Morgunblaðið - 08.09.2018, Blaðsíða 31
MESSUR 31á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018
Danskur lakkrís
með súkkulaði
og lakkrískurli
Hér erum við!
Þú finnur okkur
í frystinum
Söngskólinn íReykjavík
Næsta 7 vikna námskeið vetrarins
hefst 10. september og lýkur 26. október
Einnig er hægt að fá einkatíma í söng - fjöldi tíma samkomulag
SÖNGNÁMSKEIÐ
Nánari upplýsingar
www.songskolinn.is / 552-7366
Allir geta fundið eitthvað fræðandi og skemmtilegt við sitt hæfi!
• Fyrir fólk á öllum aldri:
Sem undirbúningur fyrir frekara söngnám
eða tómstundagaman fyrir söngáhugafólk
• Kennslutímar:Morguntímar / Síðdegistímar / Kvöldtímar
• Söngtækni:Raddbeiting / Túlkun / Einsöngur / Raddaður söngur
• Tónmennt:Tónfræði / Tónheyrnarþjálfun / Nótnalestur
ÁRBÆJARKIRKJA | Sunnudagaskólahátíð
kl. 11. Söngur, biblíusaga, bæn og brúðuleik-
hús. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og Ingunn
Björk Jónsdóttir djákni sjá um stundina. Benja-
mín Gísli Einarsson leikur á flygilinn. Hoppu-
kastali og andlitsmálning. Grillaðar pylsur og
djús eftir stundina.
ÁSKIRKJA | Útvarpsmessa og barnastarf kl.
11. Kristný Rós Gústafsdóttir djákni og Dagur
Fannar Magnússon guðfræðinemi leiða sam-
verstund sunnudagskólans. Séra Sigurður
Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Ás-
kirkju syngur, organisti er Bjartur Logi Guðna-
son. Kaffisopi í Ási eftir messu.
ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11. Kór
Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Keiths
Reed. Prestur er Kjartan Jónsson. Vænst er
þátttöku fermingarbarna og aðstandenda
þeirra.
Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn
Bjarka Geirdals Guðfinnssonar. Heitt á könn-
unni á eftir.
BESSASTAÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Upp-
haf fermingarstarfs. Álftaneskórinn syngur
undir stjórn Ástvaldar Traustasonar, Margrét
djákni og sr. Hans Guðberg þjóna fyrir altari.
Fundur í safnaðarheimili eftir athöfn, súpa í
boði Lionsklúbbsins Seylu.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudagaskóli und-
ir stjórn Steinunnar Þorbergsdóttur og Stein-
unnar Leifsdóttur kl. 11. Messa kl. 11. Prestur
er Magnús Björn Björnsson. Organistinn Örn
Magnússon stjórnar félögum úr Kór Breiðholts-
kirkju. Ensk guðsþjónusta kl. 14. Prestur er
Toshiki Toma.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf alla sunnu-
daga kl. 11 fyrir Grensás og Bústaðasóknir.
Brúðuleikhús, ratleikir, spurningaleikur, bænir,
söngur, tónlist, gestir - hefst 9. september.
Umsjón hafa Daníel Ágúst, Sóley Adda, Jónas
Þórir og Pálmi. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Bú-
staðakirkju og kantor Jónas Þórir. Messuþjón-
ar aðstoða og heitt á könnunni eftir messu.
Prestur er Pálmi Matthíasson.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11, prestur er
Gunnar Sigurjónsson, organisti er Sólveig Sig-
ríður Einarsdóttir, almennur kirkjusöngur. Veit-
ingar í safnaðarsal að messu lokinni.
Tónlistarhefð kirkjunnar kl. 12.30, prestur er
Gunnar Sigurjónsson, organisti er Sólveig Sig-
ríður Einarsdóttir. Fermingarbörn og foreldrar
þeirra hvött til að mæta.
DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30
á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18 og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl.
16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa klukkan 11, sr. El-
ínborg Sturludóttir prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Dómkórinn syngur og dómorganisti er Kári
Þormar. Minnum á bílastæðin við Alþing-
shúsið.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson þjónar og prédikar. Kirkjukórinn
syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur.
Það verður líf og fjör hjá okkur í sunnudagaskól-
anum. Marta og Ásgeir ætla að segja okkur frá
öllum hljóðfærunum. Kaffisopi og djús eftir
stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir
stundina. Hljómsveitin Mantra og Sönghóp-
urinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunn-
ari Gunnarssyni, organista. Fermingarbörn og
fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta.
GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli
kl. 11. Sameiginlegt upphaf í messu. Sr. Gunn-
laugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir
söng undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur. Um-
sjón með sunnudagaskóla: Sunna Kristrún
djákni.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Séra Sigurður Grétar Helgason og séra
Grétar Halldór Gunnarsson þjóna. Ferming-
arbörnum úr Keldu-, Vætta- og Rimaskóla og
foreldrum þeirra er sérstaklega boðið. Kór Graf-
arvogskirkju leiðir söng og organisti er Hákon
Leifsson.
Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11.
Dans, söngvar, sögur og límmiðar. Umsjón hef-
ur Pétur Ragnhildarson.
GRAFARVOGUR - kirkjuselið í Spöng | Sel-
messa kl. 13. Séra Sigurður Grétar Helgason
þjónar. Vox Populi heldur upp á tíu ára afmæli
og leiðir söng og organisti er Hilmar Örn Agn-
arsson. Gamlir félagar, Vox Populi, koma aftur
og syngja með kórnum. Eftir messu verður af-
mæliskaffi.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Jón
Ragnarsson þjónandi sóknarprestur prédikar
og þjónar fyrir altari. Félagar úr Vox Feminae
leiða sönginn. Organisti er Ásta Haraldsdóttir.
Heitt á könnunni eftir messuna.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðs-
þjónusta kl. 14 í hátíðarsal Grundar. Prestur er
Auður Inga Einarsdóttir heimilisprestur. Grund-
arkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage
organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Prestar eru Karl V. Matt-
híasson og Leifur Ragnar Jónsson. Tónlist-
arflutningur í umsjá Ásbjargar Jónsdóttur og
Svanfríðar Gunnarsdóttur, barnakór Guðríð-
arkirkju tekur þátt í messunni. Kirkjuvörður er
Lovísa Guðmundsdóttir, kaffisopi í boði eftir
messuna.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Sunnudagaskólinn tekur þátt í
stundinni ásamt með barna- og unglingakórum
Hafnarfjarðarkirkju. Dagskráin verður fjölbreytt
og miðast við þátttöku barnanna. Hressing í
safnaðarheimilinu á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Kristjáni Vali Ingólfs-
syni og hópi messuþjóna. Félagar úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju og Kór Bústaðakirkju
syngja. Fluttir verða sálmar eftir Trond Kverno.
Stjórnendur Trond Kverno, Jónas Þórir og Hörð-
ur Áskelsson. Organisti er Hörður Áskelsson.
Umsjón barnastarfs hafa Inga, Karítas og Ragn-
heiður. Fyrsta kyrrðarstund haustsins fimmtud.
kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Helga
Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Barnastarf í umsjá Ágústu Dómhildar Karls-
dóttur guðfræðinema. Félagar úr Kordíu, kór
Háteigskirkju, syngja. Organisti er Guðný Ein-
arsdóttir. Samskot dagsins renna til Krýsuvík-
ursamtakanna.
HJALLAKIRKJA Í Ölfusi | Hátíðarmessa verð-
ur kl. 14 á Hjalla 9. sept. í tilefni af 90 ára
vígsluafmælis kirkjunnar en hún var vígð 5.11.
1928. Hjallakirkja er einn mesti sögustaðurinn
í Ölfusi, kemur fyrst í ljós sögunnar á 11. öld og
er getið í Flóamannasögu. Hún kemur aftur í
ljós sögunnar er síðasti kaþólski biskupinn yfir
Íslandi, Ögmundur Pálsson, er færður nauð-
ugur í skip og lést í hafi. Hann var handtekinn af
hermönnum Dana þar sem hann var í heimsókn
hjá systur sinni á Hjalla. Hjallakirkja er líka
sóknarkirkja Þorlákshafnarbúa.
Þegar Þorlákskirkja var byggð fyrir ca. 30 árum
var um það samkomulag að hafa Hjallakirkju
áfram í heiðri og hún þjónar því líka sem sókn-
arkirkja í Þorlákshafnarprestakalli.
Nývígður vígslubiskup í Skálholtsstifti, sr. Krist-
ján Björnsson, prédikar. Kór Þorlákskirkju syng-
ur undir stjórn nýráðins organista, Esterar
Ólafsdóttur, meðhjálpari er Sigurður Her-
mannsson, djákni er Guðmundur Brynjólfsson
og prestur þjónar svo fyrir altari.
Eftir messu er svo kirkjugestum boðið upp á
kaffi og með því á Hafinu bláa. Þar mun kórinn
syngja og opinn verður hljóðnemi fyrir þá sem
vilja. Til hátíðar hefur verið boðið gömlum þjón-
andi prestum, biskupum, bæjarfulltrúum í Ölf-
usi og nokkrum öðrum er sem komið hafa að
starfi kirkjunnar en auðvitað er öllum boðið að
koma, ekki síst þeim sem tengjast kirkjunni
með einhverjum hætti, hafa komið í hana sem
börn, komið þangað fullorðnir, er kristin kirkja
hugleikin eða saga staðarins og héraðsins.
Gaman væri að sjá sem flesta og allir eru auð-
vitað velkomnir ungir sem aldnir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11.
Kór Hjallakirkju leiðir söng. Organisti er Kári All-
ansson. Prestur er Sunna Dóra Möller. Sunnu-
dagaskóli er á sama tíma í safnaðarheimilinu
kl. 11 í umsjá Markúsar og Heiðbjartar.
HVALSNESSÓKN | Sameiginleg messa í Safn-
aðarheimilinu í Sandgerði kl. 17. Kirkjukórinn
syngur undir stjórn Keiths Reed.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sunnudaginn kl.
13. Barnakirkja og almenn samkoma með lof-
gjörð og fyrirbænum. Ragnar Schram prédikar.
Eftir stundina verður boðið upp á kaffi.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Messa kl. 14. Kór
Kálfatjarnarkirkju syngur undir stjórn Elísabetar
Þórðardóttur organista. Sr. Arnór Bjarki Blomst-
erberg verður boðinn velkominn til starfa sem
prestur Tjarnaprestakalls. Hann mun prédika
en sr. Kjartan Jónsson sóknarprestur mun
þjóna fyrir altari.
Vænst er þátttöku fermingarbarna og aðstand-
enda þeirra. Heitt á könnunni á eftir.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Sr. Fritz Már þjónar fyrir altari og
Arnór og kór kirkjunnar leiða okkur í söng og
tónlist. Sunnudagaskólinn hefst af fullum krafti
og munu Systa og hennar fólk sjá um sam-
veruna með krökkunum.
KIRKJA heyrnarlausra | Messa í Grens-
áskirkju kl. 14. Sr. Kristín Pálsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Táknmálstúlkur er Árný Guð-
mundsdóttir. Táknmálskórinn syngur undir
stjórn Eyrúnar Ólafsdóttur. Kaffiveitingar eftir
messu.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór Kópavogskirkju syngur, organisti er Kristín
Jóhannesdóttir. Sunnudagaskólinn verður í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 11 undir stjórn
Grímu Ólafsdóttur og Birkis Bjarnasonar.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur
þjónar ásamt Magnúsi Ragnarssyni organista,
kirkjuverði og messuþjónum. Félagar úr Fíl-
harmóníunni leiða safnaðarsöng. Kaffi og með-
læti í safnaðarheimili eftir stundina.
Sunnudagaskólinn tekur til starfa á sama tíma
eftir sameiginlegt upphaf í kirkjunni. Sara
Grímsdóttir og Hafdís Davíðsdóttir leiða sam-
veruna sem hentar börnum á öllum aldri.
Starf eldri borgara hefst á nýjan leik á miðviku-
dag kl. 12-16. Allir velkomniróháð búsetu.
LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Félagar úr kór Laugarneskirkju
leiða sálmasöng undir stjórn Arngerðar Maríu
Árnadóttur organista og sr. Ása Laufey Sæ-
mundsdóttir þjónar. Sunnudagaskólinn er í um-
sjón Hjalta Jóns, Önnu Siggu og Gísla. Messu-
kaffi í safnaðarheimili Laugarneskirkju á eftir.
Þá verður helgistund á Dalbraut 18-20 hinn 12.
september kl. 14 og í Hátúni 10 hinn 13. sept-
ember kl. 16.
LÁGAFELLSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11.
ATH! sunnudagaskólinn er þennan sunnudag
hluti af athöfninni. Sr. Ragnheiður, sr. Arndís,
Berglind og Þórður leiða athöfnina ásamt kirkju-
kór Lágafellskirkju sem syngur. Rebbi og mýsla
mæta á staðinn.
Messukaffi að lokinni athöfn í safnaðarheim-
ilinu Þverholti 3, 3. h. Fermingarbörn og for-
eldrar sérstaklega hvött til þátttöku.
Sjá nánar: www.lagafellskirkja.is
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Kvöldguðsþjónusta kl. 20 þar sem kór
Lindakirkju mun leiða söng undir stjórn Óskars
Einarssonar. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson
þjónar.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Í
messunni syngja félagar úr Kór Neskirkju og
leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhalls-
sonar organista. Prestur er Steinunn Arnþrúður
Björnsdóttir. Sunnudagaskólinn er í umsjón
Jónínu Ólafsdóttur, Katrínar Helgu Ágústsdóttur
og Ara Agnarssonar. Hressing og samfélag á
kaffitorgi að lokinni messu og sunnudaga-
skóla.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Guðsþjónusta og
barnastarf kl. 14. Sr. Pétur þjónar fyrir altari.
Messugutti er Petra Jónsdóttir. Óháði kórinn
leiðir söng og messusvör og syngur m.a. frum-
samið lag eftir tónlistarstjóra safnaðarins,
Kristján Hrannar Pálsson. Stopp leikhópurinn
sýnir leikritið um ósýnilega vininn. Ólafur Krist-
jánsson tekur vel á móti öllum. Maul á eftir.
Minnum líka á þakkargjörðardýrlingstónleika
Jazzhátíðar Reykjavíkur til heiðurs Guðmundi
Steingrímssyni kl. 17 sama dag í kirkjunni.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60.
Ræðumaður er sr. Kjartan Jónsson. Barnastarf.
Túlkað á ensku.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Messa kl. 18. Org-
anisti er Rögnvaldur Valbergsson. Í messunni
verður þess minnst að 120 ár eru frá stofnun
Prestafélags Hólastiftis hins forna.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er
Guðbjörg Arnardóttir, Kirkjukórinn syngur, org-
anisti er Ester Ólafsdóttir. Sunnudagaskóli á
sama tíma, umsjón Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
ásamt leiðtogum.
Mánudaginn kl. 20, samverustund á alþjóð-
legum degi gegn sjálfsvígum. Hugleiðingu flytur
Sigríður Elín Leifsdóttir. Tónlistaratriði, kaffi-
sopi í safnaðarheimilinu á eftir. Nánar á sel-
fosskirkja.is og Facebooksíðu kirkjunnar.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11,
Biblíusaga, brúðuleikrit, söngur og gleði.
Ávaxtahressing fyrir alla í lokin.
Guðsþjónusta kl. 14, Bryndís Malla Elídóttir
prédikar og þjónar fyrir altari, Tómas Guðni Egg-
ertsson leikur á orgel og Kór Seljakirkju leiðir
söng. Kaffi að messu lokinni.
SELTJARNARNESKIRKJA | Uppskerumessa
og sunnudagaskóli kl. 11. Bjarni Þór Bjarnason
sóknarprestur þjónar. Leiðtogar sjá um sunnu-
dagaskólann. Friðrik Vignir Stefánsson er org-
anisti. Félagar úr Kammerkórnum syngja. Kaffi-
veitingar og samfélag eftir athöfn.
Grænmetismarkaður eftir messuna í safn-
aðarheimilinu. Allur ágóði rennur til innanlands-
aðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnudag
kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson annast prests-
þjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Kyrrðarstund sunnudags-
kvöld 9. sept. kl. 20 í tilefni af Alþjóðlegum for-
varnardegi sjálfsvíga (sem er 10. sept.). Tónlist
í umsjá Keiths Reed, aðstandandi deilir reynslu
sinni, hugvekja, bæn, kveikt á kertum. Sameig-
inleg stund fyrir Suðurnesin. Umsjón hafa
prestarnir Erla Guðmundsdóttir og Sigurður
Grétar Sigurðsson.
VÍDALÍNSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Jóna Hrönn Bolladóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Vídalínskirkju og unglingakór
Vídalínskirkju syngja undir stjórn Jóhanns Bald-
vinssonar organista, Jóhönnu Guðrúnar Jóns-
dóttur og Davíðs Sigurgeirssonar. Boðið upp á
súpu og brauð að lokinni guðsþjónustu. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma, tónlist, brúðuleikrit og
biblíufræðsla. Sjá gardasokn.is
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Sunnudagskólinn hefst að
nýju með fjölbreyttri og fjörugri dagskrá í umsjá
Maríu og Bryndísar. Hressing eftir stundina.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta sunnudag kl. 11.
Séra Baldur Rafn Sigurðsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Kirkjukór Njarðvíkur syngur undir
stjórn Stefáns Helga Kristinssonar organista.
Meðhjálpari er Pétur Rúrik Guðmundsson.
ORÐ DAGSINS: Enginn
kann tveimur herrum að
þjóna
(Matt. 6)
Morgunblaðið/Golli
Rangárvallasýsla Oddi.