Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 44
Öryggi 26. október 2018KYNNINGARBLAÐ
ÖRYGGISMIÐSTÖÐIN:
Snjallöryggi er ný kynslóð
öryggiskerfa
Öryggismiðstöðin var stofn-uð árið 1995 og hefur því langa og góða reynslu á
sviði öryggisþjónustu. Hjá Öryggis-
miðstöðinni fæst allt frá A til Ö fyrir
öryggismál heimila og fyrirtækja
og þar er boðið upp á alla öryggis-
þjónustu.
„Snjallöryggi er ný kynslóð ör-
yggiskerfa fyrir heimili og minni fyr-
irtæki,“ segir Kristinn Loftur Einars-
son hjá Öryggismiðstöðinni.
„Snjallöryggi er öryggiskerfi sem
er komið í símann hjá þér og þú
ert með app sem stýrir kerfinu. Þú
getur skoðað stöðuna á kerfinu,
getur tekið það af verði í gegnum
appið, séð hitastig á öllum skynjur-
um og búið til snjallreglur. Snjall-
reglurnar eru mjög sniðugar þegar
þú ert með börn, þá er barnið með
flögu sem það ber að skynjara
kerfisins til að taka það af verði. Þú
getur þá útbúið reglu sem lætur
kerfið senda þér tilkynningu um að
kerfið hafi verið tekið af verði.“
Í kerfinu eru tveir einstaklingar
settir upp sem aðalnotendur, þeir
geta breytt, sett upp snjallreglur,
bætt við tengiliðum og búnaði,
viðbætur og annað slíkt eru mjög
einfaldar aðgerðir. Í heildina geta
verið 32 notendur skráðir í kerfið,
þannig að Snjallöryggi hentar vel
fyrir minni fyrirtæki.
Með Snjallörygginu er einnig
hægt að taka kerfið af á fyrirfram
ákveðnum tíma, þegar vitað er
að von er á umgangi. Snjalllás er
viðbót, „þá get ég opnað hurð í
gegnum símann hjá mér, til dæmis
þegar ég veit að iðnaðarmaður er
að koma eða tengdó í heimsókn
og þá tek ég kerfið af líka,“ segir
Kristinn.
Hægt er að stjórna heimilistækj-
um með snjalltengi, til dæmis ef
það gleymist að slökkva á heimilis-
tæki sem er í gangi.
Snjallöryggið er tengt í gegnum
netið og með GSM hringibúnaði
sem varaleið, enda flestir hættir
með landlínu. „Við erum mikið í því
núna að aðstoða viðskiptavini við
að skipta út kerfum, svona svipað
og þegar fólk fór úr túbusjónvarpi
yfir í flatskjá. Mjög einfalt er að
skipta um þjónustuaðila og við hjá
Öryggismiðstöðinni sjáum um ferlið
frá A-Ö.“
Staðalbúnaður er hreyfiskynj-
ari með innbyggðri myndavéla-
linsu, allir fá sér minnst einn slík-
an skynjara. „Þá sérðu ef/þegar
kemur útkall frá kerfinu hvort það
er barnið þitt sem gleymdi að
taka kerfið af eða óboðinn gestur.
Einnig er hægt að bæta við HD
myndavélum, ef vélarnar eru orðn-
ar margar, þá er skynsamlegra að
fá sérstakt myndavélakerfi.“
Söluráðgjafi gerir sérstaka
þarfagreiningu fyrir hvern við-
skiptavin, og ef þörf þykir á þá er
farið heim til fólks og aðstæður
teknar út sérstaklega. Sérþjálfaður
tæknimaður sér um uppsetningu
og getur þá jafnvel komið með
tillögur að breytingum.
Öryggismiðstöðin selur allt sem
tengist öryggismálum: „Við erum
með gæslu, tækniþjónustu, vörur
frá einföldum heimakerfum upp í
flókin aðgangskerfi fyrir risastórar
fasteignir, eftirlitsmyndavélakerfi
svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Krist-
inn.
Öryggismiðstöðin er að Aska-
lind 1, Kópavogi. Verslunin er opin
virka daga frá kl. 9-17. Síminn er
570 2400 og netfangið er oryggi@
oryggi.is.
UPPSETNING ER INNIFALIN OG FRAMKVÆMD AF
TÆKNIMANNI OG ÞVÍ EINUNGIS GREITT MÁNAÐ-
ARGJALD, 3 SKYNJARA KERFI ER Á 5.900
KR., 5 SKYNJARA KERFI ER Á 6.900 KR. OG 7
SKYNJARA KERFI 7. 900 KR.
EFTIR ÞAÐ ER GREITT FYRIR VIÐBÆTUR.