Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Síða 72
26. október 2018
41. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
1.999 kr.
BBQ Bacon Tower borgari,
3 Hot Wings, franskar,
gos og bleikar Appoloreimar.
1.299 kr.
BBQ BACON
TOWER BORGARI
Original kjúklingabringa böðuð í
unaðslegri BBQ sósu, ostur, beikon,
kartöfluskífa, iceberg salat og
léttmajónes.
Ég fell í trans...
Lítt þekkt
ættartengsl
Óþægileg
ættartengsl
Femínistinn og
fjölmiðlakonan
U
ndanfarnar vikur hef-
ur hálfgert kynjastríð
geisað á netmiðlum þar
sem Hildur Lilliendahl
Viggósdóttir, verkefnastjóri hjá
Reykjavíkurborg og femínisti,
fer fremst í flokki. Ljóst er að
fáir hafa jafnmikla hæfileika og
Hildur til þess að ýfa stélfjaðr-
irnar hjá sperrtum karlfuglum.
Hildur er ekki ein um að vera
umdeild í fjölskyldu sinni. Fað-
ir Hildar heitir Viggó Bragason
en systir hans er fjölmiðlakon-
an Agnes Bragadóttir. Agnes
gerði allt vitlaust innan verka-
lýðshreyfingarinnar á dögun-
um með röð frétta um óein-
ingu innan Eflingar og tengsl
forystunnar við Gunnar Smára
Egilsson og eiginkonu hans.
Þær standa stöðugt í ströngu,
frænkurnar.
Ráðist á transkonu á Lækjartorgi
L
íkamlegu áverkarnir eru
í raun aukaatriði, þetta
tekur mest á sálina,“ seg-
ir transkonan Candice
Aþena Jónsdóttir. Síðastliðið
þriðjudagskvöld varð Candice
fyrir aðkasti og árás hóps Pól-
verja á Lækjartorgi. „Ég var
bara á rölti þegar einn úr hópn-
um fór að abbast upp á mig.
Kallaði mig öllum illum nöfn-
um og hrækti síðan á mig. Ég
reyndi að tala hann til en þá
stökk hann upp og sparkaði í
höndina á mér. Ég hélt fyrst að
ég væri brotin,“ segir Candice í
samtali við DV.
Hún fór í kjölfarið upp á
bráðamóttöku til þess að fá bót
meina sinna. Blessunarlega
var höndin ekki brotin held-
ur brákuð. Að sögn Candice
er þetta ekki í fyrsta skipti sem
hún verður fyrir áreiti og aðk-
asti á almannafæri.
„Þetta gerist því miður
reglulega og útlendingarnir eru
mun verri en Íslendingar. Yfir-
leitt eru þetta þó ljót orð en ekki
líkamlegt ofbeldi. Ég myndi
ekki segja að Íslendingar væru
alveg fordómalausir en þeir eru
mun umburðalyndari,“ segir
Candice. Hún segist ekki hafa
ákveðið hvort hún kæri árásina.
„Þetta var mikið sjokk og ég var
óttaslegin. Ég var fegin að þetta
fór ekki verr. Ég á enn eftir að
ákveða hvort það hafi eitthvað
upp á sig að kæra þessa árás. Ég
vil að minnsta kosti að allir séu
meðvitaðir um hvað transfólk
þarf að ganga í gegnum og for-
dæmi hegðun sem þessa,“ segir
Candice.
J
ón Steinar Gunnlaugsson
hefur staðið í fremstu víg-
línu kynjastríðs sem geisað
hefur í netheimum undan-
farna daga. Í stuttu máli vakti
lögfræðingurinn athygli á því í
blaðagrein að fjölmargar konur
væru að níða hann á lokuðu vef-
svæði sem stjórnað er af þrem-
ur þekktum femínistum, Hildi
Lilliendahl, Sæunni Ingibjörgu
Marinósdóttur og Sóleyju Tóm-
asdóttur. Síðan þá hafa netheim-
ar logað og skoðanaskipti Jóns
Steinars og þremenninganna
verið hörð.
Þannig vill til að talsverð ætt-
artengsl eru milli Jóns Steinars
og Sóleyjar. Tengdafaðir Jóns
Steinars er Páll Bergþórsson,
veðurfræðingurinn kunni. Bróð-
ir Páls er Jón Bergþórsson en
hann er afi Sóleyjar. Fjölskyldu-
boðin hljóta að vera afar fjörug.
Lögmaðurinn
og femínistinn