Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 58
58 26. október 2018TÍMAVÉLIN Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is 20. júlí 1969 DEILURNAR UM BERLÍN 1948–1949 n Mesta loftbrú sögunnar Þ egar síðari heimsstyrjöldinni lauk skiptu sigurvegararn- ir; Bandaríkin, Bretland og Sovét ríkin, Þýskalandi á milli sín og skiptu upp í hernumin svæði þar sem hvert ríki fór með stjórn- ina. Berlín var langt inni á yfirráða- svæði Sovétríkjanna í austurhluta Þýskalands og var borginni skipt á milli ríkjanna. Bandaríkin, Bretland og Frakkland fóru með stjórn vest- urhluta borgarinnar en Sovétríkin réðu yfir austurhlutanum. Eins og samstarf vestrænu bandamannanna annars vegar og Sovétríkjanna hins vegar hafði ver- ið gott í stríðinu þá dugði það ekki til að stríði loknu og hin vinsam- legu samskipti og samstarf ríkj- anna snerist til hins verra. Ekki var sjálfgefið að vestrænu ríkin myndu halda yfirráðum sínum yfir Berlín og því ekki útilokað að borgin myndi öll falla undir yfirráð Sovétríkjanna. Þetta leiddi til fyrstu Berlínarkrísu kalda stríðsins en hún hófst 24. júní 1948. Þá lokuðu hersveitir Sovét- ríkjanna fyrir allar lestarsamgöng- ur, lokuðu vegum til borgarinnar og skrúfuðu fyrir vatn til þeirra hluta borgarinnar sem vestrænu ríkin réðu yfir. Þessu svöruðu Bandaríkin og Bretland með því að flytja mat og eldsneyti loftleiðis til borgarinnar frá herstöðvum sínum í vesturhluta Þýskalands. Þessari krísu lauk 12. maí 1949 þegar Sovétríkin afléttu herkvínni og opnuðu á nýjan leik fyrir samgöngur á landi til Berlínar. Afleiðing vaxandi spennu Krísan var afleiðing samkeppni hernámsríkjanna og vaxandi spennu á milli vestrænu ríkjanna annars vegar og Sovétríkjanna hins vegar. Þegar stríðinu lauk var fram- tíð Þýskalands óráðin enda hafði landinu verið skipt á milli sigur- vegara stríðsins. Eina ákvörðunin, sem hafði verið tekin um framtíð landsins, var tekin í stríðinu þegar Bandamenn komu sér saman um skiptingu landsins að stríði loknu. Þegar stríðsátökum lauk var ekki tekist nægilega kröftug lega á við spurninguna um framtíð Þýska- lands þegar Potsdam-ráðstefnan fór fram 1945. Það skorti á sam- ræmi í stefnumótum Breta og Bandaríkjamanna og pólitískir leið- togar voru ekki nægilega sterkir eða áhugasamir um málið. Ákvörðun- in um skiptingu Þýskalands að stríði loknu var heldur ekki nægi- lega vel útfærð og upp komu ófyrir- séð vandamál. Þar á meðal var að tvær og hálf milljón Berlínarbúa bjó á fjórum hernámssvæðum þar sem ástandið var ansi misjafnt og margir bjuggu við mikinn skort. Harðar sprengjuárásir Bandamanna höfðu nánast lagt borgina í rúst, lítið var um húsnæði eða annað skjól, svarti markaðurinn stýrði efnahagslífi borgarinnar og hungur vofði yfir borgarbúum. Berlín var einhvers konar aðalátakapunktur í deilum vestrænu ríkjanna við Sovétríkin. Miklar breytingar Miklar breytingar urðu á hernáms- stefnunni árið 1947 en á fyrsta degi ársins sameinuðu Bandarík- in og Bretland hernámssvæði sín en það leiddi til aukinnar spennu á milli vesturblokkarinnar og austur- blokkarinnar. Í mars varð utanríkis- ráðherrum hernámsríkjanna lítið ágengt á fundi í Moskvu og birting Truman-stefnuskráarinnar varð til að skerpa enn á átakalínum hvað varðaði skipan heimsins. Í júní var hin svokallaða Marshall-áætlun Bandaríkjanna kynnt til sögunnar en henni var ætlað að reisa efna- hag ríkja í Vestur-Evrópu við en einnig að mynda vörn gegn komm- únisma með því að draga þau ríki, sem fengu aðstoð samkvæmt Mars- hall-áætluninni, inn í heimsmynd Bandaríkjanna hvað varðaði efna- hagsmál. Snemma árs byrjuðu Bandarík- in, Bretland og Frakkland í leyni að skipuleggja myndun nýs þýsks ríkis á þeim svæðum sem ríkin höfðu á valdi sínu. Þegar Sovét- menn komust að þessum fyrirætl- unum í mars hættu þeir þátttöku í the Allied Control Council, Stjórn- arráði Bandamanna, sem hafði fundað reglulega frá stríðslok- um til að samhæfa stefnuna í mál- efnum herteknu svæðanna. Í júní kynntu Bandaríkin og Bretland nýjan gjaldmiðil, Deutschmark, til sögunnar á yfirráðasvæðum vest- rænu ríkjanna, þar á meðal í Vest- ur-Berlín. Markmiðið með nýja gjaldmiðlinum var að binda enda á efnahagsleg yfirráð Sovétríkj- anna í Berlín og gera mögulegt að hrinda Marshall-áætluninni úr vör og takast á við svarta markað- inn í borginni. Sovétríkin svöruðu þessu með svipuðum aðgerðum á yfirráðasvæðum sínum. Auk þess að gefa út eigin gjaldmiðil, Ost- mark, var lokað fyrir allar samgöng- ur á láði og legi til Vestur-Berlínar. Einnig var lokað fyrir rafmagns- flutninga og vatn til borgarinnar. Loftbrúin Bandaríkin og Bretland áttu ekki marga möguleika í stöðunni þegar Sovétmenn settu Vestur-Berlín í herkví. Bandaríkin og Bretland höfðu dregið stóran hluta af herliði sínu heim að stríði loknu og Rauði herinn var miklu sterkari í Þýska- landi en herir vestrænu ríkjanna. Ríkisstjórn Truman Bandaríkja- forseta var staðráðin í að gefa Vestur- Berlín ekki upp á bátinn þar sem það væri merki um ein- arða afstöðu Bandaríkjanna í Evrópu að halda stöðu sinni í Vestur-Berlín. Ekki var annað til ráða en að mynda loftbrú til borg- arinnar en Sovétríkin og vestrænir Bandamenn þeirra höfðu skrifað undir samning 1945 sem heimil- aði flugsamgöngur frá vesturhluta Þýskalands til borgarinnar. Ríkis- stjórn Truman komst að þeirri niðurstöðu að ef Sovétmenn myndu beita valdi til að hindra flugumferð til borgarinnar myndi það teljast árás á óvopnaða flutn- inga í mannúðarskyni og væri jafnframt brot á fyrrgreindum samningi. Það yrði því á ábyrgð Sovétríkjanna ef til átaka kæmi vegna þessa. Loftbrúin komst í gagnið í júní 1948 og stóð yfir þar til í maí 1949. Bandaríkin höfðu vaðið fyrir neð- an sig ef til átaka kæmi og voru B-29 sprengjuflugvélar sendar til Bretlands en þær gátu borið kjarn- orkuvopn. Þetta var gert til að sýna Sovétmönnum að vestrænu ríkj- unum væri full alvara með loft- brúnni. Hún var ekki auðveld í framkvæmd og þá sérstaklega í upphafi. Vestrænir stjórnarer- indrekar lögðu hart að sovéskum starfsbræðrum sínum að leita diplómatískra lausna á málinu. Sovétmenn buðust þá til að aflétta herkvínni ef Deutschmark yrði tekið úr umferð í Vestur-Berlín. Þessu var hafnað. Þegar loftbrúin var í hámarki lentu flugvélar á 45 sekúndna fresti á Tempelhof-flugvellinum. Þegar kom fram á vor 1949 höfðu vest- rænu ríkin sýnt að þau gátu haldið loftbrúnni gangandi og séð Vestur- -Berlín fyrir nauðsynjum. Samtím- is voru gagnaðgerðir vestrænu ríkj- anna gegn austurhluta Þýskalands farnar að valda búsifjum og ótt- uðust sovéskir ráðamenn pólitísk- an óstöðugleika í austurhlutanum vegna þessa. 11. maí 1949 afléttu Sovétmenn herkvínni um Vestur-Berlín. n Við gömlu höfnina EILÍF HAMINGJA GRILLAÐ ÞORSKSPJÓT, HUMARSÚPA & BRAUÐ HÁDEGIS TILBOÐ VIRKA DAGA 2.850 Harry Truman Gaf Vestur-Berlín ekki upp á bátinn. Birgðaflutningar Þýsk börn fylgjast með.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.