Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 2
2 26. október 2018FRÉTTIR Á þessum degi, 26. október leiðir til að kveikja í IKEA-geitinni Búið er að reisa IKEA- -geitina fyrir utan verslun- ina í Kauptúni í Garðabæ. Það er orðið að eins konar jólahefð að kveikja í geitinni. Allt er gert til þess að koma í veg fyrir að borinn verði eldur að geitinni í ár, er hún m.a. víggirt og vöktuð með myndavélum. DV tók saman nokkrar aðferðir sem skemmdarvargar gætu notað til að kveikja í geitinni, skal það tekið skýrt fram að DV vill ekki að neinn noti þessar aðferðir. Mólótov-kokteill Gamla góða íkveikju- aðferðin. Bensín í glerflösku, bensínvætt grisja sett í stað tappa, kveikt í og kastað. Mikið notað af skæru- liðum. Eldvarpa Sennilega hættu- legasta og flóknasta aðferðin. Bannað er að flytja slík tól til lands- ins en ekki er hægt að stöðva einhvern með einbeittan brotavilja og nógu mikinn tíma og rúmgóðan bílskúr. Netheimar hafa einnig að geyma uppskriftir að heimagerðu napalmi. Slíkt gæti grandað geitinni og myndavélunum á sama tíma. Logandi ör Beint úr Hróa hetti. Það þarf boga, ör og bensínvætta grisju til að festa framan á örina. Eins og Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA, benti á í viðtali á Bylgjunni nýverið þá er mikill vindur í Kauptúni þannig að þessi aðferð krefst mikillar lagni. Dróni með eld Drónar, eða flygildi, eru úti um allt þessa dagana. Hægt er að kveikja í einhverju, festa við drónann, fljúga með hann yfir gaddavírinn, kveikja í geitinni og fljúga í skjól. Göng Erfiðasta aðferðin og það þarf líklega að byrja strax í dag ef kveikja á í geitinni fyrir jól. Hægt er að finna einhvern stað í Kauptúni sem er nálægt geitinni en þó í nógu mikilli fjarlægð frá myndavélunum. Grafa undir gaddavír- inni og kveikja í geitinni neðan frá. Síðustu orðin „Hví grátið þið. Hélduð þið að ég væri ódauðlegur?“ – Loðvík 14. Frakklandskonungur (1638–1715) 1881 – Skotbardaginn í O.K. Corral á sér stað í Tombstone í Arizona. 1905 – Svíþjóð samþykkir sjálfstæði Noregs. 2002 – Um 50 tsjetsjenskir hryðju- verkamenn og 150 gíslar láta lífið þegar rússneskar sérsveitir ráðast til atlögu í Dubrovka-leikhúsinu í Moskvu. Hryðju- verkamennirnir höfðu náð leikhúsinu á sitt vald þremur dögum fyrr og haldið þar um 850 manns í gíslingu. 1775 – Georg III Bretlandskonungur fer fyrir þingið til að lýsa því yfir að nýlendur í Bandaríkjunum hafi gerst sekar um uppreisn og gefur út heimild til hernað- araðgerða til að brjóta uppreisnina á bak aftur. 1377 – Tvrtko I er krýndur fyrsti kon- ungur Bosníu. É g kom til Íslands til þess að taka upp plötu en hlutirn- ir þróuðust aðeins í aðra átt,“ segir tónlistarmaðurinn og matarvagnseigandinn Johnny Cole í samtali við DV. Johnny hefur aðeins búið á Íslandi í rúma fimm mánuði en hefur á þessum stutta tíma náð að opna matarvagninn Fish & Co ásamt félaga sínum, Steve McCarthy. Vagninn, sem er staðsettur í Fógetagarðinum við Kirkjustræti, hefur slegið í gegn og er núna vinsælasti veitingastaður höfuðborgarinnar samkvæmt vef- síðunni Tripadvisor. Sú síða hef- ur mikið að segja varðandi hvaða veitingastaði erlendir ferðamenn heimsækja. Árangur þeirra félag- anna er því í raun ótrúlegur. Stefán Silfurtunga var happafengur „Við komum báðir frá borginni Middlesbrough í norðausturhluta Englands. Ég var búin að vera í stutta stund á Íslandi þegar þessi hugmynd um matarvagninn fór að gerjast og ég ákvað að að hr- ingja í Steve og bjóða honum að taka þátt. Sem betur fer sló Steve til. Ég kalla hann Silfurtunguna því hann er svo góður í kjaftinum og ég vildi leggja mikla áherslu á það að gestir okkar skemmtu sér vel og upplifðu sig velkomna. Það á að vera upplifun að panta sér mat hjá Fish & Co,“ segir Johnny. Bendir hann á að það sé farið að setja svip sinn á miðbæinn þegar Steve öskr- ar „ferskur fiskur, ferskur fiskur“ úr matarvagninum svo undir tekur Skilvirkt ferli hjá Reykjavíkur- borg Íslenskur vinur Johnnys, Unnar Helgi Daníelsson, sem á og rekur Icelandic Street Food og Icelandic Craft Bar við Lækjargötu, var fé- lögunum til halds og trausts þegar kom að því að koma ævintýrinu í gang. Johnny segir að ferlið hafi gengið ótrúlega hratt fyrir sig og kann borgaryfirvöldum bestu þakkir fyrir það. „Ég væri senni- lega enn að vinna í pappírunum í Englandi. Yfirvöld voru mjög já- kvæð varðandi opnun vagnsins. Hér virðast menn hafa opinn huga fyrir öllu því sem getur gert mið- bæinn meira lifandi og skemmti- legri,“ segir Johnny. Fyrsta uppskriftin var best Til að byrja með er matseðillinn á Fish & Co mjög einfaldur. Aðeins er boðið upp á einn rétt, þorsk á grænmetisbeði, þar sem kirsu- berjatómatar leika lykilhlutverk. Johnny og Steve virðast þó gera það ansi vel því erlendir ferða- menn halda ekki vatni yfir réttin- um, ef tekið er mið af umsögn á Tripadvisor. „Ef þú ert bara með einn rétt á matseðlinum þá verð- ur að gera hann rosalega vel. Það lá beinast við að vera með fisk enda elska allir fisk og hann er svo ferskur hérna á Íslandi. Við vor- um með nokkrar uppskriftir sem við vorum að henda á milli okkar en þetta var sú fyrsta og hún var best. Næsta skref verður að stækka aðeins matseðilinn,“ segir Johnny kíminn. Lambakjötið gæti orðið næst á dagskrá Athygli vekur að hvorki Steve né Johnny hafa nokkra reynslu af því að elda eða reka veitingastað. „Við höfðum báðir reynslu af því að vinna á bar en ekki í eldhúsi. Við- tökurnar hafa verið ótrúlegar og við erum mjög þakklátir fyrir þær,“ segir Johnny. Hann segist þegar vera farinn að leggja drög að öðr- um vagni þar sem lambakjöt verð- ur í öndvegi. „Ég held að það séu mikil tækifæri með matarvagna í Reykjavík enda er húsnæði mjög dýrt. Þetta hefur verið þróunin um allan heim,“ segir Johnny. Aðspurður hvort platan góða muni einhvern tímann koma út segir hann brosandi: „Að sjálf- sögðu. Ég skilgreini sjálfan mig fyrst og fremst sem tónlistarmann. Ég hef samt alltaf verið lélegur í því að halda mörgum boltum á lofti í einu og því ætla ég að einbeita mér að rekstrinum næstu misserin. Ég mun samt aldrei hætta að búa til tónlist,“ segir hann hress. n „Ég kalla hann Silfurtunguna því hann er svo góður í kjaft- inum og ég vildi leggja mikla áherslu á það að gestir okkar skemmtu sér vel og upplifðu sig vel- komna. Það á að vera upplifun að panta sér mat hjá Fish&Co. n Johnny Cole og Steve McCarthy eiga og reka Fish & Co-matarvagninn VINSÆLASTI VEITINGASTAÐUR LANDSINS ER MATARVAGN Í FÓGETAGARÐI Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.