Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 24
24 26. október 2018 Í nóvember árið 2017 hrap- aði litháísk fyrirsæta að nafni Dovile Didziunaityte til bana af hótelsvölum á fjórtándu hæð í borginni Klaipeda í Litháen. Dovile, sem á ömmu búsetta á Ís- landi og hafði dvalið hér á sumr- in, hafði að öllum líkindum ver- ið byrluð eiturlyf og henni haldið nauðugri og henni nauðgað í marga daga samfleytt. Ættingjar hennar eru sannfærðir um að hún hafi verið misnotuð og myrt af háttsettum mönnum og í kjölfarið hafi verið hylmt yfir glæpinn. Um viku eftir dauða hennar lést hótel- starfsmaður á voveiflegan hátt. Dovile Didziunaityte var slá- andi fríð og hávaxin fyrirsæta sem bjó í Vilnius, höfuð- borg Litháen. Hún var vinsæl bæði sem ljós- mynda- og fatafyr- irsæta og starfaði úti um allan heim, í Kína, Rússlandi, Þýskalandi, Spáni, Frakklandi og Ítal- íu þar sem um- boðsmaður henn- ar starfaði. Frá því að hún var ung stúlka kom hún til Íslands á sumrin og dvaldi hjá ömmu sinni sem er búsett í Kópa- vogi. Einnig dvaldi hún mikið hjá móð- ur sinni í Noregi. Féll fjórtán hæðir Þann 10. nóv- ember árið 2017 kom Dovile að hafnarborginni Klaipeda í Lit- háen í fylgd með framleið- andanum Ric- hard Pinik eftir tískusýn- ingu í Vilni- us. Hegð- un hennar var undar- leg, líkt og hún væri lyfjuð. Hún sagði engum í fjölskyldu sinni að hún væri í borginni og svaraði eng- um símhringingum. Þau innrit- uðu sig á Amberton-hótelið og fengu herbergi á fjórtándu hæð. Tveimur dögum síðar átti hún að vera komin til starfa í Ítalíu en lét ekki sjá sig. Hótelstarfsmenn sáu fjölda manns fara inn og út úr her- berginu næstu tíu daga. Einnig sáu þeir menn með lyfjaglös. Klukkan hálf átta um kvöldið þann 20. nóvember fannst Dovile látin fyrir utan hótelið. Hún hafði hrapað af svölum á gangi fjórt- ándu hæðar og látist samstund- is. Lögregla kom á staðinn til að rannsaka málið en skömmu síð- ar gaf Gintautas Maciulaitis, lög- reglustjóri borgarinnar, út yfirlýs- ingu um að líklegast hefði fallið verið slys. Maðkur í mysunni Margt benti hins vegar til þess að fall Dovile hefði ekki verið af slys- förum eða sjálfsvíg. Fyrir ofan svalirnar voru tvær járnstangir og nokkuð mikið átak þurfti til að komast yfir þær. Fjórir menn höfðu komið inn á herbergið hennar þennan dag og einn þeirra sást á myndbandsupptöku elta Dovile út á svalir gangsins. Eftir það heyrðust óp. Pinik var yfirheyrður en sagð- ist ekki hafa séð neitt og var hon- um í kjölfarið sleppt. Ekki hafði starfsfólk hótelsins heldur neitt að segja. Engu að síður var búið að þrífa og dauðhreinsa herberg- ið skömmu eftir fall Dovile þó að vitað væri að þar hefði verið mik- ið fyllerí í gangi. Þegar lögreglan kom var búið að eyðileggja mörg sönnunargögn þar. Ekkert í fari Dovile benti til sjálfsvígs, hún var hamingjusöm, átti góðan feril og gott samband við fjölskyldu sína og vini. Móðir hennar, Daiva, flaug strax frá Noregi til Litháen og fór beint á Amberton-hótelið til að reyna að skilja hvað hafði gerst. Eftir að hafa skoðað aðstæður og rætt við fólk varð hún sannfærð um að lát Dovile hefði hvorki verið slys né sjálfsvíg. Einnig skildi hún ekki hvernig Pinik gat gengið laus þar sem hann hlyti að hafa komið að málinu. Þann 29. nóvember, aðeins níu dögum eftir fall Dovile, fannst annað lík við Amberton-hótel- ið. Var það af 27 ára gömlum hót- elstarfsmanni sem fallið hafði af þakinu á annarri bygginu hótels- ins, tólftu hæð. Á þakinu fundust sími hans, lyklar og fleiri persónu- legir munir. Lögreglan rannsakaði málið en fljótlega kom tilkynning frá lögreglufulltrúa um að dauðs- fallið væri ekki talið hafa borið að með saknæmum hætti og tengdist falli Dovile ekki neitt. Fjölskyldan berst við spillingu Við rannsókn á líki Dovile kom í ljós að hún hafði innbyrt mik- ið magn af deyfandi lyfjum og var með áverka sem bentu til bar- smíða og fjölmarga marbletti á fótleggjunum. Hún hafði haft samfarir við að minnsta kosti tvo menn þennan dag og var lík henn- ar án nærklæða. Einnig fannst DNA-sýni sem passaði við lækni að nafni Aivaras Miltenis. Hann var einn af þeim fjórum mönn- um sem komið höfðu á herbergið þennan dag. Fjölskylda Dovile er sannfærð um að henni hafi verið haldið nauðugri og í lyfjamóki á hót- elherberginu í tíu daga. Einnig að það hafi verið selt inn á hana og hátt settir menn nýtt sér það. Fjölskyldan telur líklegt að þegar Dovile rankaði við sér og reyndi að komast burt hafi henni verið fleygt fram af svölunum. Hefur frændi Dovile, Arunas Pakulevicius, gerst talsmaður fjölskyldunnar út á við og komið fram í fjölda viðtala. Rannsókn málsins hefur ver- ið mjög hæg. Pakulevicius sagði að fyrstu vikuna hefði ekkert verið gert og að lögmaður fjölskyldunn- ar þyrfti að hafa sig allan við til að þoka málinu áfram. Nú tæpu ári eftir dauða Dovile hefur enginn verið ákærður en mestur grunur beinist að Pinik og Miltenis. Pakulevicius sagði í þættinum KK2: „Ég er ekki reiður, en þetta er hættulegt öðru fólki. Maður er ekki sekur nema maður sé dæmd- ur en ef maður er grunaður um morð, nauðgun og eiturlyfjasmygl, þá ætti hann ekki að ganga laus. Það skapar hættu fyrir aðrar stúlk- ur.“ Rannsóknin stendur enn þá yfir og fjölskyldan er orðin þreytt á bið eftir réttlætinu og því að sak- sóknari beiti sér ekki í málinu. Þá sé Pinik ekki grunaður um morð heldur aðstoð við sjálfsvíg. Hefur fjölskyldan komið fram í viðtölum og skrifað opin bréf til að halda málinu lifandi, en í Litháen er mikil spilling, sérstaklega í réttar- kerfinu og grunar fjölskylduna að málið verði einfaldlega látið niður falla. n FRÉTTIR - ERLENT Gylfaflöt 6 - 8 S. 587 - 6688 fanntofell.is BORÐPLÖTUR & SÓLBEKKIR Fyrirsæta sem dvaldi á Íslandi talin hafa verið myrt n Féll 14 hæðir n Lyfjuð og selt inn á hana í 10 daga Kópavogur Dovile dvaldi hjá ömmu sinni á sumrin. Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Amberton Dovile féll niður 14 hæðir. „Ef maður er grun- aður um morð, nauðgun og eitur- lyfjasmygl, þá ætti hann ekki að ganga laus.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.