Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Qupperneq 25
Eplakökur með sikk-
sakkmynstri úr deiginu
fara ákaflega vel á kaffi-
borðinu þar sem þær
eru svo fagrar. Hér býr
saltkaramellan til æv-
intýri fyrir bragðlauk-
ana.
DEIG
260 g hveiti
1 tsk. salt
125 g kókosolía eða
smjörlíki
7 -8 msk. ískalt vatn
Blandið hveiti og
salti saman í skál og
blandið svo feitinni
saman við. Til þess er
gott að nota áhald eins
og á myndinni hér til
hliðar, deigblandara,
en það er hægt að
komast af með gaffal
og jafnvel blandara en
mikilvægt er að blanda
deigið afar vel. Blandið
1 msk. af ísköldu vatni
saman við og stappið
saman við með gaffli.
Endurtakið þetta
þar til blandan er
rök og fín. Takið
þá til við að hnoða
með höndunum í
fallega kúlu. Takið
2/3 hluta deigsins og
setjið á hreint hveit-
20 g ósaltað smjör
smá mjólk til að pensla
deigið
smá perlu- eða hrásykur
til skrauts
Hitið ofninn í 200 °C.
Setjið niðurskorin
eplin í skál, sprautið
sítrónusafa yfir og
blandið vel saman.
Dreifið hveiti yfir,
múskat og kanil og
hrærið vel saman.
Dreifið eplablöndunni
ofan á deigið í forminu.
Hellið svo saltkara-
mellunni yfir eplin og
passið að hún dreifist
jafnt. Stráið hnetunum
yfir ef þið ætlið að nota
þær. Takið ósaltaða
smjörið og skerið í
agnarlitla bita og dreifið
yfir.
Skerið nú deigið sem
þið geymduð í renn-
inga, ekki of mjóa, og
búið til sikksakk-
mynstur úr þeim með
því að leggja þá ofan
á hvern annan.
Penslið þá með
mjólk og stráið
smá perlu- eða hrá-
sykri yfir. Bakið í 40-45
mínútur eða þar til kak-
an er fallega gyllt.
Klassísk með saltkaramellu
istráð vinnuborð. Fletj-
ið deigið út þannig að
það passi í hringlaga
form og nái upp með
börmunum. Þrýstið
því létt niður í vel
smurt formið og sting-
ið nokkur göt með
gaffli í deigið. Afgang-
urinn af deiginu er svo
notaður til að búa til
mynstrið ofan á þegar
fyllingin er komin í.
FYLLING
½ krukka af góðri salt-
karamellusósu, til dæmis
frá Stonewall Kitchen
½ bolli valhnetur eða
pekanhnetur, gróft
skornar, magn eftir
smekk (má sleppa)
4-5 epli, skorin í þunnar
sneiðar
1½ tsk. kanill
½ tsk. múskat
2 msk. hveiti
safi úr ½ sítrónu
örlítið salt
9.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Einföld og fljótleg með
þýskættaðri vanillusósu
Sígilt er að bera fram van-
illuís með eplakökum en
enn betra er heit vanillu-
sósa eins og þessi, sem er
þýsk að uppruna.
400 g sykur
220 g smjör
2 egg
5 epli
2 tsk. matarsódi
260 g hveiti
2 tsk. kanill
2 tsk. negulduft
1 bolli valhnetur, gróft
skornar
Blandið vel saman smjöri
og sykri í stórri skál. Hrær-
ið eggin saman við. Kjarn-
hreinsið eplin en fjarlægið
60 g sykur
1 tsk. vanilludropar
Hrærið eggjarauðurnar sam-
an við maíssterkjuna. Leysið
sykurinn upp í mjólkinni við
vægan hita, hrærið stöðugt í
á meðan, eða þar til sykurinn
er uppleystur. Blandið þá
mjólkurblöndunni saman við
eggjarauðurnar og hitið aft-
ur við vægan hita eða þar til
sósan hefur þykknað aðeins,
í um þrjár mínútur. Passið að
sósan má alls ekki sjóða.
Hægt er að bera sósuna
fram sér og hafa til hliðar
en einnig er fallegt að hella
sósunni yfir kökuna og
skreyta með kanilstöngum
og valhnetum.
ekki hýðið. Rífið þau nið-
ur með rifjárni, þægileg-
ast er að gera það með
matvinnsluvél. Hrærið
þau þá saman við deigið.
Blandið þurrefnunum
saman við. Smyrjið hring-
laga form eða aflangt
kökuform og hellið deig-
inu í. Bakið við 175 °C í
40-50 mínútur, eða þar til
hægt er að stinga prjón í
miðju kökunnar og hann
kemur hreinn upp úr kök-
unni.
VANILLUSÓSA
5 eggjarauður
2 msk. maíssterkja
120 ml mjólk
120 ml rjómi
Það eru ekki margar kökur
sem maður kemst upp með
að búa til hollustuútgáfu af
en eplakaka er ein þeirra,
þar sem kanillinn gerir svo
mikið. Svo er smá sletta af
hlynsírópi og ber staðgeng-
ill hvíta sykursins hér.
DEIGBLANDA
90 g hafrar
40 g heilhveiti
1 tsk. kanill
1 msk. hlynsíróp
1½ msk. ósaltað bráðið
smjör
bráðna smjörinu saman við
og blandið vel saman.
Setjið maíssterkjuna, 1 og
½ tsk. kanil og múskat í aðra
skál og veltið eplunum upp
úr blöndunni. Dreifið epla-
blöndunni ofan í smurt eld-
fast mótið, hellið berjunum
yfir (geymið örfá til skrauts)
og þrýstið niður með spaða.
Dreifið haframjölsblöndunni
yfir eplin. Bakið í 30-40 mín-
útur, eða þar til eplin eru
mjúk. Skreytið með berjum
að eigin vali.
FYLLING
800 g rauð epli, flysjuð og
skorin í litla báta
1 bolli bláber
1 bolli kirsuber, skorin í tvennt
(má nota önnur ber í staðinn,
svo sem hindber)
1 msk. maíssterkja
2 tsk. kanill
múskat á hnífsoddi
Hitið ofninn í 175 °C og
smyrjið eldfast mót.
Hrærið saman höfrum,
hveiti og 1 tsk. kanil í skál.
Hellið hlynsírópinu og
Eplamulningur í miðri viku