Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Qupperneq 15
26. október 2018 FRÉTTIR 15
Það er
staðreynd að…
Heilbrigt hjarta dælir um 2.000 lítrum af
blóði á dag.
Aðeins 10–15% allra jarðarbúa eru
örvhent.
Á meðaldegi slasast 40 manns á
trampólíni.
Yngsti páfi sögunnar var 11 ára.
FEGURÐ
ENDING
MÝKT
Kostirnir eru ótvíræðir:
• Fallegra hús
• Ekkert viðhald
Ál er okkar mál • Fossaleyni 8 • 112 Reykjavík • Sími: 577 4100 • altak.is
VEGGKLÆÐNINGAR
Fyrir allar gerðir húsa, ný
jafnt sem gömul, fjöldi lita og gerða
ALLT Í HÁALOFT
Á HÁLENDINU
n Fimm útivistarfélög segja sig frá samstarfi við Landvernd
n Ósammála um lokun Vonarskarðs
Þ
róunin er í þá átt að þrengja
aðgengi almennings að
náttúruperlum. Við erum
ekki hlynnt því nema að
sterk náttúruverndarrök liggi að
baki. Við teljum að engin slík rök
séu á bak við lokun Vonarskarðs.
Það má segja að baráttan um
opnun skarðsins sé táknræn fyr-
ir baráttuna um aðgengi almenn-
ings að hálendinu almennt,“ segir
Skúli Skúlason, framkvæmdastjóri
Ferðafélagsins Útivistar í samtali
við DV. Rúm fimm ár eru síðan
lokað var fyrir umferð um Vonar-
skarð í kjölfar stofnunar Vatnajök-
ulsþjóðgarðs. Deilt hefur verið á
þá ákvörðun æ síðan.
„Það hefur verið reynt að ná
sáttum við stjórn Vatnajökuls-
þjóðgarðs en öllum þeim tilraun-
um hefur verið hafnað. Nú hefur
staðan versnað því auk lokunar
Vonarskarðs hefur verið bannað
að tjalda á þessu 100 ferkílómetra
svæði sem endanlega útilokar að
fólk geti notið þeirrar náttúru sem
þarna er að finna,“ segir Skúli. Að
hans mati eru engin vísindaleg
rök að baki lokunar Vonarskarðs.
„Þetta er gríðarstórt svæði, aðal-
lega sandar og melar, en aðeins lít-
ill hluti þess er virkilega viðkvæm-
ur, Snapadalur og hverasvæðin þar
um kring. Þetta svæði er alltaf not-
að sem rök fyrir lokuninni. Á sama
tíma er Vatnajökulsþjóðgarður að
setja upp skilti og gera göngustíga
inn í þetta viðkvæma svæði. Það
er ákveðinn tvískinnungur,“ segir
Skúli.
Slíta samstarfi við Landvernd
Á dögunum sögðu fimm útivistar-
félög sig úr samstarfi við Land-
vernd vegna viljayfirlýsingar um
stofnun þjóðgarðs á miðhálendi
Íslands undir heitinu „Hálendið
– Hjarta landsins“. Ritað var und-
ir viljayfirlýsingu þann 7. mars
2016 en með úrsögninni líta útivi-
starfélögin svo á að Landvernd sé
ekki aðili að samstarfi við félögin
á grundvelli viljayfirlýsingarinnar.
Félögin sem um ræðir eru Ferða-
félagið Útivist, Íslenski alpaklúbb-
urinn, Skotveiðifélag Íslands,
Ferðaklúbburinn 4×4 og Kayakk-
lúbburinn.
Ástæðan fyrir úrsögn félaganna
er sú að í umsögn Landvernd-
ar um stjórnar- og verndaráætl-
un Vatnajökulsþjóðgarðs lýsa
samtökin yfir afgerandi stuðningi
við áframhaldandi hömlur á að-
gengi almennings í Vonarskarði. Í
skriflegri yfirlýsingu, sem DV hef-
ur undir höndum, segja forsvars-
menn félaganna fimm að erfitt sé
að skilja umsögnin á aðra leið en
þá að Landvernd hafi ekki hug á
að standa við viljayfirlýsinguna og
þá samstöðu sem félögin treystu
á varðandi Miðhálendisþjóðgarð.
Trúnaðarbrestur hafi átt sér stað
og í ljósi þess er niðustaðan sú að
Landvernd eigi að óbreyttu ekkert
erindi í samstarf við félögin.
Í skriflegu svari til DV seg-
ir Rósbjörg Jónsdóttir, formaður
Landverndar, að samtökin styðji
og treysti niðurstöðum vísinda-
manna sem mæla með því að
halda Vonarskarði lokuðu. „Við
treystum því að stjórn Vatnajök-
ulsþjóðgarðs taki réttar ákvarðanir
á grundvelli þess,“ segir Rósbjörg.
Hún segist eiga von á því að funda
með félögunum fimm á næstunni.
„Við höfum alltaf verið tilbúin til
að funda með þeim um málið, því
það er meira sem sameinar okk-
ur en sundrar. Við erum tilbúin að
taka umræðuna um Vonarskarð
en minnum á að það er stjórn
Vatnajökulsþjóðgarðs sem tek-
ur þessa ákvörðun og svæðið er á
þeirra ábyrgð,“ segir Rósbjörg.
Sér ekki fyrir endann á átökum
Mjög skiptar skoðanir eru uppi
vegna fyrirhugaðrar stofnun-
ar Miðhálendisþjóðgarðs. Sumir
tala um sjálfsagða verndun nátt-
úruverðmæta til framtíðar en aðr-
ir spyrja hvort vernda eigi mann-
gerðar auðnir og hvort þrengja
eigi enn frekar að rétti almennings
til að fara um eigið land. Sumir
taka svo djúpt í árinni að tala um
pólítíska sýndarmennsku þegar
ráðast eigi í stórt verkefni án þess
að liggi fyrir hver sé ávinningurinn
og hvernig eigi að fjármagna ver-
kefnið. Bent hefur verið á að Ís-
lendingum hafi ekki enn tekist að
standa almennilega að þeim þjóð-
görðum sem fyrir eru í landinu
enda séu þeir vanfjármagnaðir.
Jafnframt eru verulegar efasemd-
ir um verkefnið á landsbyggðinni,
óttast margir að tilgangurinn sé að
taka skipulagsvaldið af sveitarfé-
lögum. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Deilt hefur verið um lokun Vonarskarðs um árabil.
„Þetta er gríðar-
stórt svæði,
aðallega sandar og
melar, en aðeins
lítill hluti þess er virkilega
viðkvæmur, Snapa-
dalur og hverasvæðin þar
um kring. Þetta svæði er
alltaf notað sem rök fyrir
lokuninni.