Litli Bergþór - 01.12.2016, Síða 42
42 Litli-Bergþór
Veður var gott í fjallvikunni og var réttað álíka
mörgu fé og vant er. Í eftirsafn var farið 29. sept.
og heimtust þá alls 136 kindur samanlagt af afrétti
innan ár og framafrétt. Síðan hafa náðst 7 kindur
sem rjúpnaskyttur og aðrir hafa séð og sagt til. Eru
bændur almennt ánægðir með heimtur af fjalli.
Í Hrosshaga er ýmislegt að gerast. Þar hefur
Jón Ágúst Gunnarsson komið sér upp verkstæði
þar sem hann tekur að sér allt almennt viðhald á
öllum farartækjum og vinnuvélum. Nefnir hann
fyrirtæki sitt Viðhald & Drátt. Gunnar bóndi
tók í september við starfi „ruslamálaráðherra“,
eins og hann kallar það sjálfur, á gámasvæðum
Bláskógabyggðar Sigga Jóna, sem er að sjálf-
sögðu bóndi líka, hefur nóg að gera við að sinna
norðurljósasvefnkúlunum í landi Hrosshaga sem
nú eru orðnar 5 talsins. Búið er að koma upp
hreinlætissaðstöðu í sambandi við þær og mun
aðsókn vera mikil og upppantað langt fram í
tímann.
Af vegagerð í sveitinni er það að frétta að
vegarspottinn framhjá Hrosshaga, Miklaholti
og Torfastöðum, að vegamótum Reykjavegar,
var breikkaður í sumar og sett á hann slitlag. Þá
hefur verið lagt slitlag á Miðholt og Kistuholt í
Reykholti og lagður vegur upp að landi Eflingar
á holtinu fyrir ofan Grunnskólann, þar sem
fyrirhuguð er íbúðabyggð.
Bygging veituhúsnæðis í Reykholti er lokið.
Einnig var sett niður rotþró af stærri gerðinni fyrir
neðan byggðina í Kistuholti og Miðholti, sem á
að þjóna byggðinni þar.
Gylfi Haraldsson, læknir við Heilsugæslustöðina
í Laugarási, hætti störfum í júlí í sumar eftir 32
ára farsælt starf sem heilsugæslulæknir. Pétur Z.
Skarphéðinsson, sem starfað hefur frá 1983, er
enn að, en mun hætta um áramót. Þeir urðu báðir
sjötugir á árinu. Í þeirra stað hafa verið ráðnir
til starfa læknarnir Þórður Guðmundsson, sem
tók til starfa í sumar og Sigurjón
Kristinsson, sem ráðinn hefur
verið sem yfirlæknir til eins
árs frá 1. janúar nk.
Lyfjafræðingur Lyfju-úti-
bús í Laugarási, Geirþrúður
Sighvatsdóttir, fór í ársleyfi frá
störfum nú í haust og mun hún m.a.
nýta tímann til að nema heimspeki
við Háskóla Íslands í vetur. Til að
sinna starfinu í fjarveru hennar var Elfa
Björk Kristjánsdóttir ráðin starfsmaður
útibúsins.
Sóknarpresturinn í Skálholti, séra
Egill Hallgrímsson er einnig farinn
í námsleyfi og mun það vara til
maíloka 2017. Hann stundar nám í
Stjórnendamarkþjálfun við Háskólann
í Reykjavík.
Séra Jóhanna Magnúsdóttir leysir séra Egil af
í námsleyfi hans. Hún býr í Laugarási. Jóhanna
starfaði síðast á Sólheimum í Grímsnesi, fyrst
sem forstöðumaður félagsþjónustu staðarins og
síðan sem prestur.
Hótelbyggingum og gistirýmum í Bláskógabyggð
fjölgar óðfluga. Byggt hefur verið við hótelið í
Brattholti sem telur nú 35 herbergi í stað 16 áður. Í
Kjarnholtum hefur verið opnað hótel. Brekkugerði
í Laugarási, sem var í eigu Gunnlaugs Skúlasonar
dýralæknis og Renötu Vilhjálmsdóttur konu hans,
hefur nú verið breytt í gistiheimili ásamt fleiri
húsum í nágrenni við það.
Jón Bjarnason organisti í Skálholti hafði forgöngu
um að yfirfara flygillinn í Aratungu, sem er af
Grotrian Steinweg gerð. Hann var keyptur af
Tónlistarfélagi Reykjavíkur á árabilinu frá 1965 til
1970 en hann mun vera frá árinu 1959. Það hefur
því trúlega verið kominn tími á yfirhalninguna,
Það liggur
náttúrulega í aug-
um úti að lokaritgerð
Þrúðu hlýtur að fjalla
um aðalmanninn
í Tungunum!
Kvenfélag Biskupstungna sendir félögum sínum og Sunnlendingum
öllum bestu óskir um gleðileg jól
og farsælt komandi ár.
Þökkum ánægjuleg samskipti á liðnum árum.