Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 15
26. október 2018 FRÉTTIR 15 Það er staðreynd að… Heilbrigt hjarta dælir um 2.000 lítrum af blóði á dag. Aðeins 10–15% allra jarðarbúa eru örvhent. Á meðaldegi slasast 40 manns á trampólíni. Yngsti páfi sögunnar var 11 ára. FEGURÐ ENDING MÝKT Kostirnir eru ótvíræðir: • Fallegra hús • Ekkert viðhald Ál er okkar mál • Fossaleyni 8 • 112 Reykjavík • Sími: 577 4100 • altak.is VEGGKLÆÐNINGAR Fyrir allar gerðir húsa, ný jafnt sem gömul, fjöldi lita og gerða ALLT Í HÁALOFT Á HÁLENDINU n Fimm útivistarfélög segja sig frá samstarfi við Landvernd n Ósammála um lokun Vonarskarðs Þ róunin er í þá átt að þrengja aðgengi almennings að náttúruperlum. Við erum ekki hlynnt því nema að sterk náttúruverndarrök liggi að baki. Við teljum að engin slík rök séu á bak við lokun Vonarskarðs. Það má segja að baráttan um opnun skarðsins sé táknræn fyr- ir baráttuna um aðgengi almenn- ings að hálendinu almennt,“ segir Skúli Skúlason, framkvæmdastjóri Ferðafélagsins Útivistar í samtali við DV. Rúm fimm ár eru síðan lokað var fyrir umferð um Vonar- skarð í kjölfar stofnunar Vatnajök- ulsþjóðgarðs. Deilt hefur verið á þá ákvörðun æ síðan. „Það hefur verið reynt að ná sáttum við stjórn Vatnajökuls- þjóðgarðs en öllum þeim tilraun- um hefur verið hafnað. Nú hefur staðan versnað því auk lokunar Vonarskarðs hefur verið bannað að tjalda á þessu 100 ferkílómetra svæði sem endanlega útilokar að fólk geti notið þeirrar náttúru sem þarna er að finna,“ segir Skúli. Að hans mati eru engin vísindaleg rök að baki lokunar Vonarskarðs. „Þetta er gríðarstórt svæði, aðal- lega sandar og melar, en aðeins lít- ill hluti þess er virkilega viðkvæm- ur, Snapadalur og hverasvæðin þar um kring. Þetta svæði er alltaf not- að sem rök fyrir lokuninni. Á sama tíma er Vatnajökulsþjóðgarður að setja upp skilti og gera göngustíga inn í þetta viðkvæma svæði. Það er ákveðinn tvískinnungur,“ segir Skúli. Slíta samstarfi við Landvernd Á dögunum sögðu fimm útivistar- félög sig úr samstarfi við Land- vernd vegna viljayfirlýsingar um stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands undir heitinu „Hálendið – Hjarta landsins“. Ritað var und- ir viljayfirlýsingu þann 7. mars 2016 en með úrsögninni líta útivi- starfélögin svo á að Landvernd sé ekki aðili að samstarfi við félögin á grundvelli viljayfirlýsingarinnar. Félögin sem um ræðir eru Ferða- félagið Útivist, Íslenski alpaklúbb- urinn, Skotveiðifélag Íslands, Ferðaklúbburinn 4×4 og Kayakk- lúbburinn. Ástæðan fyrir úrsögn félaganna er sú að í umsögn Landvernd- ar um stjórnar- og verndaráætl- un Vatnajökulsþjóðgarðs lýsa samtökin yfir afgerandi stuðningi við áframhaldandi hömlur á að- gengi almennings í Vonarskarði. Í skriflegri yfirlýsingu, sem DV hef- ur undir höndum, segja forsvars- menn félaganna fimm að erfitt sé að skilja umsögnin á aðra leið en þá að Landvernd hafi ekki hug á að standa við viljayfirlýsinguna og þá samstöðu sem félögin treystu á varðandi Miðhálendisþjóðgarð. Trúnaðarbrestur hafi átt sér stað og í ljósi þess er niðustaðan sú að Landvernd eigi að óbreyttu ekkert erindi í samstarf við félögin. Í skriflegu svari til DV seg- ir Rósbjörg Jónsdóttir, formaður Landverndar, að samtökin styðji og treysti niðurstöðum vísinda- manna sem mæla með því að halda Vonarskarði lokuðu. „Við treystum því að stjórn Vatnajök- ulsþjóðgarðs taki réttar ákvarðanir á grundvelli þess,“ segir Rósbjörg. Hún segist eiga von á því að funda með félögunum fimm á næstunni. „Við höfum alltaf verið tilbúin til að funda með þeim um málið, því það er meira sem sameinar okk- ur en sundrar. Við erum tilbúin að taka umræðuna um Vonarskarð en minnum á að það er stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs sem tek- ur þessa ákvörðun og svæðið er á þeirra ábyrgð,“ segir Rósbjörg. Sér ekki fyrir endann á átökum Mjög skiptar skoðanir eru uppi vegna fyrirhugaðrar stofnun- ar Miðhálendisþjóðgarðs. Sumir tala um sjálfsagða verndun nátt- úruverðmæta til framtíðar en aðr- ir spyrja hvort vernda eigi mann- gerðar auðnir og hvort þrengja eigi enn frekar að rétti almennings til að fara um eigið land. Sumir taka svo djúpt í árinni að tala um pólítíska sýndarmennsku þegar ráðast eigi í stórt verkefni án þess að liggi fyrir hver sé ávinningurinn og hvernig eigi að fjármagna ver- kefnið. Bent hefur verið á að Ís- lendingum hafi ekki enn tekist að standa almennilega að þeim þjóð- görðum sem fyrir eru í landinu enda séu þeir vanfjármagnaðir. Jafnframt eru verulegar efasemd- ir um verkefnið á landsbyggðinni, óttast margir að tilgangurinn sé að taka skipulagsvaldið af sveitarfé- lögum. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Deilt hefur verið um lokun Vonarskarðs um árabil. „Þetta er gríðar- stórt svæði, aðallega sandar og melar, en aðeins lítill hluti þess er virkilega viðkvæmur, Snapa- dalur og hverasvæðin þar um kring. Þetta svæði er alltaf notað sem rök fyrir lokuninni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.