býr um í einni af stóru kúlunum.
Séð inn í litla kúlu
Kúla af minnstu gerð - Fljúgandi furðuhlutur?
Faðir minn er enn mjög ern og harðneitar að
hætta að vinna þótt kominn sé á 10. áratuginn. Er
enn á skrifstofu vörubílstjórafélagsins Mjölnis á
Selfossi. Hann hefur gaman af því að spjalla við
okkur systkinin um pólitík, eða það sem efst er
á baugi og á það til að hringja í mig og tilkynna
mér að það sé komin helgi og mál að líta upp úr
vinnunni!
Systur mínar eru tvær, þær Bryndís, fædd 1959,
jarð- og landfræðingur og vinnur sem verk-
efnastjóri í hagnýtri efnavinnslu hjá Orkustofnun