Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Qupperneq 31
m.a. á mbl.is. Þar sagði: „Fyrrverandi forsætisráð- herra Svíþjóðar og formaður Sósíaldemókrata telur rétt að Ulf Kristersson, leiðtogi hægriflokksins Moderaterna, leiti til Svíþjóðardemókrata að þing- kosningum loknum og sækist eftir stuðningi þeirra við myndun ríkisstjórnar hægribandalagsins, Allian- sen. Þetta kom fram í viðtali við forsætisráðherrann þaulsætna við Expressen í fyrradag. Skorist hann undan því gæti farið svo að Moderat- erna verði brátt minni en Svíþjóðardemókratar og glati stöðu sinni sem annar af burðarflokkum sænskra stjórnmála. Moderaterna og Svíþjóðar- demókratar mælast álíka stórir í könnunum, með um 17% hvor, en Sósíaldemókratar eru stærstir með um 25% fylgi.“ Þessi yfirlýsing Görans Perssons boðar tíðindi í sænskum stjórnmálum. Hún þýðir auðvitað að við- urkennt er að útilokunaraðferðin hafi misheppnast í Svíþjóð. Sú hafði áður orðið raunin í Noregi, Dan- mörku, Austurríki, svo ekki sé talað um Ítalíu þar sem „óstjórntækir flokkar“ hafa nú 78% þingmanna á bak við sína ríkisstjórn. Og fréttir frá Þýskalandi sýna að AfD mælist nú stærri flokkur en Sósíal- demókratar þar! Stefnubreytingin þegar sýnileg En eins og fram hefur komið í fréttum síðustu árin hafa hinir hefðbundnu flokkar í Evrópu verið að laga sig að stefnu fordæmdu flokkanna í útlendinga- málum. Það var þó stefna sem áður réttlætti að kalla þá öfgaflokka, fasista og jafnvel nasista og flokka kynþáttahatara. En þegar réttbornir flokkar halla sér nauðugir í þá sömu átt sjá tryggir fréttadindlar á þeim kant- inum ekkert að. Þá heitir það kalt raunveru- leikamat. En þótt það komi ekki fram í fréttunum er hugsanlegt að Göran Persson sé ekki eingöngu að hugsa um að Moderaterna glati ekki stöðu sinni sem annar höfuðflokkur sænskra stjórnmála. Það er ástæða til að ætla að hann hugsi lengra eins og fyrri daginn. Hann sjái fyrir sér að neyðist Mod- eraterna og SD til að horfast í augu við nýjan veru- leika og rugla reytum í ríkisstjórn, þótt SD yrði áfram utan stjórnar eins og í Danmörku, þá gæti eyðimerkurgöngu hans eigin flokks, Sósíaldemó- krata, huganlega lokið og hann nálgast sína fyrri stöðu. Því ekki að hafa skýrari línur? Það ætti að vera óþarfi fyrir hefðbundna flokka með sögu sem þeir geta verið stoltir af að týna sér í samansúrraðri stjórnmálalegri kássu. Þess háttar réttur er ekki lystugur til lengdar. Á Íslandi hefur ofmetnum embættum eins og Um- boðsmanni, sem er kenndur við Alþingi, sem orðið er öfugmæli, tekist að ýta undir þann „skilning“ að ákvörðun sem stjórnmálamaður tekur í samræmi við sína samvisku og í krafti lýðræðislegs umboðs sé þegar af þeirri ástæðu tortryggileg, gott ef ekki spillt. Það eigi þó einkum við hafi hinir raunverulegu valdamenn, nafnlausir umboðsleysingjar kerfisins, ekki algjörlega ráðið ferðinni. Stjórnmálamaðurinn þarf að hafa fengið skriflega skýrslugerð um hvað- eina, þar sem búrókratinn setur fram alla hugsanlega fyrirvara með krókum til að passa sína persónu eða mikilvægan hluta hennar. Taki ráðherrann svo ákvörðun sem rekst í einhverju á þessa fyrirvara, sem eru oftast í formi getgáta eða vangaveltna, er hægt að ámælast hann fyrir þær. Þá er eftir að mæla ákvörðunina við lög og reglugerðafjöld, anda þeirra, tilskipanir ESB, valdasókn ESA langt út fyrir öll mörk og þar fram eftir götunum. Svo bætast við óljóst þrugl siðanefnda og reglur þeirra sem lifa sér- stöku lífi utan við lög og rétt í landinu. Í umræðu er látið eins almennningur, sem á að vera endapunktur valdsins, eða eini færi umboðsmaður hans, megi hvergi koma nærri svo sjáanlegt sé. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir er eina ríkis- stjórnin í landinu sem fram að þessu hefur starfað undir flaggi siðareglna. Það segir allt sem segja þarf þegar fullkomið siðrof varð í íslenskri stjórnsýslu. Hver kom þeirri hugmynd inn hjá sér, svo ekki sé minnst á hjá heilli ríkisstjórn, að Jón Ólafsson á Bif- röst sé óskeikull engill um það hvaða hegðun og ákvarðanir teljist siðlegar á Íslandi og spyrja má þá hvar í veröldinni hann öðlaðist þá visku. Eldsmatur Umræða um kjaramál er algjörlega úti á túni um þessar mundir. Umbrot í verkalýðshreyfingunni ýta undir það. Þar geta menn haldið völdum áratugum saman, eða brotist til valda þar í krafti 10% at- kvæðanna þegar hinir sofa og búið svo í tveimur heimum samtímis. Annars vegar með sverustu valda- tauma þjóðfélagsins í höndunum í krafti þess ofsafjár sem almenningur í sveita síns andlits hefur önglað saman um langa hríð eða að ræða af trúarhita um þá skömm sem lægstu launum fylgir, þótt þau séu hærri hér en annars staðar. Fulltrúar fólksins í höllum sjóðanna telja oftast nær fyrir neðan sína virðingu að upplýsa rétta eigendur lífeyrissparnaðarins um grundvallarþætti, ef „samkeppnissjónarmið“ mæli gegn því. Þar dansa „auðvald stórkapítalsins“ og „varðliðar blásnauðrar alþýðunnar“ þéttar saman en jafnvel var dirfst að gera undir síðasta lagi kvöldsins í Glaumbæ forðum og markaði þó löturhægur taktur þess oft stundina sem duga varð eða drepast ella. Nú hefst samningalotan á því að menn úti í bæ til- kynna að 4% kaupmáttaraukning sé það sem þjóð- félagið þoli í framhaldi af 20-30 prósenta kaupmátt- araukningu síðustu örfárra ára. Í fyrirmyndarríki Evrópusambandsins, Þýskalandi, hefur engin kaup- máttaraukning orðið í 18 ár, samkvæmt tölum sem þaðan berast, og er almenn sátt um það þar að það sýni algjöra snilld. En nú hafa menn utan úr bæ smíðað lægsta þrösk- uldinn sem kraftmiklir leiðtogar Verkalýðshreyfing- arinnar verða því, heiðurs síns vegna, að þjóta hátt yfir á stöng, svo helst minnir á Valbjörn Þorláksson. Ella verði ályktað að byltingin þeirra hafi verið óþörf. Þeir höfðu verið að reyna að beina umræðunni í aðrar áttir með því að benda á að baráttan nú snerist um kulnun í starfi sem væri að naga lífslöngun og tilgang úr fólki í tugþúsundatali. Slíkt töfraorð sem „kulnunin“ er hafði ekki mætt í umræðuna síðan „síþreytan“ var og hét og lagði heilu þjóðfélögin í rúmið fyrir ekki svo löngu. Gísli góði Sá góði maður Gísli Jónsson menntaskólakennari var löngum drjúgur og elskaður liðsmaður lesenda Morgunblaðsins. Á þessum árstíma minna aspirnar á sig, aðkomin tré og ágæt eins og ljóðið hans segir okkur: Aspirnar standa’allar ennþá svo skínandi gular, æðrulausar og skynja í ró að það kular. Brátt fæst sú hvíld sem þeim náttúran leyfir að neyta og næsta vor skulu þær laufhaddi grænum sig skreyta. Þær bera ekki ugg, enda augljós hin geiglausa myndin, en öðrum mun finnast sem haustljóð sé komið í vindinn og vita eins og skáldið að villusamt reynist á vegi og vonlaust að skrúði, sem horfinn er, nýskapast megi. En hver sem um ævina einhverju hafði að skarta, á þó á haustdegi þakklæti ríkast í hjarta. Sem lauf mun hóglega í húmkyrru falla til svarðar í hlýju þess faðmlags sem ól hann til skapandi jarðar. Morgunblaðið/Árni Sæberg 9.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.