Litli Bergþór - 01.12.2016, Side 43
Dröfn Þorvaldsóttir í Kvistholti hélt sýningu á
myndverkum sínum í Oddsstofu í Skálholtsbúðum,
helgina 15. – 16. október s.l. Þar sýndi hún
akrýlmyndir, leirfígúrur og postulínsmálaða
bolla.
Litli-Bergþór 43
sem fór fram í september, en þá skiptu Kristinn
Leifsson píanóstillari og Boaz Kirchenbaum um
hamra og strengi í flyglinum. Af því tilefni hélt
Jón tónleika í Aratungu þann 1. október, þar
sem hann lék píanótónlist og sýndi meðfram
skýja- og náttúruljósmyndir sem hann hefur tekið.
Ríkið kaupir Geysissvæðið. Þann 7. október
undirrituðu Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra og Hjörleifur B. Kvaran,
lögmaður Landeigendafélags Geysis ehf.,
samning um kaup ríkisins á öllum eignarhluta
landeigendafélagsins innan girðingar á
Geysissvæðinu.
Óvíst er hvað ríkið mun greiða landeigendafélaginu
fyrir svæðið en samkvæmt samningnum verður
kaupverð eignarhlutans lagt í mat þriggja
dómkvaddra matsmanna.
Hallgrímskirkju og Arnar Jónsson, leikari.
Egill hélt útgáfutónleika í Salnum í Kópavogi
laugardaginn 26. nóvember. Diskurinn er til sölu
á www.egillpalsson.com. Þar er einnig hægt að
hlusta á brot úr lögunum og fræðast um diskinn
og tilurð hans. Diskurinn er einnig seldur í
Bjarnabúð.
Í nóvember bættist í ruslatunnuflóruna við
heimili Tungnamanna er dreift var tunnum með
grænu loki sem ætlaðar eru undir plast.
Egill og Júlía
Freydís, dóttir
hans, flytja
lagið „Mamma
ætlar að sofna“
á útgáfu-
tónleikunum.
Kvenfélag Biskupstungna hélt sinn árlega
jólamarkað í Aratungu laugardaginn 26.
nóvember. Sú nýbreytnin var á markaðnum í ár að
haldin var piparkökuhúsakeppni. Bárust fjögur
hús í keppnina og bar Ellisif Bjarnadóttir sigur úr
býtum.
Haraldur Kristjánsson, bóndi í Einholti
hefur gefið Bláskógabyggð höfðinglega gjöf að
upphæð 10 milljónir króna sem varið verður til
að betrumbæta húsnæði eldri borgara í kjallara
Bergholts í Reykholti.
Andlát
Leiðrétting. Þau leiðu mistök urðu í síðasta
tölublaði að rangt var farið með föðurnafn Bjarna
Sveinssonar á Helgastöðum í andlátsfrétt um
hann. Birtist tilkynningin því hér aftur leiðrétt.
Aðstandendur Bjarna eru beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
Bjarni Sveinsson frá Helgastöðum lést
föstudaginn 8. apríl. Útför hans fór fram frá
Skálholtsdómkirkju föstudaginn 22. maí. Jarðsett
var að Ólafsvöllum á Skeiðum.
Jónína Sigríður Jónsdóttir frá Lindarbrekku
lést laugardaginn 13. ágúst. Útför hennar fór fram
frá Skálholtsdómkirkju föstudaginn 19. ágúst.
Jarðsett var í Skálholtskirkjugarði.
Guðni Karlsson frá Gýgjarhóli lést miðviku-
daginn14. september. Útför hans fór fram frá
Skálholtsdómkirkju þriðjudaginn 20. september.
Furðufuglar Drafnar.
Glæsileg piparkökuhús.
Egill Árni Pálsson, ættaður úr Laugarási, hefur
gefið út hljómdiskinn Leiðslu, með einsöngs- og
tvísöngsperlum. Kristinn Örn Kristinsson leikur
á píanó og Sophie Schoonjans á hörpu. Auk
Egils koma fram þau Kristinn Sigmundsson,
Oddur Arnþór Jónsson, Júlía Freydís Egilsdótt-
ir, Karlakórinn Þrestir, félagar út Mótettukór