Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 65
SAKAMÁL 6526. október 2018
3 dagar liðu frá því að Bandaríkjamað-urinn Mesac Damas myrti alla sína fjölskyldu þar til hann var handtek-
inn. Um var að ræða eiginkonu hans Guerline
og fimm börn þeirra; Michzach, 9 ára,
Marven, 6 ára, Maven, 5 ára, Megan, 3 ára,
og Morgan, 11 mánaða. Damas stakk þau öll
til bana. Morðin framdi hann 18. september,
2009, á Flórída en hann var handtekinn á
Haítí og síðan framseldur til Flórída. Hann
fékk dauðadóm 27. október 2017.
Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / Bara snilld ehf. - Egilsstöðum
í næsta hús eftir hjálp og var um-
svifalaust leitað til lögreglunn-
ar. Upphófst mikil leit að William
og kannski eðlilega kíkt inn á all-
ar knæpur í grenndinni. Um síð-
ir fannst William á Windmill Inn
þar sem hann sat að sumbli og án
málalenginga sagði hann við lög-
regluþjóninn sem handtók hann:
„Já, ég gerði það. Hún hefur átt það
skilið í langan tíma … Ég veit að ég
mun finna lykkjuna um hálsinn á
mér vegna þess.“
18 sentimetra skurður
Líkskoðun leiddi í ljós að skurð-
urinn á hálsi Söruh var 18 senti-
metra langur og grófur og greini-
legt að William hafði þurft að beita
þónokkru afli til að skera eigin-
konu sína á háls. En talið var nokk-
uð víst, í ljósi viðamikilla höfuðá-
verka, að Sarah hafði verið látin
þegar William beitti kutanum.
Réttað var yfir William 10.
ágúst, 1897, og þrátt fyrir viðleitni
verjanda hans til að fá hann úr-
skurðaðan veikan á geði tók það
kviðdóm aðeins þrettán mínútur
að sakfella hann.
William brá ekki svip þegar
dómarinn dæmdi hann til dauða.
William Wilton var hengdur 29.
ágúst í Lewes-fangelsi og síðar
hafði böðullinn á orði að William
hefði verið viljasterkasti maður
sem hann hefði sent yfir móðuna
miklu. n
Lewes-fangelsi (fyrir miðri mynd) Síðasti
viðkomustaður Williams Wilton.
ÁSTÆÐULAUST MORÐ
n Gary Hirte myrti mann og montaði sig af því n Bar síðar við stundarbrjálæði„Tveir dagar liðu
áður en líkið af
Kopitske fannst og slík-
ur var hitinn að líkið var
þegar farið að rotna
þegar móðir hans, Shirley,
fann það.
Ó
tal ástæður geta legið fyrir
því að einhver ákveði að
verða öðrum að bana; af-
brýðisemi, fjármunir og
hrein og klár sturlun, svo fátt eitt
sé nefnt. Ekkert af þessu átti við
hjá Bandaríkjamanninum Gary
Hirte, hann langaði einfaldlega að
vita hvort hann kæmist upp með
morð.
Þann 31. júlí, 2003, myrti
Hirte, sem þá var 17 ára, 37 ára
afgreiðslumann, Glenn
Kopitske, í Wisconsin.
Umræddur Kopitske
hafði það sér til frægðar
unni að hafa sjö árum
áður sóst eftir emb-
ætti forseta Banda-
ríkjanna, þrátt fyrir að
hafa þá ekki aldur til.
En það er önnur saga.
Enginn meðaljón
Gary Hirte
var enginn meðaljón og árið 2002
varð hann fyrstur drengja frá bæn-
um Weyauwega í Wisconsin til að
hljóta titilinn Eagle Scout í 20 ár.
Um er að ræða æðstu tignargráðu
sem hægt er að ná innan skáta-
hreyfingar drengja í Bandaríkjun-
um.
Í menntaskóla keppti Hirte
í hvort tveggja fótboltaliði og
glímuliði síns skóla. Gary Hirte
vann skólastyrk til að nema við St.
Cloud-skólann í Minnesota,
þar sem hann nam
refsirétt. En það er einnig
önnur saga.
Gums lekur úr gati
Sem sagt, 31. júlí skaut
Hirte Kopitske til bana.
Hann lét líkið liggja en
tók bifreið fórnarlambsins
traustataki. Tveir
dagar liðu áður
en líkið
af Glenn Kopitske fannst og slík-
ur var hitinn að líkið var þegar
farið að rotna þegar móðir hans,
Shirley, fann það.
Hún hafði ítrekað reynt að ná
sambandi við hann án árangurs og
því ákveðið að kanna hverju sætti.
Það var ekki fyrr en að krufn-
ingu lokinni, 5. ágúst, sem ljóst
varð að dauða Kopitske hafði ekki
borið að með eðlilegum hætti.
Meinafræðingur tók þá eftir að
eitthvert gums lak út um gat á aft-
anverðri höfuðkúpunni. Einnig
voru stunguáverkar á bringunni
en úrskurðað að þeir voru veittir
að Kopitske látnum.
Montar sig af morðinu
Hver veit nema Hirte hefði kom-
ist upp með morðið ef hann, hálf-
um mánuði síðar, hefði látið vera
að guma sig af því. Hann
sagði vini sínum, Eric
Wenzelow, frá morðinu og
þegar Wenzelow lagði ekki
trúnað á frásögnina, sýndi
Hirte honum veiðihnífinn
sem hann hafði stungið
Kopitske með. Einnig sýndi
hann Wenzelow lyklana að
bifreið Kopitske. Allt þetta
hafði þó ekki nokkrar af-
leiðingar.
Í ágúst tók Hirte upp
samband við snót að nafni
Olivia Thoma. Hirte sagði
henni að hann hefði skotið
Kopitske í hnakkann og síð-
an stungið hann í bak og
fyrir. Það var síðan í janúar 2004
sem Olivia Thoma hafði samband
við lögregluna.
Ótrúverðug frásögn
Eftir að Thoma hafði upplýst lög-
regluna um frásögn Hirte fékk lög-
reglan hana til að hringja í hann og
reyna að fá hann til að játa verkn-
aðinn. Það gekk allt eftir og lög-
reglan náði játningunni á upp-
töku.
Vindur nú sögunni fram til 30.
ághúst þetta sama ár. Þá var Hirte
ákærður fyrir morð að yfirlögðu
ráði. Við réttarhöldin bar hann því
við að hann yrði samkynhneigð-
ur þegar hann væri undir áhrif-
um áfengis. Þannig hefði verið
ástatt fyrir honum 31. júlí, 2003,
og hann hefði þá haft samræði við
Kopitske. Eftir á hefði hann fyllst
viðbjóði á sjálfum sér og ekki ver-
ið í andlegu jafnvægi þegar hann
banaði Kopitske.
Sakhæfur og sakfelldur
Lítill trúnaður var lagður á frásögn
Hirte og talið nokkuð augljóst að
hann hefði, eins og áður er getið,
framið morðið til þess eins að sjá
hvort hann kæmist upp með það.
Þann 4. febrúar, 2005, var úrskurð-
að að Hirte væri, og hefði verið,
heill á geði og hann sakfelldur fyrir
morð. Hann fékk lífstíðardóm fyrir
lífið sem hann slökkti. n
Gary Hirte Virðist hafa myrt
til þess eins að prófa það.
Glenn Kopitske Var kannski
einfaldlega óheppinn.