Litli Bergþór - 01.12.2016, Qupperneq 40
40 Litli-Bergþór
Veðrið í sumar og haust. Sumarið heilsaði með
góðu gróðrarveðri í júní og almennt var þetta gott
sumar og gjöfult og frekar þurrt. Stundum svalt
á nóttum í júlí, en oftast hlýtt í sólinni á daginn
og smáskúrir ef einhver úrkoma var. Sérstaklega
milt og blítt veður var í ágúst. Haustið var líka
gott og hlýtt, skúraveður í september nema þurrt
síðustu vikuna. Í október og nóvember komu
nokkrar myndarlegar haustlægðir með hvassviðri
og töluverðri rigningu inn á milli. Einhverjar
frostnætur voru í nóvember, en hiti annars oftast
rétt ofan við frostmark og snjólaust. Í desember
rigndi mikið.
Refaveiðar. Samkvæmt Magnúsi Kristinssyni,
refaskyttu í Austurhlíð, var legið á 15 grenjum í
júní og júlí í sumar, en tvö gren til viðbótar höfðu
verið yfirgefin. Voru 4 gren ofan byggðar, en
hin öll í byggð. Fjögur þessarra grenja voru ný.
Náðu þeir samtals 71 dýri, þar af 20 fullorðnum
grendýrum, 4 hlaupadýrum og 47 yrðlingum.
Auk þess náðu aðrir að fella fjögur hlaupadýr og
tvo yrðlinga til viðbótar.
Fjölskylduhátíðin Tvær úr Tungunum var
haldin í ágúst. Var margt um að vera að venju:
Gröfuleiknin var á sínum stað og vann Gretar
Grímsson á Syðri-Reykjum hana í fjórða sinn.
Fornbílar og traktorar settu skemmtilegan blæ
á svæðið og ýmislegt var í boði fyrir yngri
kynslóðina. Uppsveitahringurinn var bæði
hjólaður og hlaupinn og haldið var
krakkahlaup í tengslum við hann.
Sú nýbreytni var að opið var í
skúrnum hjá Guðna Lýðssyni í
Kistuholtinu þar sem hann og
fleiri unnu á spunavél, vefstól
og rokk.
Leikhópurinn Lotta var með sýningu,
hoppu-kastalar voru á svæðinu og
loftboltar. Kvenfélagið hélt markað í
Aratungu og seldi hátíðargestum kaffi.
Um kvöldið lék hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar fyrir dansi í Aratungu. Veðrið
var hið þokkalegasta og tóku íbúar í
Reykholti sig til og voru með skreytingar
í hverfum sínum. Tillaga kom um að
skreyta á einhvern hátt víðar í Tungunum
en ekki varð úr því að þessu sinni.
Ottó Eyfjörð Jónsson er nýr
starfsmaður framkvæmda- og
veitusviðs Bláskógarbyggðar.
Hann býr á Laugarvatni
Þegar hafin var viðhaldsvinna
við leikskólann Álfaborg í
sumar kom í ljós að raki og
mygla grasseraði í húsnæðinu.
Starfsemi leikskólans var
því flutt í húsnæði Bláskógaskóla í Reykholti
og skyldi vera þar á meðan á viðgerðum stæði.
Sveitarstjórn skipaði vinnuhóp í framhaldi af
þessu um framtíðarfyrirkomulag húsnæðismála
leikskólans. Í kjölfarið var tekin sú ákvörðun
á fundi sveitarstjórnar að leikskólinn verði í
grunnskólanum þar til uppbyggingu nýs húsnæðis
lýkur. Þar sem töluvert af búnaði og leikföngum
leikskólans eyðilagðist efndu Foreldrafélag
leikskólans og Kvenfélag Biskupstungna til
styrktarkvölds þann 27. október. Samkoman, sem
jafnframt var 30 ára afmælishátíð leikskólans,
skartaði glæsilegri tónlistardagskrá, uppboði og
kaffiveitingum í umsjá kvenfélagsins. Söfnuðust
þó nokkrir fjármunir þó svo aðsókn væri heldur
slakari en vonast var til.
Umhverfisverðlaun Bláskógabyggðar voru
afhent á Tveim úr Tungunum og að þessu sinni
féllu þau í skaut þeim Ingólfi Guðnasyni og
Sigrúnu Elfu Reynisdóttur fyrir garðyrkjustöðina
á Engi. Þar hafa þau stundað lífræna ræktun í
mörg ár og selja vörur sínar heima á sumrin.
Auk þessa eru þau með fallegan lækninga- og
kryddjurtagarð, völundarhús sem mótað er af
limgerði og berfótastíg þar sem fólk getur upplifað
að ganga berfætt á margskonar undirlagi.
Bláskógaskóli var settur 23. ágúst. Í Bláskóga-
skóla í Reykholti eru 74 nemendur og 28 í
leikskólanum Álfaborg. Á Laugarvatni eru 48 í
grunnskóladeild og 21 í leikskóladeild. Samtals
eru því 171 nemandi í leik og grunnskóla
Bláskógabyggðar
Tungnaréttum var flýtt um eina viku í haust og
voru þær haldnar laugardaginn 10. september. Var
það gert vegna þess að sláturleyfishafar ákváðu að
álagsgreiðslur yrðu hæstar á tímabilinu 31. ágúst
til 16. september. Stefnt er að því að Tungnaréttir
verði eftirleiðis annan laugardag í september.
Hvað segirðu til?
Helstu fréttir úr Tungunum seinni hluta árs 2016
Leitaði um allt
að þessum tveimur
úr Tungunum sem voru í
myndbandinu en fann þær
ekki. Þær voru svo ansi
laglegar.
Ottó Eyfjörð Jónsson.