Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 65

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 65
SAKAMÁL 6526. október 2018 3 dagar liðu frá því að Bandaríkjamað-urinn Mesac Damas myrti alla sína fjölskyldu þar til hann var handtek- inn. Um var að ræða eiginkonu hans Guerline og fimm börn þeirra; Michzach, 9 ára, Marven, 6 ára, Maven, 5 ára, Megan, 3 ára, og Morgan, 11 mánaða. Damas stakk þau öll til bana. Morðin framdi hann 18. september, 2009, á Flórída en hann var handtekinn á Haítí og síðan framseldur til Flórída. Hann fékk dauðadóm 27. október 2017. Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / Bara snilld ehf. - Egilsstöðum í næsta hús eftir hjálp og var um- svifalaust leitað til lögreglunn- ar. Upphófst mikil leit að William og kannski eðlilega kíkt inn á all- ar knæpur í grenndinni. Um síð- ir fannst William á Windmill Inn þar sem hann sat að sumbli og án málalenginga sagði hann við lög- regluþjóninn sem handtók hann: „Já, ég gerði það. Hún hefur átt það skilið í langan tíma … Ég veit að ég mun finna lykkjuna um hálsinn á mér vegna þess.“ 18 sentimetra skurður Líkskoðun leiddi í ljós að skurð- urinn á hálsi Söruh var 18 senti- metra langur og grófur og greini- legt að William hafði þurft að beita þónokkru afli til að skera eigin- konu sína á háls. En talið var nokk- uð víst, í ljósi viðamikilla höfuðá- verka, að Sarah hafði verið látin þegar William beitti kutanum. Réttað var yfir William 10. ágúst, 1897, og þrátt fyrir viðleitni verjanda hans til að fá hann úr- skurðaðan veikan á geði tók það kviðdóm aðeins þrettán mínútur að sakfella hann. William brá ekki svip þegar dómarinn dæmdi hann til dauða. William Wilton var hengdur 29. ágúst í Lewes-fangelsi og síðar hafði böðullinn á orði að William hefði verið viljasterkasti maður sem hann hefði sent yfir móðuna miklu. n Lewes-fangelsi (fyrir miðri mynd) Síðasti viðkomustaður Williams Wilton. ÁSTÆÐULAUST MORÐ n Gary Hirte myrti mann og montaði sig af því n Bar síðar við stundarbrjálæði„Tveir dagar liðu áður en líkið af Kopitske fannst og slík- ur var hitinn að líkið var þegar farið að rotna þegar móðir hans, Shirley, fann það. Ó tal ástæður geta legið fyrir því að einhver ákveði að verða öðrum að bana; af- brýðisemi, fjármunir og hrein og klár sturlun, svo fátt eitt sé nefnt. Ekkert af þessu átti við hjá Bandaríkjamanninum Gary Hirte, hann langaði einfaldlega að vita hvort hann kæmist upp með morð. Þann 31. júlí, 2003, myrti Hirte, sem þá var 17 ára, 37 ára afgreiðslumann, Glenn Kopitske, í Wisconsin. Umræddur Kopitske hafði það sér til frægðar unni að hafa sjö árum áður sóst eftir emb- ætti forseta Banda- ríkjanna, þrátt fyrir að hafa þá ekki aldur til. En það er önnur saga. Enginn meðaljón Gary Hirte var enginn meðaljón og árið 2002 varð hann fyrstur drengja frá bæn- um Weyauwega í Wisconsin til að hljóta titilinn Eagle Scout í 20 ár. Um er að ræða æðstu tignargráðu sem hægt er að ná innan skáta- hreyfingar drengja í Bandaríkjun- um. Í menntaskóla keppti Hirte í hvort tveggja fótboltaliði og glímuliði síns skóla. Gary Hirte vann skólastyrk til að nema við St. Cloud-skólann í Minnesota, þar sem hann nam refsirétt. En það er einnig önnur saga. Gums lekur úr gati Sem sagt, 31. júlí skaut Hirte Kopitske til bana. Hann lét líkið liggja en tók bifreið fórnarlambsins traustataki. Tveir dagar liðu áður en líkið af Glenn Kopitske fannst og slík- ur var hitinn að líkið var þegar farið að rotna þegar móðir hans, Shirley, fann það. Hún hafði ítrekað reynt að ná sambandi við hann án árangurs og því ákveðið að kanna hverju sætti. Það var ekki fyrr en að krufn- ingu lokinni, 5. ágúst, sem ljóst varð að dauða Kopitske hafði ekki borið að með eðlilegum hætti. Meinafræðingur tók þá eftir að eitthvert gums lak út um gat á aft- anverðri höfuðkúpunni. Einnig voru stunguáverkar á bringunni en úrskurðað að þeir voru veittir að Kopitske látnum. Montar sig af morðinu Hver veit nema Hirte hefði kom- ist upp með morðið ef hann, hálf- um mánuði síðar, hefði látið vera að guma sig af því. Hann sagði vini sínum, Eric Wenzelow, frá morðinu og þegar Wenzelow lagði ekki trúnað á frásögnina, sýndi Hirte honum veiðihnífinn sem hann hafði stungið Kopitske með. Einnig sýndi hann Wenzelow lyklana að bifreið Kopitske. Allt þetta hafði þó ekki nokkrar af- leiðingar. Í ágúst tók Hirte upp samband við snót að nafni Olivia Thoma. Hirte sagði henni að hann hefði skotið Kopitske í hnakkann og síð- an stungið hann í bak og fyrir. Það var síðan í janúar 2004 sem Olivia Thoma hafði samband við lögregluna. Ótrúverðug frásögn Eftir að Thoma hafði upplýst lög- regluna um frásögn Hirte fékk lög- reglan hana til að hringja í hann og reyna að fá hann til að játa verkn- aðinn. Það gekk allt eftir og lög- reglan náði játningunni á upp- töku. Vindur nú sögunni fram til 30. ághúst þetta sama ár. Þá var Hirte ákærður fyrir morð að yfirlögðu ráði. Við réttarhöldin bar hann því við að hann yrði samkynhneigð- ur þegar hann væri undir áhrif- um áfengis. Þannig hefði verið ástatt fyrir honum 31. júlí, 2003, og hann hefði þá haft samræði við Kopitske. Eftir á hefði hann fyllst viðbjóði á sjálfum sér og ekki ver- ið í andlegu jafnvægi þegar hann banaði Kopitske. Sakhæfur og sakfelldur Lítill trúnaður var lagður á frásögn Hirte og talið nokkuð augljóst að hann hefði, eins og áður er getið, framið morðið til þess eins að sjá hvort hann kæmist upp með það. Þann 4. febrúar, 2005, var úrskurð- að að Hirte væri, og hefði verið, heill á geði og hann sakfelldur fyrir morð. Hann fékk lífstíðardóm fyrir lífið sem hann slökkti. n Gary Hirte Virðist hafa myrt til þess eins að prófa það. Glenn Kopitske Var kannski einfaldlega óheppinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.