Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Side 27
9.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Hinir fjölmörgu kastalar í Loire-dalnum eru það
sem svæðið er þekktast fyrir. En þar sem eru kast-
alar eru líka stórir garðar, fyrrverandi veiðilendur
konungborins fólks með fallegum trjám sem njóta
sín einstaklega vel í haustlitunum.
Kastalarnir sjálfir eru opnir fyrir gesti þangað til í
október og er mun minna að gera en á sumrin. Til
viðbótar er líka vínuppskeran í fullum gangi. Enn
fremur er margt að sjá í vinalegu og líflegu borginni
Tours, sem stendur við Loire-ána. Þetta er slétt svæði
og því kjörið að fara í hjólatúr frá borginni til dæmis
til Villandry-garðanna, sem þykja sérlega fallegir.
LOIRE-DALURINN
Kastalagarðar í haustlitunum
SÍGILDIR SUNNUDAGAR
Fyrsta flokks
kammertónlist
Sígildir sunnudagar eru klassísk
tónleikaröð þar sem boðið er upp
á fjölbreytt úrval kammertónleika.
Sunnudaga
kl. 16:00 í Hörpu
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST
Heppilegt er að ferðast til Tosk-
ana-héraðs á Ítalíu á haustin, ekki
síst fyrir mataráhugafólk. Þó það
sé góður matur þar allt árið er
uppskerutíminn alveg sérstaklega
hentugur fyrir sælkera sem geta
gætt sér á ferskum fíkjum, svepp-
um, ólífum og kastaníuhnetum.
Fram fara margar uppskeruhátíð-
ir með skemmtunum af ýmsu
tagi.
Næstu borgir eru Flórens og
Siena en þar er mikill straumur
ferðamanna en þó ekki eins marg-
ir á þessum árstíma og í ágúst eða
í kringum skólafrí.
Landslagið fer í fallegan haust-
búning en til dæmis er hægt að
heimsækja nokkra þjóðgarða á
svæðinu til að njóta náttúrunnar.
TOSKANA
Hátíð
fyrir mat-
gæðinga
Á heitum haustkvöldum í Róm er
margt hægt að gera í þessari
sögufrægu borg. Telegraph sting-
ur upp á því að ferðafólk fari í
tunglsljósaferð í hringleikahús
borgarinnar. Þannig sé hægt að
skoða þessar mögnuðu forn-
minjar í nýju ljósi og enn fremur
forðast troðning, en í skoð-
unarferðinni eru aðeins 25 manns
í einu.
Milt loftslag borgarinnar er eitt
af því sem heillar íbúa norðlægra
slóða við hana. Það að ramba um
þröngar götur í Trastevere á
kvöldin og setjast niður á einum
af fjölmörgum veitingastöðum
hverfisins er dásamlegt.
Fáar borgir búa líka yfir eins
mörgum fornminjum sem er
gaman að skoða og líka er hægt
að fá heilmikinn innblástur af
þeim mörgu listaverkum sem
hægt er að skoða í borginni eilífu.
RÓM
Hringleikahús í tunglsljósi
Istanbúl er stórborg
sem stendur á mörkum
Evrópu og Asíu og hefur
heilmikið aðdráttarafl á
hvaða árstíma sem er,
nema kannski þegar hit-
inn er hvað mestur á
sumrin. Í september eru
það fuglar sem setja svip
á borgina, nánar tiltekið
þúsundir farfugla sem
eru á leið til Afríku til að
dvelja þar yfir vetr-
artímann. Þykir þetta
einstakt náttúruundur
sem er gaman að fylgj-
ast með.
Veðrið er þægilegt á
haustin, um og yfir 20°C,
alveg fram eftir október.
Hagstætt er að
ferðast til Tyrklands um
þessar mundir vegna
falls lírunnar.
ISTANBÚL
Far-
fuglar