Morgunblaðið - 08.09.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.09.2018, Blaðsíða 12
AFP Ungur Mynd tekin 1972. Á ýmsu gekk á löngum ferli Reynolds sem lék bæði í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Bandaríski leikarinn BurtReynolds, sem lést ífyrradag 82 ára gamall,kom víða við á yfir hálfr- ar aldar löngum ferli. Sjálfur sagði hann að hann hefði náð hápunkt- inum árið 1997, rúmlega sextugur, þegar hann var tilnefndur til Ósk- arsverðlauna fyrir hlutverk sitt sem klámmyndaleikstjórinn Jack Horn- er í Boogie Nights. Reynolds, sem var skírður Burton Leon Reynolds Jr., fæddist 11. febrúar 1936 í borginni Lansing í Michigan. Þegar hann var á barnsaldri flutti fjölskyldan til Ri- viera Beach í Flórída þar sem faðir hans var lögreglustjóri. Pilturinn þótti liðtækur í amerískum fótbolta og buðust fjölmargir háskólastyrkir að menntaskólanámi loknu. Hann fór í ríkisháskólann í Flórída og hugði á atvinnumennsku í íþrótt- inni, en hnémeiðsli bundu enda á þær fyrirætlanir. Enskukennari hans hvatti hann til að leggja leik- listina fyrir sig og bauð honum í kjölfarið aðalhlutverkið í leikriti sem hann setti upp. Fyrir frammi- stöðu sína þar fékk hinn ungi Bur- ton, sem var farinn að kalla sig Burt á þeim tíma, leiklistarverðlaun Flórídaríkis árið 1956 og minntist hann enskukennarans síðar sem eins af helstu áhrifavöldunum í lífi sínu. Í kjölfarið lék hann í leikhúsum í New York, fór í leiklistarnám og það leiddi til smáhlutverka í kvik- myndum og sjónvarpsþáttum. Fyrsta stóra hlutverkið var í sjón- varpsþáttunum Gunsmoke, í kjöl- farið fylgdu sífellt stærri hlutverk þangað til hann sló í gegn í spennu- myndinni Deliverance. Um svipað leyti bauð Albert R. Broccoli, fram- leiðandi James Bond-myndanna, honum titilhlutverkið, en Reynolds hafnaði boðinu með þeim orðum að Bandaríkjamaður gæti aldrei leikið breskan njósnara skammlaust. Berstrípaður á bjarnarfeldi Á fyrstu árum 8. áratugarins lék Reynolds í fjölmörgum spennu- og grínmyndum sem nutu vinsælda, frægust þeirra er líklega Smokey and the Bandit, Reykur og bófi frá árinu 1977. Hún varð geysivinsæl og gerði Reynolds að stórstjörnu. Í apríl 1972 reis frægðarsól hans enn hærra þegar plakat af honum fylgdi bandaríska tímaritinu Cosmopolitan árið 1972 þar sem hann lá glaðhlakkalegur og ber- strípaður á bjarnarfeldi. Lengi hafði tíðkast að birta sambærilegar myndir af fáklæddum eða nöktum konum en þetta var í fyrsta skiptið sem slík mynd birtist af karlmanni og þótti þetta brjóta blað í sögu fjölmiðlunar. Myndbirtingin vakti talsverða athygli og stimplaði Rey- nolds rækilega inn sem eitt helsta kyntákn áttunda áratugarins. Síðar sagðist hann sjá eftir tiltækinu. Reynolds lék í fjölmörgum myndum á 9. og 10. áratugnum sem fengu misgóðar móttökur en ferill- inn blómstraði í kjölfar áðurnefndr- ar Boogie Nights. Síðasta áratuginn sást hann reglulega á hvíta tjaldinu, hann fékk mikið lof fyrir frammi- stöðu sína í kvikmynd Adams Rifk- ins, The Last Movie Star, í fyrra og til stóð að hann léki í mynd Quent- ins Tarantinos, Once Upon a Time in Hollywood, en lést áður en tökur hans hófust. Burt Reynolds átti við nokkra fjárhagserfiðleika að stríða af og til sem hann sagði sjálfur að mætti skrifa á reikning ríkmannlegs lífs- stíls og ógætilegra fjárfestinga. Eft- ir að hafa lent í alvarlegu slysi árið 1984 þróaði hann með sér lyfjafíkn og stríddi við hana um skeið Hann var tvígiftur, hann giftist bresku leikkonunni Judy Carne, ár- ið 1963 og stóð hjónabandið yfir í tvö ár. Þau eignuðust ekki börn. Síðari eiginkona hans var banda- ríska leikkonan Loni Andersen, þau voru gift 1988-1993 og ættleiddu soninn Quinton. Þá var Reynolds í löngu sambandi við Sally Field, mótleikkonu sína úr Reyk og bófa. Stærri en lífið sjálft Fjölmargir minntust leikarans á í gær á samfélagsmiðlum. Meðal þeirra var leikarinn og fyrrverandi ríkisstjórinn Arnold Schwarzen- egger sem skrifaði á Twitter að Reynolds hefði verið sér mikil fyrir- mynd. „Þú verður alltaf uppáhalds lögreglustjórinn minn,“ skrifaði Dolly Parton á Facebook, en þau léku saman í myndinni Besta litla vændishúsið í Texas árið 1982. „Hann var stærri en lífið sjálft,“ skrifaði þáttastjórnandinn Larry King á Twitter. Ber Það vakti athygli þegar Reynolds birtist ber í tímaritinu Cosmopolitan. Burt er nú á burt Ferill bandaríska leikarans Burt Reynolds, sem lést í fyrradag, var viðburðaríkur og hann hafnaði m.a. því að leika James Bond. Að hans mati var hápunkt- ur ferilsins tilnefning til Óskarsverðlauna árið 1997. Á efri árum Myndin var tekin af Reynolds fyrir rúmu ári. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018 NÝ R CITROEN GRAND C4 PICASSO Dísel, sjálfskiptur, 7 manna, Shine Pakki, Leiðsögukerfi + Mirror Link, lyklalaust aðgengi, bakkmyndavél, bluetooth. Verð aðeins kr. 3.980.000 562 1717 Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is bilalif.is Eigum mikið úrval af nýjum og nýlegum bílum á staðnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.