Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 72

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 72
26. október 2018 41. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 1.999 kr. BBQ Bacon Tower borgari, 3 Hot Wings, franskar, gos og bleikar Appoloreimar. 1.299 kr. BBQ BACON TOWER BORGARI Original kjúklingabringa böðuð í unaðslegri BBQ sósu, ostur, beikon, kartöfluskífa, iceberg salat og léttmajónes. Ég fell í trans... Lítt þekkt ættartengsl Óþægileg ættartengsl Femínistinn og fjölmiðlakonan U ndanfarnar vikur hef- ur hálfgert kynjastríð geisað á netmiðlum þar sem Hildur Lilliendahl Viggósdóttir, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg og femínisti, fer fremst í flokki. Ljóst er að fáir hafa jafnmikla hæfileika og Hildur til þess að ýfa stélfjaðr- irnar hjá sperrtum karlfuglum. Hildur er ekki ein um að vera umdeild í fjölskyldu sinni. Fað- ir Hildar heitir Viggó Bragason en systir hans er fjölmiðlakon- an Agnes Bragadóttir. Agnes gerði allt vitlaust innan verka- lýðshreyfingarinnar á dögun- um með röð frétta um óein- ingu innan Eflingar og tengsl forystunnar við Gunnar Smára Egilsson og eiginkonu hans. Þær standa stöðugt í ströngu, frænkurnar. Ráðist á transkonu á Lækjartorgi L íkamlegu áverkarnir eru í raun aukaatriði, þetta tekur mest á sálina,“ seg- ir transkonan Candice Aþena Jónsdóttir. Síðastliðið þriðjudagskvöld varð Candice fyrir aðkasti og árás hóps Pól- verja á Lækjartorgi. „Ég var bara á rölti þegar einn úr hópn- um fór að abbast upp á mig. Kallaði mig öllum illum nöfn- um og hrækti síðan á mig. Ég reyndi að tala hann til en þá stökk hann upp og sparkaði í höndina á mér. Ég hélt fyrst að ég væri brotin,“ segir Candice í samtali við DV. Hún fór í kjölfarið upp á bráðamóttöku til þess að fá bót meina sinna. Blessunarlega var höndin ekki brotin held- ur brákuð. Að sögn Candice er þetta ekki í fyrsta skipti sem hún verður fyrir áreiti og aðk- asti á almannafæri. „Þetta gerist því miður reglulega og útlendingarnir eru mun verri en Íslendingar. Yfir- leitt eru þetta þó ljót orð en ekki líkamlegt ofbeldi. Ég myndi ekki segja að Íslendingar væru alveg fordómalausir en þeir eru mun umburðalyndari,“ segir Candice. Hún segist ekki hafa ákveðið hvort hún kæri árásina. „Þetta var mikið sjokk og ég var óttaslegin. Ég var fegin að þetta fór ekki verr. Ég á enn eftir að ákveða hvort það hafi eitthvað upp á sig að kæra þessa árás. Ég vil að minnsta kosti að allir séu meðvitaðir um hvað transfólk þarf að ganga í gegnum og for- dæmi hegðun sem þessa,“ segir Candice. J ón Steinar Gunnlaugsson hefur staðið í fremstu víg- línu kynjastríðs sem geisað hefur í netheimum undan- farna daga. Í stuttu máli vakti lögfræðingurinn athygli á því í blaðagrein að fjölmargar konur væru að níða hann á lokuðu vef- svæði sem stjórnað er af þrem- ur þekktum femínistum, Hildi Lilliendahl, Sæunni Ingibjörgu Marinósdóttur og Sóleyju Tóm- asdóttur. Síðan þá hafa netheim- ar logað og skoðanaskipti Jóns Steinars og þremenninganna verið hörð. Þannig vill til að talsverð ætt- artengsl eru milli Jóns Steinars og Sóleyjar. Tengdafaðir Jóns Steinars er Páll Bergþórsson, veðurfræðingurinn kunni. Bróð- ir Páls er Jón Bergþórsson en hann er afi Sóleyjar. Fjölskyldu- boðin hljóta að vera afar fjörug. Lögmaðurinn og femínistinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.