Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Síða 12
Hugi Ólafsson,
skrifstofustjóri í
umhverfis- og
auðlindaráðuneyt-
inu, skrifar á
Facebook um
gatnaheiti: „Gott hjá skipulags- og
samgönguráði að hafna þessum
sterílu götuheitum. Hér er upp-
lagt tækifæri að nota okkar þjála
tungumál til að lífga upp á um-
hverfið þarna: Stoðkerfisstræti,
Botnlangi, Misstígur, Ökklabraut,
Meltingarvegur, Rassgata …“
Helgi Seljan
fjölmiðlamaður
tísti: „Hvað verð-
ur um öll þessi
ummæli sem vís-
að er til föður-
húsanna? Hve mikil geymsluað-
staða er þarna? Eru þau geymd
stafræn eða lífræn? Hvar eru þessi
hús; er eitt í hverju kjördæmi eða
hverri sýslu? Eitthvað hlýtur þetta
að kosta? Hver borgar?“
Nanna Rögnvaldardóttir,
matargúrú með meiru, skrifaði á
Facebook: „Ég hef séð ýmsa vera
að hneykslast á því að talað var
um í fréttum að fornmunir hefðu
farist í bruna; mjög margir virðast
þeirrar skoðunar að eingöngu fólk
geti farist (já, og skip og flugvélar
ef fólk ferst með). En þetta er
náttúrlega della. Það er hægt að
finna fjöldamörg dæmi um það frá
gamalli (og nýrri) tíð að munir
hafi farist – ekki síst bækur og
skjöl – til dæmis er oft og iðulega
talað um að handrit hafi farist í
brunanum í Kaupmannahöfn (sjá
m.a. vef Árnastofnunar). En orðið
er líka haft um ýmsa muni, ekki
síst forngripi og dýrmæta hluti.
Kristján Eldjárn skrifar t.d. um
Flatatungufjalirnar í Árbók Forn-
leifafélagsins 1960: ,,Þær fjalir hafi
síðan farizt í brunanum í Tungu
1898.““
Sjónvarps-
stjarnan Berg-
lind Péturs-
dóttir, gjarnan
kennd við Festi-
val, tísti um sölu-
mál sín á notuðu dóti á netinu:
„Djöfull dýrka ég að segja NEI
TAKK við einhverjum ógeðslega
lágum boðum í draslið sem ég er
að selja á bland. take your bus-
iness elsewhere nirfill.“ hún bætti
svo við: „Besta fólkið á blandinu
er fólk sem vill fá ALLAR upplýs-
ingar um vöruna. Stærð? hæð?
breidd? þyngd? verð? hvenær
keypt? mikið notað? chill the fuck
out maður þetta er fucking lampi
á þúsundkall.“
AF NETINU
Lífskjör hafa aldrei verið jafngóð eins og núna. Til dæmiser kaupmáttur launa mun
hærri en hann var 2007. Og 2007 er
svona hugtak um að þá hafði fólk
það gott, en það hefur það enn
betra núna. Kaupmáttur launa er
sirka 19 prósent hærri en hann var
2007.“
Þannig mælti Gylfi Zoega,
hagfræðiprófessor við Háskóla Ís-
lands, í viðtali við Ríkisútvarpið fyr-
ir fáeinum dögum, í tilefni af
skýrslu um stöðu efnahagsmála
sem hann vann fyrir forsætisráð-
herra.
Þetta er merkileg og ánægjuleg
niðurstaða, svo ekki sé fastar að
orði kveðið. Hún á að vera okkur
öllum hvatning til að standa vörð
um árangurinn og halda áfram að
bæta skilyrði fyrir verðmæta-
sköpun og lífskjarasókn.
Góðar fréttir úr
tæknigeiranum
Grunnforsendan og frumupp-
sprettan fyrir þessum góða árangri
er nú sem endranær sköpunar-
kraftur einstaklinganna. Ein-
staklinga sem nýta tækifærin í um-
hverfinu með hugviti sínu og
dugnaði og búa sífellt til ný. Að-
gerðir stjórnvalda eiga svo líka sinn
þátt í árangrinum og ytri skilyrði
sömuleiðis.
Við erum svo lánsöm að eiga at-
hafnafólk og frumkvöðla á mörgum
sviðum, sem gerir að verkum að at-
vinnulíf okkar er fjölbreyttara en
ella.
Til marks um þetta er sú röð
ánægjulegra tíðinda sem barst í
vikunni úr tæknigeiranum. Suður-
kóreskt tölvuleikjafyrirtæki keypti
CCP fyrir hvorki meira né minna
en 46 milljarða og mun áfram halda
úti starfsemi á Íslandi samkvæmt
tilkynningu. Bandarískt fyrirtæki
keypti fimmtungshlut í ferðasal-
anum Guide To Iceland fyrir 2,2
milljarða og metur því heildarvirði
félagsins á yfir 10 milljarða. Ferða-
tæknifyrirtækið TripCreator sótti
sér tæpan milljarð í fjármögnun og
tölvuleikjafyrirtækið 1939 Games
rúmar 200 milljónir.
Ríkisstjórnin hefur sett skýra
stefnu á áframhaldandi kröftugan
stuðning við rannsóknir, þróun, ný-
sköpun og frumkvöðlastarf, meðal
annars með því að auka endur-
greiðslur á rannsóknar- og
þróunarkostnaði en einnig með því
að hefja gerð nýsköpunarstefnu fyr-
ir Ísland. Dæmin hér að framan eru
enn ein sönnun þess að jarðvegur-
inn – einstaklingarnir – mun svo
sannarlega sjá til þess að við upp-
skerum ef við hlúum rétt að honum.
Ryðjum hindrunum
úr vegi
Stjórnvöld verða líka að huga vel að
því að regluverk sé ekki óþarflega
íþyngjandi og hamli ekki sam-
keppni, sem er forsenda þess að
markaðslögmálin fái notið sín neyt-
endum til hagsbóta. Við höfum því
ákveðið, eins og tilkynnt var nýlega,
að ganga til samstarfs við OECD,
Efnahags- og framfarastofnun Evr-
ópu, um að framkvæma svokallað
samkeppnismat á tveimur sviðum
atvinnulífsins; ferðaþjónustu og
byggingariðnaði. Vonandi verður í
framhaldinu hægt að taka fleiri svið
til sams konar athugunar.
Tilgangurinn er að greina gild-
andi regluumhverfi með tilliti til
þess hvort það feli í sér sam-
keppnishindranir eða óþarfa reglu-
byrði sem ryðja megi úr vegi. En
ekki verður látið þar við sitja held-
ur ætlum við líka að hefja skipulegt
og markvisst mat á því hvort öll
þau nýju lög og reglur sem við setj-
um standist þetta sama próf; hvort
við séum með þeim að innleiða nýj-
ar óþarfa samkeppnishindranir.
Enda væri til lítils að reyta arfann
með hægri og gróðursetja nýjan á
sama tíma með vinstri.
Aðrar þjóðir hafa góða reynslu af
þessari nálgun. Ástralar hafa frá
því fyrir aldamót lagt sérstaka
áherslu á að bæta regluverk til að
efla samkeppni og er það talið hafa
stuðlað að því að hagvöxtur þar í
landi hefur gjarnan verið meiri en í
öðrum OECD-ríkjum.
Það er ekki sjálfgefið, og satt
best að segja hálfgert kraftaverk,
að lítil þjóð á afskekktri eyju búi við
einhver bestu lífskjör sem þekkjast
á byggðu bóli. Við megum því
hvergi draga af okkur í að virkja
krafta einstaklingsframtaksins.
Vissulega beina því í skýran farveg
með skýrum og eðlilegum leik-
reglum svo að það valdi ekki
flóðum. En gæta þess síðan að far-
vegurinn sé sem greiðastur, þannig
að framtakið fái knúið hverfla verð-
mætasköpunar og lífskjara þess-
arar lánsömu þjóðar af sem mest-
um þrótti.
’Við erum svo lánsömað eiga athafnafólk ogfrumkvöðla á mörgumsviðum, sem gerir að
verkum að atvinnulíf okk-
ar er fjölbreyttara en ella.
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
Morgunblaðið/RAX
Farvegur framtaksins
VETTVANGUR
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.9. 2018
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir,
lögg.fasteignasali
gudbjorg@manalind.is
sími: 899 5533
Thelma Víglundsdóttir,
lögg.fasteignasali
thelma@manalind.is
sími: 860 4700
www.manalind.is Lágmúla 6 sími 511 1020
BYGGINGAFÉLAG
MÁNALIND
Glæsilegt penthouse
Freyjubrunni 31 Úlfarsárdal
Glæsileg penthouse íbúð með
tvöföldum bílskúr, birt stærð 232 fm.
Hjónasvíta með fataherbergi og sér
baðherbergi. 67,2 fm suðvestur
þaksvalir þar sem gert er ráð fyrir
heitum potti, frábært útsýni.
Bókið skoðun