Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Síða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Síða 19
9.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Borguð nauðgun Nú kemur myndin talsvert inn á vændi og kyn- ferðisbrot tengd þessum heimi, kom það ykkur á óvart? Elín: „Þegar þú gerir hvað sem er fyrir næsta skammt er greinilega til nóg af mönnum sem misnota sér þær aðstæður. Maður getur einhvern veginn ekkert reynt að setja sig inn í þennan hugarheim en eins og Kristín Gerður skrifaði í dagbækur sínar; „Vændi er bara borguð nauðgun.“ Ég man að þarna þurfti ég að hætta að lesa.“ Eyrún: „Ég hafði aldrei heyrt þessi orð áður, en allt í einu meikuðu þau svo mikinn sens.“ Hver er tilfinning ykkar fyrir neyslu ungs fólk í dag? Er þetta algengt eða erum við að tala um undantekningartilfelli? Elín: „Ég veit ekki hvort það er af því að ég er eldri og fer meira niður í bæ um helgar en mér finnst eiginlega út í hött hvað er almennt mikið um neyslu á til dæmis kókaíni og amfeta- míni. Það tekur því varla að minnast á kanna- bisneyslu, sem er algerlega búið að norm- alísera, það er ekki einu sinni eiturlyf fyrir fólki.“ Eyrún: Og af því að það er ekki eiturlyf fyrir fólki þá er næsta skref svo stórt, að ætla að fara næst í e-pillur, kókaín, MDMA, sem eru svo sterk fíkniefni.“ Elín: „Það kemur mér alltaf jafnmikið á óvart að ungt fólk er ekki einu sinni að spá í þetta, það eru bara einhvern veginn allir í þessu.“ Er þá talað um amfetamín og kókaín sem vægari fíkniefni í dag? Eyrún: „Í rauninni já, af því að grasreyk- ingar eru orðnar „venjulegar“. Ég hef á tilfinn- ingunni að þetta sé að aukast hjá yngri kyn- slóðum því þetta er á vissan hátt í tísku í rappinu, í hipphoppheiminum, og þegar þú ert unglingur reynir þú að falla inn í hópinn og ert vís til að gera hvað sem er til að fá samþykki. “ Elín: Ég á systur sem er sex árum eldri en ég og hún kannast ekki við það að stór hluti krakka í kringum hana hafi verið á kókaíni um helgar þegar hún var yngri. Ég þekki hins veg- ar til mjög margra sem hafa lent í skuld því þeir voru að neyta kókaíns um síðustu helgi. Ég er ekki að segja að það séu vinir mínir en á litla Ís- landi þekkir maður til heilu árganganna. Það er kannski bara einhver strákur í MR eða MH, fínn nemandi, sem segir frá því eins og eðlileg- um hlut að hann hafi lent í skuld því hann var á kókaíni um helgina. Og foreldrarnir enda á að borga skuldina niður.“ Eyrún: „Maður er endalaust að heyra um svona, á Íslandi þekkja allir alla og fólk sem maður hefði alls ekki trúað að væri að lenda í svona.“ Að fatta betur fíknina Hvað teljið þið að hægt sé að gera til að hjálpa fólki á þessari braut? Elín: „Eitt skrefið er að fólk fái það viðmót og virðingu sem það á skilið þótt það sé fíklar, frá yfirvöldum og samfélaginu, það er allavega eitt skref og það sem við erum að reyna að gera með þessari mynd. Restin er persónubundin. Fólki finnst skorta úrræði til að aðstoða fólk en um leið vitum við ekki alveg hvað það er sem þarf og hvað fólk vill fá.“ Eyrún: „Það vantar viljann til að berjast þeg- ar það er lítið gert úr þér og því er virðingin svo mikilvæg. Það virðist hins vegar ekki vera til nein rétt uppskrift fyrir foreldra, hvort þeir hóta eða faðma, og það kom mér á óvart hvað fólk sem lendir á þessari braut getur átt full- komlega gott bakland. Þetta eru oftar en ekki foreldrar sem vilja það besta fyrir barnið en ná ekki að forða því.“ Elín: Forvarnir almennt gætu kannski snúist um að fatta betur fíknina, að fólk öðlist skilning á henni, í stað þess að fræða um hvað þetta og hitt efnið geti gert manni. Að ungt fólk fái fræðslu um það sem fíknin geri manni. Viltu í alvörunni finna eitthvert fyrirbæri á borð við fíknina, sem er það góð að allt annað í heim- inum verður ekki gott? Það að elska ömmu sína og eignast barn verður ekki jafngott og einn skammtur. Sjálf hef ég svolítið verið að upp- götva þetta og ræða við litlu systur mínar.“ Ætlið þið sjálfar að halda áfram í leiklistinni? Elín: „Tónlistin hefur alltaf verið helsta áhugamál mitt en ég fékk klárlega mikinn áhuga á kvikmyndagerð og því sem Baldvin er að gera. Mér fannst þetta allt, öll vinnslan, svo spennandi og leið á hverjum einasta degi eins og ég væri að eiga besta dag lífs míns.“ Eyrún: „Ég trúði hreinlega ekki að það væri hægt að vinna við eitthvað svona skemmtilegt. Ég hef sjálf mikla sköpunarþrá og mig langar að skapa eitthvað og vera í kringum kvik- myndagerð. Ég væri einnig alveg til í að leika aftur.“ Baldvin hefur mikið borið á góma í viðtalinu og greinilegt er að leikkonunum finnst þær hafa lent í mjög góðum höndum. Elín: „Ég er í alvörunni svo ánægð með Bald- vin að ég gæti farið að gráta, hann er ein- staklega góð manneskja, inn og út í gegn.“ Eyrún: „Hvernig hann talaði við mann og vildi að manni liði vel var einstakt. Hann sagði líka sjálfur að með því að ráða okkur í þetta væri hann að taka þá ábyrgð á sig að við kæm- um heilar út úr þessu og honum tókst það full- komlega.“ Elín: „Ég geri mér líka grein fyrir því hvað ég er heppin að hann valdi mig í þetta hlutverk, það er ekkert sjálfsagt og ég verð ævinlega þakklát fyrir það, sama hvað ég á eftir að gera í framtíðinni.“ Þær hafa í nægu að snúast og við ætlum að slá botninn í spjallið. Eitthvað að lokum? Elín: „Ég vil mjög mikið koma því á framfæri að fólk gefi myndinni tækifæri, hún er átakan- leg en ekki ógeðsleg, það sést til dæmis ekki nál. Þessi mynd er svo miklu meira en einhver hræðileg saga af einhverju hræðilegu máli. Hún er jú saga um stelpur í fíkniefnaneyslu en hún er líka bara saga af fólki á Íslandi, sorgir og gleði, sem tilheyrir okkar heimi.“Úr myndinni þar sem fylgst er með 15 árum af lífi þeirra Magneu og Stellu. Morgunblaðið/Valli ’ Alveg frá því að við fengum hlut-verkin hefur mér aldrei fundistvera jafnmikið af óhugnaði og ein-mitt nú. Maður er alltaf að heyra eitthvað, sjá eða lesa um unga krakka sem eru að falla frá vegna neyslu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.