Morgunblaðið - 08.09.2018, Blaðsíða 4
BAKSVIÐ
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Fyrirtækið GN Studios ehf., sem
heldur utan um rekstur kvikmynda-
þorpsins í Gufunesi, með stuðningi
frá Kukl og Exton, tækjaleigum, hef-
ur sent inn kvörtun til Samkeppnis-
eftirlitsins vegna gruns um ólög-
mætar aðgerðir Ríkisútvarpsins ohf.
á samkeppnismarkaði. Samkvæmt
heimildum blaðsins hefur GN Stud-
ios auk fleiri fyrirtækja fundið fyrir
miklu undirboði af RÚV á útleigu á
tækjum og aðstöðu til framleiðslu á
kvikmynda- og sjónvarpsefni.
Fyrsti áfanginn í uppbyggingu
Kvikmyndaver var formlega opn-
að í Gufunesi í apríl. Verið var fyrsti
áfanginn í uppbyggingu kvikmynda-
og menningarþorps á staðnum. Í
bréfinu til Samkeppniseftirlitsins,
sem Morgunblaðið hefur undir hönd-
um, segir meðal annars að miklum
fjármunum hafi verið varið til verk-
efnisins í Gufunesi.
GN Studios vill gæta þess að þeir
sem eru í samkeppni við þá starfsemi
sem fyrirtækið heldur úti stundi þá
samkeppni á jafningjagrundvelli en
ekki með óeðlilegt forskot. Þar sem
uppbyggingin er á sínum fyrstu stig-
um er útleiga á aðstöðu til fram-
leiðslu á kvikmynda- og sjónvarps-
efni ein mikilvægasta tekjulindin,
segir enn fremur í bréfinu.
Þá segir í bréfinu að RÚV virðist
bjóða upp á þessa þjónustu, útleigu á
aðstöðu og tækjum, á verði sem „erf-
itt eða ómögulegt er fyrir einkaaðila
að keppa við“. GN Studios byggir á
því að framangreind starfsemi RÚV
falli undir Samkeppnislög nr. 44/
2005, að hún hafi skaðleg áhrif á
samkeppni og að hún feli í sér opin-
berar samkeppnishömlur.
Í stefnu RÚV til ársins 2021, sem
gefin var út í maí 2017, ber einn að-
gerðarliðurinn heitið „Búnaður, að-
staða og þjónusta RÚV aðgengileg
öðrum aðilum“. Undir þeim lið segir
að Stúdíó A og önnur tækniaðstaða
verði aðgengileg til leigu fyrir sjálf-
stæða framleiðendur sjónvarps- og
kvikmyndaefnis, hvort sem það er
framleiðsla fyrir RÚV eða aðra. Að-
gerðinni eru gerð frekari skil í til-
kynningu á vef RÚV í apríl sl. Þar er
tekið fram að skipulagsbreytingar
hafi verið gerðar á RÚV og sérstök
„eining“ stofnuð, sem nefnist RÚV-
stúdíó.
RÚV-stúdíó er ætlað að þjónusta
útleigu á tækjum og aðstöðu til sjálf-
stæðra framleiðenda og annarra fjöl-
miðla. GN Studios setur spurning-
armerki við eininguna RÚV-stúdíó í
kvörtuninni til Samkeppniseftirlits-
ins. „Hin sérstaka eining sem á að
hafa verið stofnuð innan RÚV virðist
ekki vera dótturfélag RÚV heldur
eining innan Ríkisútvarpsins ohf,“
segir til viðbótar í bréfinu.
Þriðja grein laga um Ríkisútvarp-
ið nr. 23/2013 greinir frá hlutverki og
skyldum RÚV, sem er fjölmiðlaþjón-
usta í almannaþágu. Samkvæmt 1.
mgr. í 4.gr. laganna skal RÚV stofna
og reka dótturfélög fyrir aðra starf-
semi en þá sem kveðið er á um í 3. gr.
Í fyrsta málslið 2. mgr. 4. gr. kem-
ur fram að tilgangur dótturfélaga
RÚV sé að styðja við starfsemi
móðurfélagsins með því að nýta
tæknibúnað, dreifikerfi, sérþekk-
ingu starfsmanna og aðstöðu RÚV
til annarrar starfsemi en þeirrar
sem fellur undir 3. gr. Skal starfsemi
dótturfélaga Ríkisútvarpsins lúta
sömu löggjöf og starfsemi félaga í
samkeppnisrekstri.
Aðgerðir RÚV sagðar ólögmætar
Framleiðslufyrirtæki og tækjaleigur finna fyrir undirboði af hálfu RÚV á útleigu tækja og aðstöðu
Kvarta til Samkeppniseftirlitsins Segja ekki rétt staðið að stofnun á sérstakri einingu hjá RÚV
Morgunblaðið/Hari
Framleiðsla Fasteignir sem áður tilheyrðu Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi eru nú stærðarinnar kvikmyndaver.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018
Veður víða um heim 7.9., kl. 18.00
Reykjavík 12 skýjað
Bolungarvík 13 léttskýjað
Akureyri 16 léttskýjað
Nuuk 6 skýjað
Þórshöfn 13 rigning
Ósló 17 skýjað
Kaupmannahöfn 18 skúrir
Stokkhólmur 19 alskýjað
Helsinki 20 heiðskírt
Lúxemborg 16 skýjað
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 13 skýjað
Glasgow 15 alskýjað
London 17 heiðskírt
París 20 heiðskírt
Amsterdam 15 léttskýjað
Hamborg 15 skúrir
Berlín 22 léttskýjað
Vín 23 skýjað
Moskva 20 heiðskírt
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 21 heiðskírt
Barcelona 26 skýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 24 léttskýjað
Aþena 28 léttskýjað
Winnipeg 16 þoka
Montreal 15 léttskýjað
New York 23 alskýjað
Chicago 20 rigning
Orlando 29 skýjað
8. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:31 20:20
ÍSAFJÖRÐUR 6:31 20:30
SIGLUFJÖRÐUR 6:14 20:14
DJÚPIVOGUR 5:59 19:51
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á sunnudag Hæg austlæg eða breytileg átt og rign-
ing eða skúrir, en þurrt norðaustantil framan af degi.
Hiti 9 til 15 stig.
Austlæg átt yfirleitt 5-13 m/s og dálítil rigning um vestanvert landið en samfelldari rigning á
Suðausturlandi. Skýjað með köflum og þurrt að kalla norðaustantil. Hiti 10 til 18 stig.
Landhelgisgæslunni er ekki kunnugt
um að leit norska rannsóknarskipsins
Seabed Worker (og áður Seabed
Constructor) að verðmætum í flaki
þýska herskipsins SS Minden hafi
borið árangur. Þetta segir Ásgeir Er-
lendsson, upplýsingafulltrúi Gæsl-
unnar.
Umhverfisstofnun hafði veitt félag-
inu Advanced Marine Services,
skráðu á Englandi, leyfi til þessara
rannsókna sem beindust að því hvort
gull, silfur eða önnur verðmæti væru
um borð í skipinu sem sökk haustið
1939 um 120 sjómílur suðaustur af
Kötlutanga. Flakið mun nokkuð heil-
legt og liggur rétt á hafsbotni.
Leyfið rann út miðnætti 10. júlí síð-
astliðinn. Að sögn Ásgeirs tjáði skip-
stjóri skipsins Landhelgisgæslunni
að skipið héldi af svæðinu skömmu
áður. Á meðan á leitinni í flaki SS
Minden stóð fékk Landhelgisgæslan
daglegar tilkynningar um staðsetn-
ingu rannsóknarskipsins og sömu-
leiðis var gerð grein fyrir aðgerðum
hverju sinni. Samvinnan milli Land-
helgisgæslunnar og áhafnar Seabed
Worker hafi verið með ágætum.
Ásgeir segir að ekki liggi fyrir
hvort leigutaki skipsins komi til með
að leigja það til frekari framkvæmda
og Landhelgisgæslunni sé ekki kunn-
ugt um að leitin hafi borið árangur.
Hjá Umhverfisstofnun fengust þau
svör að vegna sumarleyfa væri ekki
hægt að svara því fyrr en eftir helgi
hvort Advanced Marine Services
hefði óskað eftir frekari leyfum til að
athafna sig í flakinu.
gudmundur@mbl.is
Ekki er lengur
leitað í SS Minden
Ljósmynd/Úr safni
Gullleit Norska rannsóknarskipið
Seabed Worker hér við land.
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR SKODA
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði
sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina
má flest allt um ástand bílsins og gæði.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis-
ráðherra og Ni Yuefeng, tollamála-
ráðherra Kína, undirrituðu nýja bók-
un við fríverslunarsamning Íslands
og Kína um heil-
brigðisvottun á
íslensku lamba-
kjöti síðdegis í
gær, en utanríkis-
ráðherra er í fjög-
urra daga heim-
sókn í Kína.
„Við erum búin
að vera að bíða
svolítið eftir
þessu,“ segir
Unnsteinn Snorri
Snorrason, framkvæmdastjóri
Landssamtaka sauðfjárbænda, í
samtali við Morgunblaðið.
Flytja inn 125 þús. tonn á ári
„Kína er stærsti innflytjandi á
lambakjöti þannig að þetta er gífur-
lega stór markaður sem opnast
þarna,“ segir hann.
Að sögn Unnsteins hafa íslenskir
sláturleyfishafar verið að horfa til
markaðarins í Kína með útflutning á
lambakjöti í huga og ekki síður sem
markað fyrir hliðarafurðir svo sem
innmat.
Kína flytur inn 125 þúsund tonn af
lambakjöti á ári hverju og er það
25% alls lambakjöts á markaði. Þar
með er Kína stærsti innflytjandi
þessara afurða í heimi, jafnframt er
Kína stærsti framleiðandi lamba-
kjöts að sögn Unnsteins.
Áhugi fyrir evrópskum mat
Hann segir kínverska markaðinn
vaxandi og mikill áhugi sé þar á mat-
vælum frá Evrópu, meðal annars
vegna þess að Kínverjar búa við
mikla mengun og það þykir bæta
heilsuna að borða kjöt framleitt í
Evrópu.
Unnsteinn tekur fram að ekkert
sé í hendi með útflutning að svo
stöddu, en bendir á að það felist
ákveðin tækifæri á Kínamarkaði.
„Úttektarnefndin sem kom hingað
hrósaði okkur mjög mikið fyrir fram-
leiðsluferla okkar, við gengum í
gegnum úttektina án athugasemda,“
staðhæfir framkvæmdastjórinn.
gso@mbl.is
Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið
Samkomulag Ráðherrarnir und-
irrita samninginn í Kína.
Lambakjöt til Kína
Stærsti lambakjötsmarkaður í heimi nú opinn fyrir íslensk-
um afurðum Mikill áhugi fyrir evrópskum matvælum
Unnsteinn Snorri
Snorrason