Morgunblaðið - 08.09.2018, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018
Haustið 1973, þegar varlamátti heita að greinar-höfundur væri fluttur íbæinn frá Eyjum, heim-
sótti ég eitt sinn sem oftar frænku
mína sem þá starfaði í bókabúð Snæ-
bjarnar við Hafnarstræti í Reykja-
vík. Þar var hægt að nálgast meira
úrval skákbóka en annars staðar í
bænum. Ég var búinn að koma mér
fyrir í einu horni verslunarinnar
þegar tveir menn rákust þar inn og
tóku tal saman. Gamlir skólabræður,
Bragi Kristjánsson og Geirlaugur
Magnússon. Bragi var auðvitað
landsþekktir skákmeistari en færri
vissu að Geirlaugur var öflugur
skákmaður og fleiri að hann var
skáld gott. Þótti svolítið tyrfinn eins
og það er víst stundum orðað, en það
var glettni í stílnum sbr. þessar línur
frá ’74:
„Hér með tilkynnist öllum/sem
láta málið eingu varða/ að anark-
istaflokkurinn/ hefur á ný stolið sér
sólgleraugum/ og starfar því
skuggalegri en nokkru sinni fyrr …“
Þarna inni hjá Snæbirni spurði
Bragi Geirlaug hvort hann ætlaði að
tefla á haustmóti Taflfélags Reykja-
víkur, sem þá var að hefjast. Geir-
laugur svaraði að bragði eitthvað á
þessa leið: Æ, ég veit ekki hvort ég
geti tekið þátt í þessum militerisma.
Þetta fannst mér athyglisvert
svar en Geirlaugur mætti samt í
haustmótið og stuttu síðar í Skák-
þing Reykjavíkur. Ég er ekki viss
um að hann hafi teflt mikið opin-
berlega eftir það og reikna með að
hann hafi nálgast skákina á fagur-
fræðilegum forsendum; leitað
snilldarinnar eins og margir áhuga-
menn.
Ég var að renna yfir nokkrar
skákir frá Skákþingi Rússlands sem
lauk á dögunum, var geysisterkt, og
þeir urðu efstir Íslandsvinurinn
Dimitrí Andreikin og Dimitrí Jakov-
enko, báðir með 7 vinninga af 11
mögulegum. Sá fyrrnefndi var úr-
skurðaður sigurvegari vegna hag-
stæðrar stigatölu.
Þrátt fyrir magnaðar baráttu-
skákir fann ég ekki neina snilld í
skákum þeirra. Hún kom hins vegar
a.m.k. tvisvar frá liðlega tvítugum
manni, Danil Dubov, sem varð í 8.-9.
sæti eftir að hafa verið efstur um
tíma. Hann gæti náð langt:
Skákþing Rússlands 2018:
Denis Khismatullin – Danil
Dubov
Kóngsindversk vörn
1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. e3
Að sneiða hjá alfaraleiðum er
býsna algengt á skákmótum í dag.
Þar gætir áhrifa Magnúsar Carlsen.
3. … Bg7 4. Be2 0-0 5. 0-0 d6 6. b3
Rc6 7. Bb2 Bf5 8. c4 e5 9. dxe5 dxe5
10. Dc1
Veiklulega teflt en svartur hefur
þegar jafnað taflið og sennilega gott
betur. Ekki gekk 10. Rxe5 vegna 10.
...Dxd1 11. Hxd1 Rg4! o.s.frv.
10. … De7 11. a3 Had8 12. b4 Bg4
13. Ha2?
Skelfilegur leikur en þó í takt við
annað sem hvítur hefur gert. Betra
var 13. h3.
13. … e4! 14. Bxf6 Dxf6 15. Rd4
Rxd4 16. Bxg4 h5 17. Bd1 Rf3+!
Í sjálfu sér ekki óvæntur leikur og
ýmsar þekktar fyrirmyndir til. Það
sem er hinsvegar athyglisvert er að
drottningarfórn býr að baki; 18. gxf3
exf3 19. Kh1 Dh4! 20. Hg1 Be5 21.
Hg3 Bxg3 22. fxg3 og nú 22. …
Dxc4! því að svartur mátar eftir 23.
Dxc4 Hxd1+ o.s.frv.
18. Kh1 Dh4 19. h3 f5
Gott var einnig 19. … Rg5 en peð
eru líka sóknarmenn.
20. c5 Rg5 21. Dc4+ Kh7 22. f4
22. … Rxh3! 23. gxh3 Hxd1!
Með hugmyndinni 24. Hxd1
Dxh3+ 25. Kg1 (eða 25. Hh2 Df3+)
Dg4+ og hrókurinn fellur.
24. Kg2 Hd3 25. He2 g5!
– og hvítur lagði niður vopnin.
Eftir 26. Rd2 kemur 26. … gxf4 27.
Hxf4 Dg5+ og síðan – Be5.
Leitin að snilldinni
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Ástríður Stefáns-
dóttir, læknir og dósent
í heimspeki, er einn ör-
fárra háskólamanna
sem gagnrýnt hafa
þöggunina kringum hið
hroðalega plastbarka-
mál. Ástríður undrast
að embætti landlæknis
skuli svo lengi hafa látið
annað eins mál
afskiptalaust. Margir
telja ástæðuna þá að einn þeirra sem
ríka ábyrgð bera hafi undanfarin ár
gegnt starfi landlæknis og sé nú að-
stoðarmaður heilbrigðisráðherra.
Vitaskuld hefur þessi undarlega
staða áhrif, en veitir ekki fullnægj-
andi skýringu.
Starfsmenn landlæknis sinna
mörgum verkefnum og gera það
vafalaust vel. Ósvikið eftirlit með
heilbrigðiskerfinu hefur embættið þó
lengi vanrækt, enda svo nátengt því
að þar rennur allt í sama graut. Þetta
gjörþekkja þeir sem um áratuga-
skeið hafa krafist þess að fá hér
raunverulegan umboðsmann sjúk-
linga, heilsteypt embætti sem ekki er
í neinu slagtogi með þeim sem það á
að hafa eftirlit með.
Hið glæpsamlega plastbarkamál
segir meira en mörg orð um þá sam-
tryggingu sem embætti landlæknis
hefur allt of lengi komist upp með.
Ekki þarf annað en að hringja í emb-
ættið til að kynnast þeim varnarhátt-
um sem þar er beitt. Fólk nær varla
að stynja upp erindi sínu fyrr en því
er sagt að enginn hinna fjölmörgu
starfsmanna veiti venjulegu fólki lif-
andi áheyrn, jafnvel þótt það búi yfir
brýnum upplýsingum. Vilji það á
hinn bóginn stofna til formlegs kæru-
máls sé því heimilt að fara inn á
heimasíðu embættisins, lesa sér þar
til og fylla út sérstakt eyðublað að
fengnu skriflegu umboði til slíks,
undirrituðu af vitundarvottum. Í
þessum anda segir á heimasíðunni að
embættinu sé „skylt að sinna kvört-
unum“ og fólki sé „heimilt að bera
fram formlega kvörtun“.
Vart þarf að hafa mörg orð um hve
fráhrindandi svona viðmót er. Hitt er
jafnljóst að með þessu
tekst að slá mjög
marga út af laginu og
halda í algeru lágmarki
þeim upplýsingum sem
alvörueftirlitsstofnun
myndi vilja búa yfir.
Meðvitaðir um við-
horfin hjá landlækni
hika menn ekki við að
leyna alvarlegum at-
vikum. Dirfist venju-
legt fólk að upplýsa um
slíkt er með embætt-
ishroka reynt að telja
því trú um að finna megi skýringar á
leyndinni. Skurðlæknar hafa því nán-
ast sjálfdæmi um tilkynningu alvar-
legra atvika.
Þegar eftirlitsstofnun hefur snúist
svona upp í andhverfu sína er í besta
falli von til að menn reyni að koma á
framfæri upplýsingum sem varða
þeirra allra nánustu, jafnvel þótt þeir
þekki til fólks sem farið hefur hræði-
lega út úr aðgerðum sem af skýrslum
landlæknis mætti ætla að væru hér á
sama heimsmælikvarða og flest ann-
að. Engri eftirlitsstofnun myndi líð-
ast að haga sér svona ef í hlut ættu
skipstjórar, flugmenn og bílstjórar.
Þeir þyrftu líka að sæta umtals-
verðum viðurlögum ef í ljós kæmi að
þeir hefðu leynt alvarlegum slysum,
að ekki sé talað um ef þeir léku sér
með lifandi fólk eins og plastbarka-
mennirnir íslensku og þær stofnanir
sem slá um þá skjaldborg.
Plastbarkamálið er kennslubókar-
dæmi um hvernig farið getur þegar
eftirlitsstofnun er í vasa þeirra sem
hún á að hafa eftirlit með. Í stað þess
að lappa upp á þetta falska öryggi er
löngu tímabært að fela utanaðkom-
andi aðilum yfirumsjón með því eftir-
liti sem landlæknir er ófær um að
sinna.
Plastbarkasiðferði
landlæknis
Eftir Garðar
Sverrisson
»Engri eftirlits-
stofnun myndi líðast
að haga sér svona ef í
hlut ættu skipstjórar,
flugmenn og bílstjórar.
Garðar Sverrisson
Höfundur er rithöfundur.
sverrisson@centrum.is
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Fíkn fer ekki í mann-
greinarálit. Fíkn skeyt-
ir hvorki um stétt né
stöðu. Fíknisjúkdómar,
hvort sem um alkóhól-
isma eða aðrar fíknir er
að ræða, leggjast á
konur og karla, ömmur
og afa, mæður og feð-
ur, dætur og syni, syst-
ur og bræður.
Ég hef kynnst fíkn,
sem og svo mörg okkar.
Ég hef kynnst fíkn sem umbreytir
bestu mannverum í skrímsli. Ég hef
kynnst fíkn sem hlekkjar fjölskyldur
örvæntingu, ómældum sársauka og
ótta. Ég hef kynnst fíkn sem tók einu
systur mína heljartökum. Ég hef
kynnst fíkn sem lagði elsku systur
mína nánast að velli. Ég hef eignast
systur mína aftur. Ég hef eignast trú
sem löngu var glötuð.
Fíknisjúkdómum er réttilega lýst í
Engli afkimans eftir Pál Jóhann:
Ég er öflugri en allir heimsins her-
ir. Ég hef tortímt fleiri mönnum en
heimsstyrjaldir. Ég hef orsakað
milljónir slysa og lagt í rúst fleiri
heimili en flóð, stormar og fellibyljir
samanlagt. Ég er slyngasti þjófur í
heimi, stel þúsundum
milljarða á hverju ári. Ég
finn fórnarlömb meðal fá-
tækra og ríkra, ungra
sem gamalla, sterkra sem
veikra. Ég varpa skugga
á sérhverja atvinnugrein.
Ég gef ekkert, tek allt.
Ég er versti óvinur þinn.
Ég er fyrsti og versti
óvinur mannkyns.
Við verðum að standa
saman og beita
ákveðnum og árangurs-
ríkum meðferðum og muna að mis-
munandi nálgun getur skipt sköpum í
baráttunni við þennan vágest.
Ég á hjarta barmafullt af þakklæti
til allra þeirra sem gáfust ekki upp og
færðu mér systur mína aftur.
Hún náði sínum bata á Krýsuvík og
fyrir það er ég óendanlega þakklát.
Þakklæti
Eftir Auði Smith
Auður Smith
»Ég á hjarta barma-
fullt af þakklæti til
allra þeirra sem gáfust
ekki upp og færðu mér
systur mína aftur.
Höfundur er læknir.
Allt um
sjávarútveg